Dagblaðið - 02.10.1981, Page 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþrottir
íslandsmótið
hefstíkvöld
— Mikil starfsemi HSÍ í vetur og
fjörug handknattleiksvertíð
framundan
Stjórn Handknattleikssambands íslands boðafli
til blaðamannafundar i gær. Júlíus Hafstein, for-
maður HSÍ, skýrði frá starfseminni i vetur og það
verður mikið um að vera á þessu 25. starfsári HSÍ.
Fjöimargir landsleikir hér heima og tekið þátt í
mótum erlendis. Fyrstu keppnisförinni er heitið til
Tékkóslóvakíu 2. nóvember en fyrsti landsleikurinn!
hér heima 28. nóv. við Norðmenn.
íslandsmótið i handknattieik hefst í kvöld með
leik Þórs og Gróttu á Akureyri i 3. deild en fyrsti
leikurinn i 1. deild verður fimmtudaginn 8. október
miili íslandsmeistara Víkings og bikarmeistara
Þróttar. Leikurinn var færður aftur um tvo daga
vegna Evrópuleiks Þróttar. í tilefni 25 ára afmælis
HSÍ verflur efnt til happdrættis til styrktar starfsemi
sambandsins. Nánar verður greint frá íslandsmótinu
og starfsemi HSÍ i DB eftir helgina.
Butterfly-mót
íborðtennis
— í Laugardalshöll á moigun
Butterfly-mótið i borðtennis verður haldið í aðal-
sal Laugardalshallar laugard. 3. október 1981 og
hefst kl. 14. Umsjón hefur stjórn BTÍ en mótstjóri
verður Gunnar Jóhannsson. Verðlaun til mótsins
eru gefin af Butterfly-umboðinu. Keppt verður i
ölium flokkum, þó fer það eftir þátttöku hvort
meistaraflokkur og fyrsti flokkur kvenna spila
saman i fiokki.
Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi frá
hverju félagi skilist til skrifstofu BTÍ íþróttamið-
stöðinni Laugardal, box 864 fyrir kl. 11 laugard. 3.
október, en þá verður dregið i töflu. Þátttökugjald
er kr. 40,00 fyrir karla en kr. 30,00 fyrir unglinga.
Raðað verður i töflu skv. lokapunktastöðu síðast-
liflið vor.
HSÍ-f undur dómara
ogþjálfara
Á laugardag 3. október kl. 10 heldur dómara-
nefnd Handknattleikssambands íslands fund fyrir
alla landsdómara og aðalþjálfara allra félaga i Tóna-
bæ, Skaftahlíð 24.
Fundarefni er dómgæzla með tilliti til hinna nýju
leikreglna. Dómarar og þjálfarar eru hvattir til afl
fjölmenna.
46.
Spennandi í Noregi
Mikil spenna er nú komin í 1. deildina í norsku
knattspyrnunni. Rosenborg, sem verið hefur i efsta
sæti lengst af, tapaði mjög óvænt á heimavelli fyrir
nýliðum Haugar sem þar með unnu sinn annan leik í
deildinni og geta enn bjargað sér frá falli. Lyn Oslo
er fallið og Brann fer sennilega sömu leið. Þegar
þrjár umferðir eru eftir stendur baráttan um norska
meistaratitilinn milli Roscnborg, Valerengen og
Moss. Víkingarnir hans Tony Knapp töpuðu um
helgina og eiga nú nánast enga möguleika, hörmuleg
markatala liðsins sér til þess.
Úrslitin i 19. umferð um siðustu helgi urðu þessi:
Lyn—Bryne 1- -2'
Brann—Lilleström 3- -0
MosS—V alerengen 2- -2
Rosenborg—Haugar 0- -2
Start—Hamarkam 1- -1
Viking—Fredrikstad 0- -2
Staflan er nú þessi:
Rosenborg 19 9 7 3 33-20 25
Valerengen 19 7 10 2 36-24 24
Moss 19 8 7 4 24-20 23
Viking 19 8 6 5 24-26 22
Fredrikstad 19 8 4 7 39-24 20
Bryne 19 6 8 5 24-24 20
Start 19 7 5 7 32-29 19,
Hamarkam 19 7 4 8 19-18 18
Lilieström 19 4 10 5 21-22 18
Haugar 19 2 11 6 18-29 W1
Brann 19 4 5 10 17-37 13
Lyn Oslo 19 4 3 12 20-34 11
Á sunnudag leika Valerengen og Rosenborg á
Bislett leikvanginum i Osló og gæti sá leikur ráðið
úrslitum í deildinni. Þá leika einnig Viking og Moss í
Stavangri.
