Dagblaðið - 17.09.1981, Side 27
I
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17.SEPTEMBER 1981.
C Útvarp
Sjónvarp
ÞJÓÐSAGNASÖFNUN OG ÞJÓD-
FRELSISHREYFING - útvarp kl. 22,35:
Þjóðsagnasöfn
í Evrópu
— Fyrri hluta nítjándu aldar
í kvöld flytur Hallfreður Örn
Eiríksson erindi um þjóðsagnasöfnun
og þjóðfrelsishreyfingu. Hallfreður
hefur starfað í 15 ár að Þjóðfræða-
söfnun við stofnun Árna Magnús-
sonar.
„Ég reyni með þessu erindi að
benda á tengslin sem eru á milli
aukins áhuga á þjóðsögum um miðja
nitjándu öld og eflingu þjóðfrelsis
undir forystu Jóns Sigurðssonar á
sama tíma,” sagði Hallfreður um
þáttinn. „Síðan ræði ég í stuttu máli
um þjóðsagnasöfn i Evrópu fyrri
hluta nítjándu aldar, eins hvernig og
hvers vegna málin þróuðust hér á
landi. Þá lýsi ég því hvar sé helzt að
finna þessi söfn, hverju sé safnað og
hvers vegna.”
-LKM.
LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20,30:
MÓTMÆLI
—Sættir sig ekki við stjórnkerfið
Hallfreður örn Eiriksson flytur erindi um þjóðsagnasöfnun og þjóðfrelsishreyf-
ingu I útvarpinu I kvöld.
Morgunorð. Astrid Hannesson tal-
ar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Helga J. Halldórssonar frá kvöld-
inu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
„Þorpið sem svaf” eftir Monique
P. de Ladebat í þýðingu Unnar
Eiriksdóttur; Olga Guðrún Árna-
dóttir lýkur lestrinum (20).
9.20 Tónleikar. Tilkynningar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 íslensk tónlist. „KISUM”
tónverk fyrir klarinettu, viólu og
pianó eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
^Gunnar Egilson, lngvar Jónasson
og höfundurinn leika. ~v
11.00 Presturinn með silfurhörp-
una. Séra Sigurjón Guðjónsson
flytur erindi um Stefán Thoraren-
sen, prest á Kálfatjörn og sálma-
kveðskap hans.
11.30 Morguntónleikar. Capitol-sin-
fóniuhljómsveitin leikur lög eftir
Stephen Foster; Carmen Dragon
stj.
Leikrit vikunnar heitir Mótmæli
eftir Václav Havel. Tveir rithöfund-
ar, Stanek og Vanek hittast. Annar
hefur ekki sætt sig við ríkjandi
stjórnkerfi og hefur samið mótmæla-
skjal. Nú reynir hann að sannfæra
vin sinn svo að hann skrifi undir.
Með hlutverkin tvö fara Erlingur
Gíslason og Rúrik Haraldsson.
Leikstjóri er Helgi Skúlason og
þýðandi Jón Gunnarsson. Tækni-
maður er Hreinn Valdimarsson.
Václav Havel fæddist í Prag 1936.
Þar sem foreldrar hans voru í and-
stöðu við stjórnvöldin, ‘ var Havel
bannað að leggja stund á listnám.
Hann gerðist þá sviðsmaður t þekktu
leikhúsi, vann sig þar upp og varð að
lokum leiklistarráðunautur. Eftir
innrás Varsjárbandalagsríkjanna i
Tékkóslóvakíu 1968 komst hann á
svarta listann og voru leikrit hans
bönnuð í heimalandi hans. Fyrsta
leikrit Havels, Garðveizlan, birtist
1963 og var sýnt í mörgum löndum
við miklar vinsældir.
Útvarpið hefur áður flutt tvö verk
eftir Havel, Verndarengilinn 1969 og
Opnunina 1980.
-LKM
Erlingur Gíslason og Rúrik Haraldsson fara með hlutverkin i leikriti vikunnar
„Mótmæli”.
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki bamavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
ÚXETOAR____
UTMYNDÍRI,/^{r
SrM
|=i fr
KVIKMYNDA
VÉLA
\leiga
' 'AÍÉDS'
77) filmu
FILMUR QC3 VÉLAR S.F.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI 20235.
^Dale .
Carnegie
námskeiðiÖ
• Viltu losna við áhyggjur og
kviða?
• Viltu verða betri ræðumaður?
• Viltu verða öruggari I framkomu
og njóta lifsins?
• Þarftu ekki að hressa upp á sjálf-
an þig?
\ i nurnshcn)
m) hcfjust
82411
STJORNUNARSKÓLINN,
Konrád A dolphsson
^GS K
FIM i ÍÖSSR'
IÖLLUM
DEILDUM
TIL KL. 22
ÍKVÖLD
Byggingarvörur —
Teppi — Raftæki —
Rafljós — Húsgögn
Við bjóðum einstök
greiðslukjör, alltniðurí
20% útborgun
og ejtirstöðvar lánum
við allt að 9 mánuðum
Við bjóðum
einstök
greiðsiukjör,
alitniðurí
Matvörur — fatnaður
Flestir þekkja okkar lága verð á matvörum og
nú bjóðum við einnig ýmsar gerðir fatnaðar á
sérstöku markaðsverði.
t sumar verður lokað á laugardögum. Á jostu-
dögum er opið til kl. 22 í matvörumarkaði,
rafdeild og fatadeild, — Allar aðrar deiidir
opnartilkl. 19.
Athugið!
Á fimmtudögum
eru allar deildir
opnar til
kl. 22
JON
LOFTSSON H/F
HRINGBRAUT 121
SÍMI 10600