Dagblaðið - 02.10.1981, Side 1
—mikill leki kom að skipinu erþað fór frá Vopnafirði—skipið þegar tekið
að grafast í fjörusandinn en stöðugt brýtur áþví
V
Flutningaskipið Mávur, 1379
tonna stálskip í eigu Pólarskipa á
Hvammstanga, sigldi upp í fjöru í
botni Vopnafjarðar um fimmleytið í
morgun. Hafði skipið verið að leggja
frá Vopnafirði með saltfisk, en mikill
leki kom að því er út á fjörðinn kom.
Var eina leiðin talin að renna því upp
í sandfjöruna í botni fjarðarins.
Mikið óveður hefur verið undan-
fama daga á þessum slóðum.
Foráttubrim var því á firðinum og er
skipið kom í fjöruna tók þegar að
brjóta á því, og hefur gert stanzlaust
síðan, en upp úr kl. 9 tók þó að
lægja.
Slysavarnadeildin Vopni kom
þegar á vettvang og undirbjó björgun
mannanna. Voru þeir allir komnir í
land um áttaleytið ómeiddir og hafði
ekki orðiðmeint af.
Pétur Olgeisson, formaður Vopna,
tjáði DB að foráttubrim hefði verið
er Mávi var rennt í fjöruna en vegna
lekans var skipið orðið hálffullt af
sjó er það kom í fjöruna.
Mið óveður hefur verið á Vopna-
fjarðarsvæðinu undanfarna daga.
Slitnaði Mávur frá bryggju á Vopna-
firði í fyrradag. Kom skiþið svo upp
að í gærkvöldi og tók meiri saltfisk,
m.a. frá Bakkafirði. Var mikill salt-
fiskur kominn í skipið en það átti þó
að minnsta kosti eftir að taka á
tveimur hðfnum áður en út yrði siglt
með fullfermi.
Að sögn Péturs Olgeirssonar er
sandfjara í Vopnafjarðarbotni en
þegar tók að brjóta á fermdu skipinu
þar sem það lá þversum fyrir vindátt
í fjörunni. Var það þegar farið að
grafast í sandinn og taldi Pétur að
það myndi grafast mikið á stuttum
tíma.
Lögreglumenn voru að kanna bllbeltanotkun þeirra sem óku austur Klepps■
veginn, framhjá Sundaborg, laust eftir hádegi I gœr, fyrsta dag lögleiðingarinnar.
Meirihluti þeirra sem þar áttu leið um notaði beltin. Dagblaðið rœddi við nokkra
þeirra ogfékk aðstoð lögreglunnar til að stöðva þá. Viðtölin birtast á blaðslðu 6.
DB-myndir: Kristján Örn.
Bílbeltanotkun í gær:
Helmingur ökumanna spennti
Á fyrsta degi lögbundinnar bíl-
beltanotkunar i landinu spennti
rúmur helmingur ökumanna beltin,
eða 51,6%, á þeim níu stöðum sem
lögreglan kannaði í gær. 43,5%
framsætisfarþega spenntu beltin.
ísfirðingar reyndust löghlýðnastir
landsmanna. Þrír af hverjum fjórum
ökumönnum þar í bæ óku með bil-
beltin spennt í gær. Kefvískir fram-
sætisfarþegar komu næstir og akur-
eyrskir ökumenn í þriðja sæti.
Vestmannaeyingar reyndust hins
vegar alveg sér á parti. Bílbelta-
notkun þar var langminnst, 9,1%
ökumanna og 2,8% framsætisfar-
þegasáu ástæðu til að spenna beltin.
,,Ég vil senda Eyjamönnum alveg
sérstakar kveðjur,” sagði Óli H.
Þórðarson, framkvæmdastjóri
Umferðarráðs í morgun. „Þó að
menn séu stórir og stæltir þá eru allir
jafnir í umferðarslysum,” sagði Óli.
t dag verður haldið áfram að
kanna bílbeltanotkun.
-KMU.
— sjábls.6
Veturkonungur
ífyrra lagi:
SNJÓROG
NÍSTINGS-
KULDIÁ
AUST-
FJÖRDUM
Egilsstaðabúar hafa
mátt búa við raf magns-
leysiíþrjárnætur
Vetur konungur hcfur nú heilsað
upp á Austfirðinga þó sumum finnist
það i fyrra lagi. Mjög kalt hefur verið
á Austfjörðum, snjóföl og hálka á
vegum. Einn ibúi á Egilsstöðum
sagði í samtali við DB i morgun að
kuldinn væri eins og hann gerist
verstur yfir veturinn, nístingskuldi
og hvassviðri. Þ ' hcfur ekki bætt úr
■.kák að rafmagi> iaust hefur verið i
þorpinu unvi •>r þrjár nætur og
þvi hvorki hiti né vatn. Hafa Egils-
staðabúar átt erntt rneð að skriða
undan sænginni á morgnana af þeim
sökum.
Á Akureyri fengum við þær frcgnir
að alira sæmilegasta veður væri þar.
Þar snjóaði aðeins í gær en í morgun
voru flestar götur auðar. „Það er
ágætt veður en kalt, svona norðan-
andvari,” sagði Guðbrandur
Magnússon, fréttaritari DB á Akur-
eyri.
Á Bolungarvík hefur verið allra
sæmilegasta veður, nokkurt frost en
stillt. Enginn snjór komið þar nema í
Ijöll. -ELA.
Skákeinvígiö íMeranó:
Kortsnoj
niðurbrotinn
maðurogKarpov
sigraði
auðveidiega
— sjálýsinguáfyrstu
skákinniíheims-
meistaraeinvíginu
eftirJón LÁrnason
ábls.8