-VS.
Páll Ólafsson, ungi landsliðsmaðurinn i Þrótti, skoraði grimmt gegn Kunsevo á
dögunum. Getur orðið lykilmaður Þróttar f Evrópuleiknum.
Fyrsti Evrópuleikurínn í sögu Þróttar:
„Markmiðið að sigra þá
norsku með 4-5 mörkum”
— segir Ólaf ur H. Jónsson, fyrírliði og þjálfari Þróttar, sem leikur við Krístiansand
í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik á sunnudag
„Við hjá Þrótti höfum búið okkur
vel undir þessu Evrópuleiki við norska
liflifl Kristiansand og markmiðið er að
sigra þá norsku með 4—5 marka mun í
leiknum í Laugardalshöllinni á sunnu-
daginn,” sagði Ólafur H. Jónsson,
fyrirliði og þjálfari bikarmeistara
Þróttar, þegar DB hafði samband við
hann í gær. Á sunnudag kl. 20.00
verður fyrri leikur Þróttar og Kristian-
sand i Evrópukeppni bikarhafa. Síðari
leikurinn verður í Kristiansand sunnu-
dag 11. október eða viku síðar.
„Heimavöllurinn hefur mikið að
segja og við verðum að ná þessu for-
skoti, fjórum til fimm mörkum, ef við
ætlum að' komast áfram í Evrópu-
keppninni, í 2. umferð. Við byrjuðum
strax í sumar undirbúning. Fórum í
keppnisför til Vestur-Þýzkalands og
lékum þar nokkra leiki. Meðal annars
Danski leikmaðurínn
hjá ÍR vakti athygli
—þegar KR og ÍR léku á Reykjavíkurmótinu í handknattleik
KR sigraði IR 18—16 i úrslitakeppni
Reykjavíkurmótsins i handknattleik í
fyrrakvöld. Nokkuð öruggur sigur. í
lifli ÍR vakti Daninn Philip mikla
athygll, skemmtilegur hornamaður sem
flaug inn I teiginn, fékk knöttinn og
skoraði. ÍR leikur sem kunnugt er í 2.
deild en eins og liðið hefur leikið á
Reykjavíkurmótinu ætti að vera létt
hjá því að vinna sér sæti 11. deild á ný.
KR-liðið er sterkt og bræðurnir
Alfreð og Gunnar Gíslasynir skoruðu
11 af 18 mörkum liðsins gegn ÍR.
Alfreð 6/1, Gunnar 5. Haukur Geir-
mundsson og Friðrik Þorbjörnsson
skoruðu tvö mörk hvor, Haukur Otte-
sen, Jóhannes Stefánsson og Konráð
Jónsson eitt mark hver. Mörk ÍR
skoruðu Björn Björnsson 5/2, Philip 3,
Sigurður Svavarsson 3/1, Guðmundur
Þórðarson 2, Pétur Valdimarsson 2 og
Einir Valdimarsson 1.
í síðari leiknum á miðvikudagskvöld
sigraði Víkingur Val 21—17. Sökum
þrengsla i blaðinu í gær féllu út marka-
skorarar liðanna. Fyrir Víking skoruðu
Guðmundur Guðmundsson 5, Páll
Björgvinsson 4, Steinar Birgisson 4,
Ólafur Jónsson 3, Sigurður Gunnars-
son 2, Árni Indriðason 2/1 og Þor-
bergur Aðalsteinsson 1. Fyrir Val
skoruðu Jón Pétur Jónsson 6/2, Þor-
björn Guðmundsson 4/2, Theódór
Guðfinnsson 4, Steindór Gunnarsson 2
og Gunnar Lúðvíksson 1.
Staðan i úrslitakeppninni er nú
þannig:
Víkingur 2 2 0 0 43—34 4
Valur 2 1 0 1 36—35 2
KR 2 1 0 1 35—38 2
ÍR 2 0 0 2 30—37 0
Síðustu leikirnir verða á mánudags-
kvöld í Laugardalshöllinni. Kl. 20.00
leika ÍR og Víkingur, síðan KR og
Valur.
