Dagblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 28
Laxveiðileyf in stöðugt hækkandi:
Samþykkt að taka 2,5
milljóna boði í Þverá
— Jón Ingvarsson átti hæsta tilboð af tfu háum í Þverá í Borgarfirði
Einhver stærsti samningur um lax-
veiðiá sem gerður hefur verið á
íslandi má nú heita borðleggjandi.
Félag veiðiréttareigenda í Þverá í
Borgarfirði samþýkkti siðastliðinn
.föstudag að taka tilboði sem jafn-
gildir 2,5 milljónum fyrir Þverá alla,
eða 250 milljónum g.kr.
' Tilboðið átti Jón Ingvarsson,
framkvæmdastjóri ísbjarnarins hf.,
og var það sýnu hæst 10 tilboða sem
bárust. Voru þau þó öll há. Leigu-
timinn er 3 ár.
Undanfarin ár hefur Þverá verið
leigð í tvennu lagi. Neðri hlutann
hafa þeir Valur Amþórsson, Ólafur
Sverrisson, Kristinn Finnbogason,
Hannes Pálsson og Markús Stefáns-
son haft á leigu. Samningur þeirra
rennur út með lokum veiðitímans í
sumar.
Efri hlutinn hefur verið leigður
Svisslendingum. Er nú eftir eitt ár af
samningi við þá. Eftir næsta sumar
hefur Jón Ingvarsson alla ána á
leigu, samtals 14 veiðistangir.
Miðað við verðtryggingu í tilboði
Jóns, sem miðast við gengi Banda-
rikjadals eða byggingarvísitölu, og
gjalddaga leigugjaldsins í marz-
mánuði næstkomandi, er ekki fjarri
lagi að áætla keypta leigu á hverja
stöng eitthvað á þriðja þúsund krónur
á dag næsta sumar, að minnsta kosti.
Jón er mikill útivistarmaður, þegar
færi gefst fyrir önnum, meðal annars
laxveiðimaður. Ekki veiðir hann þó á
sjö stangir hvað þá 14. Ekki er DB
kunnugt, hvort einhverjir félaga Jóns
standa með honum að tilboðinu.
Selji hann veiðileyfi, þegar þar að
kemur, ræður framboð og eftirspurn
væntanlega verði. Miðað við núver-
andi leigusamning er ljóst að verð á
laxveiðileyfum fer stöðugt hækk-
andi.
Fleiri sýndu þessari frægu laxveiði-
á áhuga með tilboðum. Meðal þeirra
má nefna áðurgreinda fyrri leigu-
taka, Örn Petersen, örn Ó. Johnson,
Pát Jónsson og Jón H. Jónsson. Öll
tilboðin voru mjög há en því hæsta
var tekið, eins og áður sagði.
-BS.
fhe Platters. Söngsveitarstjórinn
Herb Reed stendur lengst til hægri.
Hann er sá eini af upprunalegu
Platters sem gertlu garðinn frægan
svo að um munaði á sjötla
áraiugnum.
Platterskoma
í næsta mánuði
Bandariska söngsveitin The Platt-
ers hyggst sækja íslendinga heim í
næsta mánuði. Það er orðinn fastur
liður i starfsemi sveitarinnar að
skemmta Norðurlandabúum á ári
hverju. Verður þctta i annað skiptið
sem Platters koma hingað til lands.
Það er Þorsteinn Viggósson, veit-
ingantaður i Kaupmannahöfn, sem
sftndur fyrir heimsókn Platters, eins
og í fyrra. Hann sagði i samtali við
blaðamann DB í gærkvöld að söng-
sveitin héldi þrjá konserta að þcssu
sinni.
„Platters konta eingöngu frant í
Háskólabiói í þetta skiptið,” sagði
Þorsteinn. „Reynslan frá þvi i fyrra
að fara með þau til Keflavikur og á
Hótcl Sögu var nijög slæm og
hleypti öllum kostnaði mjög upp. Ég
stefni á að Platters komi fram dagana
8., 9. og 10. október.”
Þorsteinn sagði að reynslan frá
Danmörku og Svíþjóð sýndi að
aðsókn ykist á hljómleika Platters
eftir því sem þau kæmu oftar.
,,Þau voru með tvo konserta á
Sheraton nú fyrir stuttu. Það seldist
upp á þá á þremur eða fjórum
dögum. í fyrra tók það upp undir
mánuð að fylla salinn tvisvar,” sagði
Þorsteinn. — Ný hljómsvcit leikur nú
undir með Platters.
Þorsteinn Viggósson kvaðst ekki
hafa á prjónunum að flytja fleiri
skcmmtikrafta til Islands að sinni.
Unt tima var hann að velta þ<u fyrir
sér að efna til hljómleika með dönsku
hljómsveitinni Shu bi dua. Það
reyndist ekki vera hagkvæmt vegna
flutningskostnaðar. -ÁT-
Sunnudagslærið
á52 krónurkg
í dag hækkar kjötið i verði. Smá-
söluverðiö hækkar um 15—18% en
bændur fá 7,66% hækkun. Niður-
greiðslukerfið veldur því hins vegar
að kjötið hækkar meira tii neytenda (
en um það sem bændur fá. Læri eða
hryggur í sunnudagsmatinn kemur til
með að kosta 52 krónur kílóið, heilir
skrokkar 41 krónu og slátur með
haus 38,60. Innmatur hækkar minnst
i verði, um 8,48%. Er það vegna þess
að innmatur er ekki niðurgreiddur.
Ekki er búið að reikna út nýtt verð
á mjólk en við þvi er búizt eftir helg-
ina. Búizt er við að hækkun á því
verði litil. Kartöflur lækka hins vegar
iverðiánæstunni. -DS.
