Dagblaðið - 19.09.1981, Síða 9
I
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1981.
9
N
þátttöku í Manchester vegna þreytu,
en í staðinn bættust í stórmeistara-
hópinn Kuligowski (Póllandi) og
Júgóslavinn Ciric — Að vísu ekki
góð skipti, en fleiri alþjóðameistarar
bættu það upp.
Tony Miles, sem íslendingum er að
góðu kunnur frá Reykjavíkurskák-
mótunum 1978 og 1980, var einn um
að skera sig verulega úr hópnum.
Hann fór vel af stað, tefldi vel um
miðbik mótsins og tók góðan enda-
sprett. Með öðrum orðum: Hann var
óstöðvandi með öllu.
Miles hlaut 7 1/2 v. af 9 möguleg-
um, leyfði aðeins 3 jafntefli. í næstu
sætum komu Keene og rússnesku
Bandaríkjamennirnir Gurevich og
Kuorin, allir með 6 1/2 v. Með6v.
voru 5 skákmenn, en síðan komu
ásamt öðrum ofanritaður og Margeir
Pétursson með 5 1 /2 v.
Margeir tapaði í 1. umferð fyrir
Indverjanum Ravi Kumar svo engu
var líkara en að harmsagan frá
Lloyds Bank mótinu ætlaði að endur-
taka sig. En Margeir fór loks að sýna
lit og tapaði ekki annarri skák í ferð-
inni — vann 3 og gerði 5 jafntefli.
Hann var reyndar nálægt tapi gegn
ísraelska stórmeistaranum Kraid-
man, en hékk á jöfnu eftir að hafa
vegið salt á hengifluginu í nokkurn
tíma. E.t.v. varð það Margeiri til
happs í tímahrakinu i lokin, þegar
staða hans var sem verst, að enski
skákskríbentinn og dómarinn Harry
Golombek rann til og steyptist yfir
borð hans og Kraidmans — er Kraid-
manáttileik.
Sá er þetta ritar tapaði einnig
aðeins einni skák, gegn sigurvegaran-
um Miles, eftir 70 leikja barning. Að
öðru leyti var greinilega fyrir honum
komið eins og mörgum öðrum, —
taflmennskan ekki eins fersk og í
Tony Mlles.
London.
Þrátt fyrir mörg jafntefli, settu
nokkrir „delluskákmenn” sterkan
svip á mótið. Þá frægustu má telja al-
þjóðameistarana Basman frá Eng-
landi og ísraelsmanninn Murey, sem
áður var í aðstoðarmannaliði Ko rts-
nojs. Hann er ótrúlega hugmynda-
ríkur skákmaður og hugsar sig aldrei
um tvisvar ef athyglisverð og „spenn-
andi” leið er í boði. Basman vakti
hins vegar athygli fyrir frumlega
byrjanataflmennsku. Lék 1. g4 með
hvítu, en með svörtu svaraði hann 1.
e4 með 1. — g5 og eftir 1. d4 undir-
bjó hann framrás g-peðsins með 1. —
h6 — þannig náði hann m.a. jafntefli
gegn Kuligowski. Með hvítu mönn-
unum gekk honum aftur á móti allt í
óhag, tapaði 3 skákum, þar á meðal
fyrir Miles og Keene í samtals 42
leikjum. Keene þóttist hafa hrakið
fyrstaleik hans . . .
Hvitt: BASMAN.
Svart: KEENE.
Basmans byrjun.
1. g4 dS 2. h3 e5 3. Bg2 c6! 4. d4 e4 5.
c4 Bd6 6. Rc3 Re7
Hugmynd Keene grundvallast á því
að halda svörtu peði á d5-reitnum,
sem tryggir honum sterka aðstöðu á
miðborðinu og stingur jafnframt upp
í biskupinn á g2. Hvítur mun án efa
eiga í vandræðum með að finna
kóngi sínum húsaskjól. Á drottning-
arvæng er hætt við að línur muni
opnast og á kóngsvæng hefur hann
þegar veikt stöðu sína með 1. leikn-
um. Næsti leikur hvits kemur ein-
kennilega fyrir sjónir.
7. gS? Be6 8. h4 Rf5 9. Bh3 0-0 10.
cxd5 cxd5 11. Rxd5?
11. — Rg3!
Lítill millileikur sem Basman yfir-
sást. Hvita staðan hrynur.
12. Rf6+ gxf6 13. fxg3 Bxg3+ 14.
Kfl Rc6 15. Be3 Rb4 16. Kg2 Rd5 17.
Kxg3 Rxc3 18. Dd2 Dd6+ 19. Kf2
Df4+ 20. Rf3 exf3 og hvítur gafst
upp.
Hvítt: MUREY.
Svart: MARTIN.
Sikileyjarvörn.
I. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8.
0-0-0 h6 9. Rxc6!? bxc6 10. Bf4 d5
II. a3 Be7 12. Bd3 Bb7 13. h4 Rd7
14. exd5 cxd5 15. g4!? Bxh4 16. Kbl!