Lið lögreglunnar I Reykjavik sem varð sigurvegari i Grmakeppni KR i knattspyrnu 1981. Fremri röð frá vinstri: Þórður
Hilmarsson, Krístinn Petersen fyrirliði, Guðmundur Baldursson, Hörður Hafsteinsson, Þorsteinn G. Ólafsson. Aftari röð:
Bjarki Eifasson yGrlögregluþjónn, Hörður Harðarson, Krístján Hilmarsson, Gauti Grétarsson, Óskar Bjartmarz formaður
ÍFL, Magnús Einarsson aðstoðaryGrlögregluþjónn. Á myndina vantar Stefán Konráðsson og Brynjar Stefánsson.
Liprír lögreglumenn
Firmakeppni KR i knattspyrnu 1981
lauk um siðustu helgi með sigri lögregl-
unnar í Reykjavik. Þátttökulið voru 45
og var leikið i niu riðlum. Spilað var
sigruðu ífirmakeppni KR í knattspymu
skóli og Áburflarverksmiðjan og sigr-
aði Árbæjarskóli 6—0. í fyrra sigraði
Kristján Skagfjörð i keppni þessari en
komst ekki í úrslit afl þessu sinnii -VS.
þvert á venjulegan knattspyrnuvöll
með sjö leikmönnum i lifli. í úrslitaleik
sigraði lögreglan Húsfélagið Engihjalla
4—2. Um þriðja sætið léku Árbæjar-
við hið þekkta lið Nettelstedt.
Töpuðum þeim leik með tveggja marka
mun, 15—17, og það var allgóð
frammistaða. Síðan kom nokkurt bak-
slag á Reykjavikurmótinu. Við erum
með nýja menn og það tekur tíma að
þeir samlagist liðinu. En í leiknum við
sovézka liðið Kunsevo voru þó greini-
leg merki þess að þetta væri allt að
smella saman hjá okkur svo ég er
nokkuð bjartsýnn á árangur gegn
norska liðinu. Ég veit talsvert um
liðið. Það hefur fimm norska landsliðs-
menn i liði sínu og ágætar langskyttur.
Einnig góða vörn og við gerum okkur
grein fyrir því að við megum ekki van-
meta liðið. Það hefur gengið hjá því
eins og Þrótti síðustu árin. Komst upp
úr 2. deild 1979 og varð svo bikar-
meistari Noregs 1981 eða i vor,” sagði
Ólafur ennfremur.
Lið Þróttar í Evrópuleikinn á sunnu-
dag hefur verið valið og er skipað
þessum leikmönnum. Markverðir Sig-
urður Ragnarsson og Ólafur Benedikts-
son. Aðrir leikmenn Ólafur H. Jóns-
son, Páll Ólafsson, Sigurður Sveins-
son, Jens Jensson, Jón Viðar Sigurðs-
son, Magnús Margeirsson, Lárus
Lárusson, Einar Sveinsson og svo tveir
sem bera sama nafn, Gunnar Gunnars-
son. í liði Þróttar eru þekktir landsliðs-
garpar af eldri og yngri kynslóð hand-
knattleiksmanna. Ólafur Benediktsson
Ólafur H. Jónsson — fyririiði Þróttar
og þjálfarí.
leikur þarna sinn fyrsta stórleik með
Þrótti.
Stórsigur Standard
Standard Liege vann stærsta sigurinn
á Evrópumótunum í knattspyrnu,
þegar liðið vann Floriana, Möltu, 9—0,
í gærkvöld í Evrópukeppni bikarhafa.
Leikurinn var háður i Liege. Staðan i
hálfleik var 4—0. Standard sigraði 3—
1 á Möltu og því 12—1 samanlagt í
báflum leikjunum. Þeir Vordeckers
þrjú, Plessers 2, van der Snissen, Taha-
mata, Graf og Arie Haan skoruðu
mörk Standard í gær.
SAMBANDSLEYSI
VIÐ N0RÐURLÖND
Norðurlandablöðin hafa varla birt úrslitin
úr HM-leik íslands og Tékkóslóvakíu
Það var álit flestra knattspyrnuunn-
enda hér á landi að það mundi vekja
mikla athygli erlendis þegar ísland og
Tékkóslóvakía gerðu jafntefli í HM-
leik sinunt á Laugardalsvelli á dögun-
um. En það er öðru nær, þegar undan-
skilin eru nokkur viðbrögð í þeim lönd-
um sem eru í sama riðli og ísland og
Tékkóslóvakía, einkum þó Wales.
