Dagblaðið - 02.10.1981, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 02.10.1981, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981. Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþrottir íslandsmótið hefstíkvöld — Mikil starfsemi HSÍ í vetur og fjörug handknattleiksvertíð framundan Stjórn Handknattleikssambands íslands boðafli til blaðamannafundar i gær. Júlíus Hafstein, for- maður HSÍ, skýrði frá starfseminni i vetur og það verður mikið um að vera á þessu 25. starfsári HSÍ. Fjöimargir landsleikir hér heima og tekið þátt í mótum erlendis. Fyrstu keppnisförinni er heitið til Tékkóslóvakíu 2. nóvember en fyrsti landsleikurinn! hér heima 28. nóv. við Norðmenn. íslandsmótið i handknattieik hefst í kvöld með leik Þórs og Gróttu á Akureyri i 3. deild en fyrsti leikurinn i 1. deild verður fimmtudaginn 8. október miili íslandsmeistara Víkings og bikarmeistara Þróttar. Leikurinn var færður aftur um tvo daga vegna Evrópuleiks Þróttar. í tilefni 25 ára afmælis HSÍ verflur efnt til happdrættis til styrktar starfsemi sambandsins. Nánar verður greint frá íslandsmótinu og starfsemi HSÍ i DB eftir helgina. Butterfly-mót íborðtennis — í Laugardalshöll á moigun Butterfly-mótið i borðtennis verður haldið í aðal- sal Laugardalshallar laugard. 3. október 1981 og hefst kl. 14. Umsjón hefur stjórn BTÍ en mótstjóri verður Gunnar Jóhannsson. Verðlaun til mótsins eru gefin af Butterfly-umboðinu. Keppt verður i ölium flokkum, þó fer það eftir þátttöku hvort meistaraflokkur og fyrsti flokkur kvenna spila saman i fiokki. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi frá hverju félagi skilist til skrifstofu BTÍ íþróttamið- stöðinni Laugardal, box 864 fyrir kl. 11 laugard. 3. október, en þá verður dregið i töflu. Þátttökugjald er kr. 40,00 fyrir karla en kr. 30,00 fyrir unglinga. Raðað verður i töflu skv. lokapunktastöðu síðast- liflið vor. HSÍ-f undur dómara ogþjálfara Á laugardag 3. október kl. 10 heldur dómara- nefnd Handknattleikssambands íslands fund fyrir alla landsdómara og aðalþjálfara allra félaga i Tóna- bæ, Skaftahlíð 24. Fundarefni er dómgæzla með tilliti til hinna nýju leikreglna. Dómarar og þjálfarar eru hvattir til afl fjölmenna. 46. Spennandi í Noregi Mikil spenna er nú komin í 1. deildina í norsku knattspyrnunni. Rosenborg, sem verið hefur i efsta sæti lengst af, tapaði mjög óvænt á heimavelli fyrir nýliðum Haugar sem þar með unnu sinn annan leik í deildinni og geta enn bjargað sér frá falli. Lyn Oslo er fallið og Brann fer sennilega sömu leið. Þegar þrjár umferðir eru eftir stendur baráttan um norska meistaratitilinn milli Roscnborg, Valerengen og Moss. Víkingarnir hans Tony Knapp töpuðu um helgina og eiga nú nánast enga möguleika, hörmuleg markatala liðsins sér til þess. Úrslitin i 19. umferð um siðustu helgi urðu þessi: Lyn—Bryne 1- -2' Brann—Lilleström 3- -0 MosS—V alerengen 2- -2 Rosenborg—Haugar 0- -2 Start—Hamarkam 1- -1 Viking—Fredrikstad 0- -2 Staflan er nú þessi: Rosenborg 19 9 7 3 33-20 25 Valerengen 19 7 10 2 36-24 24 Moss 19 8 7 4 24-20 23 Viking 19 8 6 5 24-26 22 Fredrikstad 19 8 4 7 39-24 20 Bryne 19 6 8 5 