Busavlgsla var I Menntaskólanum I Kópavogi og voru busar þú teknir l heldri manna tölu. Ekki voru allir jafhfúsir til að
ganga I það samfélag og sumum þurfti að dýfa ofan l vizkubrunninn, þar eð þeir vildu ekki bergja ú honum.
-SA/DB-mynd: Sig. Þorri.
Ályktun stjómar Lögreglufélags Reykjavíkur:
Gæzla geðsjúklinga
ekki lögreglustarf
— né heldur vaktir lögreglumanna á slysadeild um helgar
Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur
gerði í gærkvöldi ályktun, sem send
verður lögreglustjóra, en i henni er
mótmælt gæzluvöktum lögreglu-
manna yFir sjúklingum, aðallega geð-
sjúkum. Einnig er mótmælt vöktum
lögreglumanna á slysadeild Borgar-
spítalans um helgar.
„Með þessum gæzluvöktum eru
lögreglumenn að ganga inn á verk-
svið annarra stétta, en starfsrétt
þeirra viljum við virða,” sagði Björn
Sigurðsson, formaður Lögreglufé-
lagsins.
,,Inni á sjúkrahúsum erum við
ekki lengur undir stjórn okkar varð-
stjóra heldur lútum stjórn starfsfólks
sjúkrahúsanna. Gæzla yfir sjúkling-
um er hjúkrunarstarf sem eðlilegast
er að sjúkraliðar og/eða gæzlumenn
annist.”
Björn kvað stjórn Lögreglufélags-
ins líta það alvarlegum augum að
starfsöryggi lögreglumannsins væri
rofið þegar honum væri skipað til
starfa á sjúkrahúsi, starfaði þar í
engum tengslum við yfirboðara sina í
lögreglunni en yrði að lúta annarra
stjórn.
Björn sagði að framhald þessarar
samþykktar Lögreglufélagsins helg-
aðist af viðbrögðum lögreglustjór-
ans. í ályktuninni væri vakin athygli
hans á miklum vanda. Ekki væri um
neina verkfallsboðun að ræða.
Almennur félagsfundur myndi vænt-
anlega síðar fjalla um málið.
Á fundi stjórnar Lögregluféíags
Reykjavíkur í gær var ennfremur
rætt um seinagang er varðaði kæru
stjórnar félagsins vegna ummæla í
Dagblaðinu, sem höfð voru eftir
einum lækni Borgarspítalans og mjög
vörðuðu lögreglumenn. Upplýstist að
málið er nú hjá saksóknara til
ákvörðunar en rannsókn rannsóknar-
lögreglustjóra liggur fyrir í málinu.
Sjö mánuðir eru síðan þetta mál var
kært.
-A.St.
frjálst, óháð dagblað
FIMMTU DAGUR 17. SEPT. 1981.
Girðingarleysið á
Litla-Hrauni:
Fáum smá-
slettur
af og til
— en þær duga hvergi
til að reisa almenni-
lega girðingu
„Samgangur fanganna á Litla-
Hrauni við Eyrarbakka hefur verið
miklu minni hér undanfarin átta ár en
var á árum áður,” sagði Helgi Gunn-
arsson, forstjóri fangelsisins, i samtali
við DB í morgun í framhaldi af viðtali
við oddvita Eyrarbakkahrepps í
blaðinu í gær. Þar var deilt hart á
„gæzuleysi” á Litla-Hrauni og kvartað
yfir því að fangar á Litla Hrauni gengju
því sem næst lausir utan sjálfra múr-
an'na.
„Fangelsið á allt land þar sem okkar
starfsemi fer fram,” sagði Helgi. „Við
höfum skipt á landi við hreppinn,
þannig að af þvi þarf ekki að hafa
áhyggjur. En það er nú ekki lengra
síðan en í fyrravetur að útgerðarfélögin
á Eyrarbakka lágu í mér um að fá
mannskap í skreið og saltfisk. Áður
fyrr önnuðust fangarnir hér t.d. allan
þaraflutning í kálgarða Eyrbekkinga,
unnu í fiskvinnslunni hjá þeim, sáu um
gripahirðingu og mönnuðu jafnvel bát-
ana. Þetta hefur allt breytzt síðan ég
tók hér við svo ekki þarf að kvarta yfir
því.”
Helgi sagðist jafnframt hafa verið
fyrsti maðurinn sem hefði gert alvarleg-
ar tilraunir til að fá mannhelda girð-
ingu utan um land fangelsisins. Þeim
tilraunum hefði verið haldið áfram all-
ar götur síðan en stöðugtfengjust nei-
kvæð svör yfirvalda. Að vísu hefði
hann fengið „smáslettur öðru hvoru”
en það dygði ekki til að byggja girðingu
er risi undir nafni.
Mishermt var eftir Kjartani
Guðjónssyni í DB í gær að girðingar-
leysið mætti skrifa á reikning fangelsis-
forstjórans. Það sem Kjartan átti við
var það sem hann taldi slaka gæzlu
fanganna í útivist.
-ÓV.
p* a rcq (TTí
m sz. lyiN Q NIN a 3UR
IVIKU HVERRI
Áskrifendur
DB athugið
Vinningur I þessari vikur er 10
gíra Raleigh reiðhjól frú Fúlkan-
um, Suðurlandsbraut 8 Reykjavlk,
og hefur hann verið dreginn út.
Ncesti vinningur verður kynntur I
blaðinu ú múnudaginn.
Nýir vinningar verða dregnir út
vikulega nœstu múnuði.
hressir betur.