Dagblaðið - 19.09.1981, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981.
í stað góða, gamla
eldhússborðsins
Skólar landsins eru sem óðast að
hefja störf þessa dagana. Nemend-
urnir eru komnir heim með bækurnarj
sem þeir eiga að læra úr og hvers|
konar verkefni bíða þeirra. Auðvitað
er gott og blessað að læra við góða,
gamla eldhúsborðiö þegar ekki er
verið að nota það til annars. Eða þá
að liggja á maganum inni á gólfi. En
við fengum Sigurð Má Helgason
sölustjóra í Pennanum til þess að
sýna okkur hvað hægt er að gera ef
menn vilja hvorugan-þann möguleika
nýta. Annars vegar litum við á ódýrt
og lítið skrifborð og hins vegar á dýr-
araogstærraborð. -DS.|
Þarsem
pláss
erlftið
Þetta skrifborð hentar vel þar sem
lítið pláss er. Það er 80 sentimetra
bréitt og 140 sentimetrar á lengd. Því
fylgir ein skúffu- eða skápasamstæða
eins og sést á myndinni. Borðið kost-
ar 2800—3200 eftir viðartegundum.
Stóllinn við það er íslenzkur og afar
ódýr. Hann kostar 747 krónur. Hægt
er að hækka eða lækka setuna eftir
vild og hentar þvi stóllinn börnum á
öllum aldri. Að öðru leyti er ekki
hægt að stilla hann. Bókastatífið á
borðinu kostar 141,50. Bastkarfan
undirruslið kostarsíðan 129,50. -DS.
Dýrara og
plássmeira
Þessi útfærsla er nokkru dýrari en
hin. Borðið er stærra, 80sinnum 160,
og því fylgja tvær skúffu- eða skápa-
samstæður. Hægt er þó að fá það
með aðeins einni og er það þá aðeins
60 krónum dýrara en litla borðið.
Skáp eða skúffu er svo hægt að
kaupa seinna á 1500—1800 krónur.
Borðið, eins og það er á myndinni,
kostar 4400 til 5000 krónur. Stóllinn
við það kostar 2040 krónur. Hægt er
að stilla hæð á setu, halla hennar,
halla baks og stífni þess og hæð. Dýr
en ákaflega góð mubla. Statifið undir
penna og annað á borðinu kostar
79,80. Á öll skrifborð Pennans er
hægt að fá læsingu fyrir 144 krónur.
Hægt er að læsa öllum skúffum og
skápum íeinumeðhenni. -DS.
Kostnaður aukizt
mikið síðustu
mánuði
Akureyrlngur skrifar:
Ég sendi hér fyrsta seðilinn minn.
Ég hef lengi ætlað að vera með en
ekki komið því á fyrr en nú. Þó hef
ég haldið heimilisbókhaldi saman í
langan tíma. Dagbókin hefur þó
freistað mín aö gera betur.
Mér þy kir kostnaður við heimilis-
hald hafa aukizt mjög hratt á sið-
ustu mánuðunt. Til dæmis fóru í
maí í 3.125,90 í mat og hreinlætis-
vörur en núna í ágúst 4.360,30. Þar
munar 1234,40 krónum og átti ég
þó meira í frystiskápnum.
Kostnaðurinn við annaö flokkast
þannig. Bensín 950, sem er óvenju
há upphæð þar sem við vorum
fjögur sem notuðum bílinn til
ýmissa snúninga. Tóbak 671,70,
sem er meðalkostnaður á mánuði
fyrir tvo. Sælgæti 95,65. Gjafir
Raddir
neytenda
844,60, þær eru tvær stórar
afmælisgjafir og tvær minni. Föt
507,90. Þinggjöld og útsvar 5.404.
Svona líta minir reikningar út.
Það má engu muna að endar nái
saman. Þó vinnum við tvö fyrir
heimilinu. Bðrnin eru þrjú, 19, 18
16 ára. Þau eldri eru að setja saman
heimili svo þau hafa ekki verið
látin borga heim. Sá yngsti vinnur
rétt fyrir skólagjöldum og fötum á
sig.
Næsta mánuð verðum við bara 3.