24-24 20 Start 19 7 5 7 32-29 19, Hamarkam 19 7 4 8 19-18 18 Lilieström 19 4 10 5 21-22 18 Haugar 19 2 11 6 18-29 W1 Brann 19 4 5 10 17-37 13 Lyn Oslo 19 4 3 12 20-34 11 Á sunnudag leika Valerengen og Rosenborg á Bislett leikvanginum i Osló og gæti sá leikur ráðið úrslitum í deildinni. Þá leika einnig Viking og Moss í Stavangri. -VS. Páll Ólafsson, ungi landsliðsmaðurinn i Þrótti, skoraði grimmt gegn Kunsevo á dögunum. Getur orðið lykilmaður Þróttar f Evrópuleiknum. Fyrsti Evrópuleikurínn í sögu Þróttar: „Markmiðið að sigra þá norsku með 4-5 mörkum” — segir Ólaf ur H. Jónsson, fyrírliði og þjálfari Þróttar, sem leikur við Krístiansand í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik á sunnudag „Við hjá Þrótti höfum búið okkur vel undir þessu Evrópuleiki við norska liflifl Kristiansand og markmiðið er að sigra þá norsku með 4—5 marka mun í leiknum í Laugardalshöllinni á sunnu- daginn,” sagði Ólafur H. Jónsson, fyrirliði og þjálfari bikarmeistara Þróttar, þegar DB hafði samband við hann í gær. Á sunnudag kl. 20.00 verður fyrri leikur Þróttar og Kristian- sand i Evrópukeppni bikarhafa. Síðari leikurinn verður í Kristiansand sunnu- dag 11. október eða viku síðar. „Heimavöllurinn hefur mikið að segja og við verðum að ná þessu for- skoti, fjórum til fimm mörkum, ef við ætlum að' komast áfram í Evrópu- keppninni, í 2. umferð. Við byrjuðum strax í sumar undirbúning. Fórum í keppnisför til Vestur-Þýzkalands og lékum þar nokkra leiki. Meðal annars Danski leikmaðurínn hjá ÍR vakti athygli —þegar KR og ÍR léku á Reykjavíkurmótinu í handknattleik KR sigraði IR 18—16 i úrslitakeppni Reykjavíkurmótsins i handknattleik í fyrrakvöld. Nokkuð öruggur sigur. í lifli ÍR vakti Daninn Philip mikla athygll, skemmtilegur hornamaður sem flaug inn I teiginn, fékk knöttinn og skoraði. ÍR leikur sem kunnugt er í 2. deild en eins og liðið hefur leikið á Reykjavíkurmótinu ætti að vera létt hjá því að vinna sér sæti 11. deild á ný. KR-liðið er sterkt og bræðurnir Alfreð og Gunnar Gíslasynir skoruðu 11 af 18 mörkum liðsins gegn ÍR. Alfreð 6/1, Gunnar 5. Haukur Geir- mundsson og Friðrik Þorbjörnsson skoruðu tvö mörk hvor, Haukur Otte- sen, Jóhannes Stefánsson og Konráð Jónsson eitt mark hver. Mörk ÍR skoruðu Björn Björnsson 5/2, Philip 3, Sigurður Svavarsson 3/1, Guðmundur Þórðarson 2, Pétur Valdimarsson 2 og Einir Valdimarsson 1. í síðari leiknum á miðvikudagskvöld sigraði Víkingur Val 21—17. Sökum þrengsla i blaðinu í gær féllu út marka- skorarar liðanna. Fyrir Víking skoruðu Guðmundur Guðmundsson 5, Páll Björgvinsson 4, Steinar Birgisson 4, Ólafur Jónsson 3, Sigurður Gunnars- son 2, Árni Indriðason 2/1 og Þor- bergur Aðalsteinsson 1. Fyrir Val skoruðu Jón Pétur Jónsson 6/2, Þor- björn Guðmundsson 4/2, Theódór Guðfinnsson 4, Steindór Gunnarsson 2 og Gunnar Lúðvíksson 1. Staðan i úrslitakeppninni er nú þannig: Víkingur 2 2 0 0 43—34 4 Valur 2 1 0 1 36—35 2 KR 2 1 0 1 35—38 2 ÍR 2 0 0 2 30—37 0 Síðustu leikirnir verða á mánudags- kvöld í Laugardalshöllinni. Kl. 20.00 leika ÍR og Víkingur, síðan KR og Valur. Lið lögreglunnar I Reykjavik sem varð sigurvegari i