Ekki 16. g5? hxg5 17. Bxg5 Dxg5
o.s.frv. Nú hótar hvítur aftur á móti
17. g5. Svartur gerir líklega best með
því aðleika 16. — Hg8!?
.16. — Be7 17. g5 h5 18. g6! f6 19.
De2 Db6?
Betri vörn virðist fólgin í 19. —e5,
sérstaklega eftir framhaldið sem
Murey gaf upp eftir skákina: 20.
Hxh5?! Hxh5 21. Dxh5 exf4 22.
Rxd5 Bxd5 23. Dxd5 Re5 24. Dg8 +
Bf8 og svartur bægir mestu hættunni
frá. í stað 20. Hxh5 gæti hvítur reynt
20. Bf5!?
Eftir textaleikinn á svartur sér ekki
viðreisnar von.
20. Bf5! Rc5
Svartur átti tvo aðra möguleika:
A) 20. —exf5 21. Hhel Re5 22. Bxe5
fxe5 23. Dxe5 Df6 24. Dc7! og
vinnur.
B) 20. — Rf8 21. Hhel 0-0-0 22. Ra4
Dc6 23. Bxe6+ Rxe6 24. Dxe6 +
Dxe6 25. Hxe6 Kd7 26. Hdel Hde8
27. Rb6+ Kd8 28. Rxd5! Bxd5 29.
Hdl Kd7 30. Hxa6! og vinnur.
21. Hhel 0-0-0 22. Ra4! Dc6
Ef 22. — Rxa4, þá 23. Dxe6 +
Dxe6 24. Hxe6! og tjaldið fellur.
23. Rxc5 Bxc5 24. Dxe6 og svartur
gafst upp.
tíma flugþol
Hún er lltil og létt, svifflugvélin sem Fritz Schweiger og Ebergard Jehle I
Miinchen hafa hannað. Til viðbótar þeim kostum er hún með 28 hestafla hjálpar-
mótor og nœr mest 80 km á klukkustund. Svifflugan er aðeins 70 kg að þyngd og
hún hefur þriggja klukkustunda flugþol. Á 15 mlnútum má taka hana I sundur og
flytja milli staða I btl. Mikill áhugi er á þessari vél bœði innan V-Þýzkalands og
utan og eru fjöldamargir sagðir fúsir til aðfesta kaup á gripum af þessari tegund.
Liv Ullmann í ársfrífrá kvikmyndaleik:
Norska leikkonan Liv UUmann hefur
nú dregið sig út úr skarkala leiklistar-
innar og ætlar að beina kröftum sínum
að öðrum sviðum mannlífsins, í það
minnsta næstu 12 mánuði. Liv var
nefnilega nýlega útnefndur sérstakur
sendimaður barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna og sem slíkur þarf hún að
vera á þönum út um allan heim.
„Hollywood hefur ekki sama að-
dráttaraflog áður enég kynntist kjörum
barna víðs vegar um lönd,” segir Liv.
„Það eru til staðir á borð við Bangla-
desh og Austur-Afríku þar sem fátækt
og matarskortur meðal barna blasir við
fólki. Sú sjón fær mig til að gleyma
öllum vandamálum hins vestræna
heims.”
Liv Ullmann býr nú ásamt dóttur
sinni í New York og þótt Liv sé fræg
leikkona verður hún að eiga til hnífs og
skeiðar eins og annað fólk. Hún hyggst
þvi ekki hætta að leika i kvikmyndum
en hinu neitar hún ekki að henni dauð-
leiðist sá starfi.
Eiturslangan
svaf á verðinum
Dýrgripir og eðalsteinar heilla ætið
þjófa og því ætluðu forráðamenn
sýningar einnar í London aldeilis að
hafa vaðið fyrir neðan sig er opnuð
var sýning þar í borg á safírsteinum.
Þeir settu lifandi kóbraslöngu í gler-
búrið hjá stærsta saflrsteininum, en
sá var 393 karöt. Þjófar áttu ekki að
komast upp með að hnupla þessum
steini.
En þjófarnir komu meö krók á
móti bragði. Þeir stálu einfatdlega
fjórum safirsteinum sem voru í öðru
glerbúri, en þeir steinar voru metnir á
14.000 pund, jafnvirði 197.000
króna. Meðan allir voru uppteknir af
að horfa á slönguna hringa sig utan
um safírsteininn stóra komust þeir á
brott með feng sinn og hafa ekki sézt
síðan.
Forráðamenn sýningarinnar naga
sig nú i handarbökin og kenna kóbra
slöngunni um að hafa sofið á verðin-
um.
Júlíana á sjúkrahúsi eftir aðgerð
'sjúkrahúsinu í tvær vikur. Ekki vildu
stjórnvöld í Hollandi segja hvaða sjúk-
dómur hefði hrjáð Júlíönu en prinsess-
an er nú 72 ára. Hún sagði af sér völd-
um þann 30. apríl í fyrra og tók dóttir
hennar, Beatrix, þá við drottningarhá-
sætinu.
Júlíana Hollandsprinsessa gekkst ný-
lega undir vel heppnaða skurðaðgerð á
sjúkrahúsi í Utrecht, en hún verður á