Ég er spennt að sjá hvernig bók-
haldið kemur út. Við höfum aldrei
veriö svo fá í heimili siðan ég fór að
búa.
Mikill munur á verði á gólfkorki:
Dúkuráheilt her
bergi fyrir
Við höfum oft sagt og segjum
enn að það borgar sig aldeilis að
athuga verð á hlutunum á fieiri en
einum stað áður en keypt er.
Þannig hafði á dögunum samband
við okkur maður utan af landi sem
hafði komið í bæinn, meðal annars
til að kaupa kork á gólfin í húsinu
sínu. Hann vildi hafa korkinn
óvinilhúðaðan og fór i Málarann
þar sem slíkur korkur kostaði 195
krónur fermetrinn. Kunningi
mannsins benti honum siðan á að í
mismuninn
Litnum væri korkurinn mun
ódýrari. Reyndist það rétt vera þvi
þar kostaði hann 134 krónur fer-
metrinn. Var í báðum tilfellum um
portúgalskan dúk að ræða og mjög
svipaðan að dómi mannsins.
Maðurinn sagðist hafa þurft að
kaupa það mikiö af dúk að fyrir
verðmuninn í Litnum og Málar-
anum þefði hann getað fengið
dúk á heilt herbergi. Munar hreint
ekki svo lítið um 61 krónu mun
fyrir hvem fermetra. -DS.
Öf lug Neytendasamtök
með fleiri félögum
Neytendasamtökin hafa að
undanförnu verið að hvetja fólk til
þess að koma til liðs við sig. Bent er
á að þau eru eini óháði aðilinn sem
gæti staðið vörn um hagsmuni neyt-
enda. En til þess að svo verði þarf
að fjölga verulega i samtökunum.
•Þá aðeins að neytendasamtökin
verði breið almenningssamtök geta
þau áorkað einhverju i átt til bóta
fyrir neytendur. Menn geta gengið i
samtökin með þvi að skrifa i póst-
hólf 1096 í Reykjavík eöa hringja í
. síma21666. ,j)S.
Linguaphone:
Daglegt mál á plötum eða snældum
Ef þú ætlar þér á erlenda grund og
vilt geta talað ögn við innfædda er
Linguaphone námskeiðið kannski
svolitið sniðugt. Með Linguaphone er
hægt að læra að tala það sem kallað
er daglegt mál án þess að geta þó rætt
um sérfræðileg efni. Þú getur pantað
þér mat, borgað hann og þakkað
fyrir og jafnvel rætt um veðrið. En
vanti þig að'vita allt um leyndustu
þræði tölv ufyrirtækis gætirðu lent á
gati.
Linguaphone námskeiðin eru
byggð upp annars vegar á 4 snældum
(kassettum) eða 21 lítilli plötu og hins,
vegar af textabókum og málfræði-
bókum. Hægt er að fá öll Norður-
landamálin, þýzku, frönsku, spænsku,
itölsku, portúgölsku, hebresku, kín-'
versku, japönsku, rússnesku og
grísku. Námið er byggt upp á þann
hátt að fólk les textann í bókunum og
hlustar síðan á hann af plötum.
Byggist námið auðvitað fyrst og
fremst á því að endurtaka nógu oft'
það sem verið er að læra. Því er
nauðsynlegt að hafa plötuspilara eða!
snældutæki sem hægt er að hafa á
borðinu fyrir framan sig og stilla
jafnóðum. Hér á árum áður var þaðj
algengara að menn keyptu plöturnar
en nú hefur dæmið snúizt við með
öllum litlu snælduböndunum og
menn vilja heldur snældur.
Linguaphone fæst í Hljóðfærahús-
inu og kostar 905 krónur námskeiðið.
-DS.
Enskunámskeiö í Linguaphone er
byggt upp af fjórum snældum eða 21
plötu, myndskreyttri bók meö þeim
texta sem lesinn erensk-danskrihand-
bók með skýringum viö hvern kafla,
æfingabók með skriflegum æfingum
og svörum og ensk-islenzku oröa-
safni. Önnur námskeiö eru byggð
upp á svipaðan hátt.