Grmakeppni KR i knattspyrnu 1981. Fremri röð frá vinstri: Þórður Hilmarsson, Krístinn Petersen fyrirliði, Guðmundur Baldursson, Hörður Hafsteinsson, Þorsteinn G. Ólafsson. Aftari röð: Bjarki Eifasson yGrlögregluþjónn, Hörður Harðarson, Krístján Hilmarsson, Gauti Grétarsson, Óskar Bjartmarz formaður ÍFL, Magnús Einarsson aðstoðaryGrlögregluþjónn. Á myndina vantar Stefán Konráðsson og Brynjar Stefánsson. Liprír lögreglumenn Firmakeppni KR i knattspyrnu 1981 lauk um siðustu helgi með sigri lögregl- unnar í Reykjavik. Þátttökulið voru 45 og var leikið i niu riðlum. Spilað var sigruðu ífirmakeppni KR í knattspymu skóli og Áburflarverksmiðjan og sigr- aði Árbæjarskóli 6—0. í fyrra sigraði Kristján Skagfjörð i keppni þessari en komst ekki í úrslit afl þessu sinnii -VS. þvert á venjulegan knattspyrnuvöll með sjö leikmönnum i lifli. í úrslitaleik sigraði lögreglan Húsfélagið Engihjalla 4—2. Um þriðja sætið léku Árbæjar- við hið þekkta lið Nettelstedt. Töpuðum þeim leik með tveggja marka mun, 15—17, og það var allgóð frammistaða. Síðan kom nokkurt bak- slag á Reykjavikurmótinu. Við erum með nýja menn og það tekur tíma að þeir samlagist liðinu. En í leiknum við sovézka liðið Kunsevo voru þó greini- leg merki þess að þetta væri allt að smella saman hjá okkur svo ég er nokkuð bjartsýnn á árangur gegn norska liðinu. Ég veit talsvert um liðið. Það hefur fimm norska landsliðs- menn i liði sínu og ágætar langskyttur. Einnig góða vörn og við gerum okkur grein fyrir því að við megum ekki van- meta liðið. Það hefur gengið hjá því eins og Þrótti síðustu árin. Komst upp úr 2. deild 1979 og varð svo bikar- meistari Noregs 1981 eða i vor,” sagði Ólafur ennfremur. Lið Þróttar í Evrópuleikinn á sunnu- dag hefur verið valið og er skipað þessum leikmönnum. Markverðir Sig- urður Ragnarsson og Ólafur Benedikts- son. Aðrir leikmenn Ólafur H. Jóns- son, Páll Ólafsson, Sigurður Sveins- son, Jens Jensson, Jón Viðar Sigurðs- son, Magnús Margeirsson, Lárus Lárusson, Einar Sveinsson og svo tveir sem bera sama nafn, Gunnar Gunnars- son. í liði Þróttar eru þekktir landsliðs- garpar af eldri og yngri kynslóð hand- knattleiksmanna. Ólafur Benediktsson Ólafur H. Jónsson — fyririiði Þróttar og þjálfarí. leikur þarna sinn fyrsta stórleik með Þrótti. Stórsigur Standard Standard Liege vann stærsta sigurinn á Evrópumótunum í knattspyrnu, þegar liðið vann Floriana, Möltu, 9—0, í gærkvöld í Evrópukeppni bikarhafa. Leikurinn var háður i Liege. Staðan i hálfleik var 4—0. Standard sigraði 3— 1 á Möltu og því 12—1 samanlagt í báflum leikjunum. Þeir Vordeckers þrjú, Plessers 2, van der Snissen, Taha- mata, Graf og Arie Haan skoruðu mörk Standard í gær. SAMBANDSLEYSI VIÐ N0RÐURLÖND Norðurlandablöðin hafa varla birt úrslitin úr HM-leik íslands og Tékkóslóvakíu Það var álit flestra knattspyrnuunn- enda hér á landi að það mundi vekja mikla athygli erlendis þegar ísland og Tékkóslóvakía gerðu jafntefli í HM- leik sinunt á Laugardalsvelli á dögun- um. En það er öðru nær, þegar undan- skilin eru nokkur viðbrögð í þeim lönd- um sem eru í sama riðli og ísland og Tékkóslóvakía, einkum þó Wales. Jafnteflið gaf Wales-búum aukna möguleika á að komast í úrslitakeppni heimsmeistarakeppninnar á Spáni næsta sumar. Það virðist að mestu leyti sambands- laust við Norðurlöndin frá íslandi ef marka má viðbrögð blaða í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð við þessari frétt. Að minnsta kosti er það ekki dag- legur viðburður á knattspyrnusviðinu að smáþjóð nái stigi af núverandi ólympíumeisturum og fyrrverandi Evrópumeisturum (1976), eins og þarna átti sér stað. Flest blöð í Dan- mörku hafa ekki einu sinni getið úrslit- anna og er Politiken þar á meðal. Ekkert var minnzt á úrslitin i Ekstra- blaðinu danska daginn eftir leikinn. Tveimur dögum eftir hann birti blaðið úrslitin, ekkert meir. í Svíþjóð er alveg sömu sögu að segja. Stórblaðið Dagens Nyheter gat ekki um úrslit leiksins dag- inn eftir en var þó með úrslit úr öðrum HM-leikjum, sem háðir voru sama dag. Tveimur dögum eftir leikinn hafði blaðið sama hátt á og danska Ekstrablaðið. Sama er að segja um flest önnur sænsk blöð. Ekki var það skárra í norsku blöðun- um. Norska Dagblaðið birti fréttina, sem fylgir þessari grein, og þar voru úrslitin falin undir úrslitum í leik Sovét- ríkjanna og Tyrklands í sama riðli. Lagt út frá því að Wales hefði styrkt stöðu sína. Staðan í riðlinum hjá blaðinu röng. -hsím. Sovjet forbi Tsjekkoslovakia Moskva: Sovjet slo Tyrkia 4-0 i en VM-kvalifisermgskamp i fotball i Mosk- va onsdag kveld. Kampen ble spilt i pulje 3 Dermed har Sovjet meget store sjanser til á komme til sluttspillet i Spama neste ár Soviet har erobret S|u poeng pá fire kamper, og det danner en solid basis for avansement til sluttspillet. Málene ble lagd av Aleksander Tsji- vadse, Anatolij Demjanenko, Oleg Blokhin og Ramaz Sjengelia. Wales styrket sine sjanser til en plass i VM-sluttspillet i gár siden Tsjekkoslo- vakia noe overraskende ikke klarte mer enn uavgjort borte mot Island. Det betydde at Sovjet passerte tsjekkerne pá tabellen i gruppe 3 og russerne styrket sine VM-sjanser hjemme i Moskva. Sovjet hadde en mengde sianser, men misbrukte blant annet et stratfespark. Stillingen i pulie 3: Wales 5 4 10 10— 0 Sovjet 4 3 10 11— 1 Tsjekkoslovakia 5 3 11 12 3 Island 6 114 6—19 Tyrkia 6 0 0 6 0—17 Norska félagið KIF eða Kristiansand er stofnað 1921 og er því 60 ára á þessu ári. Aðalgrein félagsins er handknatt- leikur en einnig eru þar frjálsar iþróttir. Árangur liðsins í handknattleiknum hefur verið góður frá því það komst upp í 1. deild. Annað sæti 1980 í 1. deild og í vor þriðja sætið. Auk þess bikarmeistari. Heimavöllur liðsins er í Gimlehallen í Kristiansand, sem talinn er mikil „ljónagryfja”. Áhorfendur þar þekktir fyrir stuðning við liðið. En stuðningur við íslenzk lið í Evrópukeppni í Laugar- dalshöll er einnig orðlagður og ástæða er til að hvetja fólk til að mæta á þennan fyrsta Evrópuleik Þróttar og styðja vel við bakið á leikmönnum liðsins á sunnudagskvöld. -hsím. Pétur Ormslev — ekki skrífað undir Lárus Guðmundsson — Armenia Biele- feld vill fá hann strax. Pétur hefur samið skrifa þýzkir: „Tel lilklegt að það verði” —segir Atli Eðvaldsson „Nei, Pétur Ormslev hefur enn ekki skrifi undir samning við félagið og skrifað undir samning við Fortuna Dusseldorf og það hefur ekkert verið rætt um kaupverð milli hans og félags- ins. Hins vegar tel ég mjög líklegt að Pétur gerist atvinnumaður hjá félaginu innan tlðar,” sagði Atli Eðvaldsson, þegar DB ræddi við hann i morgun. Að sögn Viggós Sigurðssonar i Leverkusen var þvi slegið upp í þýzku blöðunum í morgun að Pétur væri orðinn atvinnu- maður hjá Fortuna Dusseldorf. Félagið hefði nú tvo íslenzka landsliðsmenn á sinum snærum. „Þjálfari Fortuna, Berger, fór til írlands ásamt öðrum manni frá félaginu til að fylgjast með Evrópuleik Dundalk og Fram en Willie Reinke fór hins vegar ekki. Pétur kom svo aftur til Diisseldorf ásamt Þjóðverjunum í gær en ekki var þá gengið frá neinum samningum við Pétur. Hann verður hér hjá Fortuna að minnsta kosti fram að HM-leiknum við Wales, sem verður 14. október í Wales. Ég hugsa að hann hann getur ekki nema bætt sig með því að vera hér við æfingar. Allir láta vel af Pétri hér og hann mun leika með vara- liðinu á þriðjudag. Þjóðverjarnir sögðu mér að Fram hefði Ieikið betur á irlandi en Dundalk. Dómari leiksins hefði beinlinis gefið írska liðinu tvö mörk — tvö rangstöðumörk. Síðan hefði Hafþór Sveinjónsson verið rekinn af velli og þar með voru mögu- leikar Fram úr sögunni. En það verður gaman að fylgjast með þróun mála hvað Pétur snertir hjá Fortuna Dússel- dorf. Það hlýtur að skýrast næstu daga,” sagði Atli ennfremur. Þá má geta þess, að Willie Reinke hafði samband við Lárus Guðmunds- son, unga landsliðsmiðherjann í Víking, og vildi strax fá hann til Vestur-Þýzkalands til liðs við Armenia Bielefeld, sem leikur í Bundeslígunni. Lárus er nú í Frakklandi ásamt félög- um sínum i Víking og getur verið að hann fari til V-Þýzkalands -hsím. Stórmót í körff ubolta — Portúgalir, Hollendingar og sennilega Finnar koma íbyrjun janúar — íslandsmótið hefst í kvöld með leik Njarðvíkur og Vals „Við höfum fengið endanlegt svar frá Hollendingum um að þeir munu koma hingað um áramótin og taka þátt í fjögurra liða móti,” sagði Einar Bollason, landsliðsþjálfari i körfu- knattleik, á blaflamannafundi í gær. „Portúgalar koma einnig og að öllum líkindum Finnar en endanlegt svar hefur ekki borizt frá þeim. Þá hafa Skotar beðið um að fá að taka þátt i þessu móti en við erum ekki sérstaklega hlynntir því þar sem þeir verða í riðli með okkur á Evrópumótinu í apríl.” Hér er um að ræða stórviðburð í islenzkum körfuknattleik. Hér eru sterkar þjóðir á körfuknattleikssviðinu á ferð og leikir gegn þeim ættu að geta komið landsliðinu að góðum notum fyrir Evrópukeppnina. Þar leikur ísland í C-riðli ásamt Skotum, írum, Egyptum, Austurriki og Ungverjalandi og verður leikið í Edinborg 26.—30. apríl á vori komanda. Næsta víst er að fjögurra liða mótið fer fram dagana 5.—7. janúar næst- komandi. Fyrstu leikirnir fara fram í Reykjavík en síðan er fyrirhugað að leika víðar, og koma þar Borgarnes, Njarðvík og Keflavík helzt til greina sem keppnisstaðir. Þess má geta að í kjölfar hins góða árangurs íslenzka landsliðsins í siðustu Evrópukeppni var því boðið að taka þátt í miklu móti í Grikklandi seinni hluta októbermán- aðar en vegna fjárhagsörðugleika varð körfuknattleikssambandið að afþakka þetta glæsilega boð. Unglingalandslið Hollands, sem talið er í hópi tíu beztu unglingaliða í Evrópu um þessar mundir, er væntan- legt hingað til lands þann 19. október og leikur hér þrjá leiki gegn íslenzkum jafnöldrum sínum. Að sögn Einars Bollasonar er markmiðið með því að leika gegn svo sterku liði það að læra semmest og búa piltana sem bezt undir framtiðina. íslandsmótið „Ég á von á því að keppnin í Úrvals- deildinni í vetur verði mun jafnari en í fyrra og af leikjunum í Reykjavíkur- mótinu sýnist mér að við megum búast við betri körfuknattleik nú en oftast áður,” sagði Kristbjörn Albertsson, nýkjörinn formaður KKÍ. Úrvalsdeildin hefst í kvöld með „sprengjuleik” íslandsmeistara Njarð- víkur og bikarmeistara Vals í Njarðvík og hefst leikurinn kl. 20. Á laugardag kl. 14 leika ÍR og KR og á sunnudags- kvöld kl. 20 leika Fram og ÍS. Báðir leikirnir fara fram í Hagaskóla. Ár- mann og ÍBK eiga að leika á sunnudag tkl. 14 í 1. deild og mikill spenningur ríkir í sambandi við Ármannsliðið þvi flestir leikmenn þess frá því í fyrra hafa gengið i önnur félög og ýmsar sögu- sagnir hafa verið á lofti um hvort Ármann mæti yfirleitt til leiks. Úr því fæst endanlega skorið þegar flautað verður til leiks á sunnudag. Ýmsar blikur eru nú á lofti í sam- bandi við niðurröðun leikja. Engir tímar hafa enn fengizt í íþróttahúsi Hagaskóla nema fyrstu vikur mótsins og eru forráðamenn KKÍ mjög óánægðir með frammistöðu ÍBR í mál- inu. Endanlega mótaskrá frá KKÍ er því ekki hægt að fá strax. Þá var lengi vel óvist hvort KKÍ fengi inni í Laugar- dalshöllinni í vetur vegna þess hve gólfið væri farið að gefa sig undan körfubúnaðinum. Á tímabili voru aðeins tveir möguleikar í stöðunni, körfuboltinn út eða gólfið út. Nú hefur þó verið ákveðið að henda körfuknatt- leiksmönnum ekki út í vetur hvað svo sem síðar verður. Sem kunnugt er hafa öll úrvals- deildarliðin fengið til liðs við sig er- lenda leikmenn. Meiðsli Stwart John- son setja þó strik í reikninginn hjá KR- ingum þar sem hann verður frá í sex til átta vikur. Enn er óvíst hvort KR-ingar fá annan leikmann í staðinn eða hefja mótið alíslenzkir. Vitað er um þrjá er- lenda leikmenn í 1. deildinni. Dakarsta Webster leikur með nýliðum Hauka, Mark Holines með Grindavík og Tim Higgins með Keflavik. Eftirtalin lið taka þátt í deildakeppn- inni: Úrvalsdeild: Njarðvík, Valur, ÍR, KR, ÍS og Fram. 1. deild: Ármann, Keflavík, Grindavík, Skallagrímur, Borgarnesi og Haukar, Hafnarfirði. 2. deild: A-riðill: Þór, Akureyri, Tinda- stóll, Sauðárkróki, KFÍ, ísafirði og ÍME Egilsstöðum. B-riðill: Vikingur Ólafsvík, UBK, Kópavogi, Bræður, Reykjavik, Akranes og Hörður, Patreksfirði. C-riðill: Léttir, Reykja- vík, Esja, Reykjavík, ÍV, Vestmanna- eyjum, og FH, Hafnarfirði. Fimm lið leika í 1. deild kvenna, KR, lR, ÍS, Laugdælir og Njarðvik. Til viðbótar senda Reykjaskóli og Reynir, Sand- gerði, lið í yngri flokkunt. ._________________-VS. Atletic Madríd slegidútíUEFA Atletico Madrid, Spáni, sigraði Boa- vista, Portúgal, 3—1 (1—1) í UEFA- keppninni í knattspyrnu í Madrid í gær. Dirceu, tvö, og Cano, víti, skoruðu mörk Atlctico en Diamantino mark portúgalska liðsins. Það sigraði samanlagt 5—4. Áhorfendur 25.000. y, Greinargerd frá Knattspymuráði Akraness: Akvörðun formanns KSI óvirðing við dómstólinn Blaðinu hefur borizt eftirfarandi greinargerð frá Knattspyrnuráði Akra- ness vegna kærumáls ÍA gegn KR, undirrituð af Jóni Runólfssyni, for- manni KRA. „Elns og flcstum knattspyrnuáhuga- mönnum mun nú kunnugt, þá er lokið máli því sem KRA stóð í gegn KR á dögunum. Vegna þess hve máli þessu voru gerð lítil skil í fjölmiðlum vill KRA gera stutta grein fyrir málinu eins og það lítur út frá okkar bæjardyrum séð. Til að spara rými þá verður hér aðeins stiklað á stóru og minnzt á aðal- atriði málsins. Eins og menn muna spruttu dell- urnar út af atviki í leik KR gegn ÍA í 1. deild þann 3.9. sl. Atvikið var i stuttu máli það að Óskar Ingimundarson fær rautt spjald fyrir að yfirgefa leikvöllinn i leyfisleysi (hann hafði fengifl gult spjald áður), eftir að hann fær rauða spjaldið er Atli Þór Héðinsson sendur inn á völlinn í stað Óskars. í knatt- spyrnulögunum segir að ekki megi setja leikmann inn á fyrir þann sem hefur verið rekinn af leikvelli. Á þeim for- sendum byggðum við okkar kæru. Okkur var ljóst að tvennt hafði gerzt. í fyrsta lagi setja KR-ingar mann inn á fyrir mann sem stuttu áður hafði fengið rautt spjald. Öllum sem hafa komið nálægt knattspyrnu hlýtur að vera Ijóst afl það má ekki. í öðru iagi gerist það að dómarinn gefur varamanni leyfi til að koma inn á, hann brýtur einnig lögin. í hita leiksins verða báðum aðilum á mistök á viðkvæmu augna- bliki, KR er nýbúið afl ná forystu i leiknum og Skagamenn leggja allt i það að jafna á síðustu mínútunum sem oft hafa reynzt liðinu drjúgar í sumar. Atvikið er síflan kært til sérráðsdóms KRR. Sá dómur tekur málið fyrir og sýknar KR-inga á alröngum forsendum (sjá meðfylgjandi Ijósrit). KRA sættir sig ekki við niðurstöðurnar og telur að spurningunni sé ósvarað. Við áfrýjum til dómstóls KSÍ. Dómurinn ákveður að 'hraða málinu, svo niðurstaða liggi fyrir áður en síðasti leikurinn í 1. deild fer fram. Það reynist ekki hægt þar sem KR biður um frest. Þá gerist sér- stakt atvik. Formaður KSÍ tilkynnir það í Morgunbiaðinu að verðlaun í íslandsmótinu verði afhent að loknum leik Víkings og KR þrátt fyrir kæru okkar, sem e.t.v. hefði getað breytt röð efstu liða. Úr því að Vikingur vann KR þá var að sjálfsögðu hægt að afhenda þeim verðskulduð sigurlaun en öðru máli gegndi um Framara, þeir lóku á móti verðlaunum, sem þeir áttu á hættu að missa nokkrum dögum síðar, eða hvað? Þessi ákvörðun formannsins er að okkar mati óvirðing við dómstól KSÍ, svo ekki sé meira sagt. Það liggur í augum uppi að dómstóllinn er i miklu erfiðari aðstöðu til að kveða upp hlut- lausan dóm í svona stöðu. Áfrýjun er síðan tekin fyrir og dómur upp kveð- inn: KR sýknað. Að okkar mati eru dómsniðurstöður svo loðnar að spurningunni er enn ósvarað: Má setja mann inn á i stað þess sem rekinn er út af?”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.