Jafnteflið gaf Wales-búum aukna
möguleika á að komast í úrslitakeppni
heimsmeistarakeppninnar á Spáni
næsta sumar.
Það virðist að mestu leyti sambands-
laust við Norðurlöndin frá íslandi ef
marka má viðbrögð blaða í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð við þessari
frétt. Að minnsta kosti er það ekki dag-
legur viðburður á knattspyrnusviðinu
að smáþjóð nái stigi af núverandi
ólympíumeisturum og fyrrverandi
Evrópumeisturum (1976), eins og
þarna átti sér stað. Flest blöð í Dan-
mörku hafa ekki einu sinni getið úrslit-
anna og er Politiken þar á meðal.
Ekkert var minnzt á úrslitin i Ekstra-
blaðinu danska daginn eftir leikinn.
Tveimur dögum eftir hann birti blaðið
úrslitin, ekkert meir. í Svíþjóð er alveg
sömu sögu að segja. Stórblaðið Dagens
Nyheter gat ekki um úrslit leiksins dag-
inn eftir en var þó með úrslit úr
öðrum HM-leikjum, sem háðir voru
sama dag. Tveimur dögum eftir leikinn
hafði blaðið sama hátt á og danska
Ekstrablaðið. Sama er að segja um flest
önnur sænsk blöð.
Ekki var það skárra í norsku blöðun-
um. Norska Dagblaðið birti fréttina,
sem fylgir þessari grein, og þar voru
úrslitin falin undir úrslitum í leik Sovét-
ríkjanna og Tyrklands í sama riðli.
Lagt út frá því að Wales hefði styrkt
stöðu sína. Staðan í riðlinum hjá
blaðinu röng.
-hsím.
Sovjet forbi
Tsjekkoslovakia
Moskva: Sovjet slo Tyrkia 4-0 i en
VM-kvalifisermgskamp i fotball i Mosk-
va onsdag kveld. Kampen ble spilt i
pulje 3
Dermed har Sovjet meget store
sjanser til á komme til sluttspillet i
Spama neste ár
Soviet har erobret S|u poeng pá fire
kamper, og det danner en solid basis
for avansement til sluttspillet.
Málene ble lagd av Aleksander Tsji-
vadse, Anatolij Demjanenko, Oleg
Blokhin og Ramaz Sjengelia.
Wales styrket sine sjanser til en plass i
VM-sluttspillet i gár siden Tsjekkoslo-
vakia noe overraskende ikke klarte
mer enn uavgjort borte mot Island. Det
betydde at Sovjet passerte tsjekkerne
pá tabellen i gruppe 3 og russerne
styrket sine VM-sjanser hjemme i
Moskva. Sovjet hadde en mengde
sianser, men misbrukte blant annet et
stratfespark.
Stillingen i pulie 3:
Wales 5 4 10 10— 0
Sovjet 4 3 10 11— 1
Tsjekkoslovakia 5 3 11 12 3
Island 6 114 6—19
Tyrkia 6 0 0 6 0—17
Norska félagið KIF eða Kristiansand
er stofnað 1921 og er því 60 ára á þessu
ári. Aðalgrein félagsins er handknatt-
leikur en einnig eru þar frjálsar iþróttir.
Árangur liðsins í handknattleiknum
hefur verið góður frá því það komst
upp í 1. deild. Annað sæti 1980 í 1.
deild og í vor þriðja sætið. Auk þess
bikarmeistari.
Heimavöllur liðsins er í Gimlehallen í
Kristiansand, sem talinn er mikil
„ljónagryfja”. Áhorfendur þar þekktir
fyrir stuðning við liðið. En stuðningur
við íslenzk lið í Evrópukeppni í Laugar-
dalshöll er einnig orðlagður og ástæða
er til að hvetja fólk til að mæta á
þennan fyrsta Evrópuleik Þróttar og
styðja vel við bakið á leikmönnum
liðsins á sunnudagskvöld. -hsím.
Pétur Ormslev — ekki skrífað undir
Lárus Guðmundsson — Armenia Biele-
feld vill fá hann strax.
Pétur hefur samið skrifa þýzkir:
„Tel lilklegt
að það verði”
—segir Atli Eðvaldsson
„Nei, Pétur Ormslev hefur enn ekki skrifi undir samning við félagið og
skrifað undir samning við Fortuna
Dusseldorf og það hefur ekkert verið
rætt um kaupverð milli hans og félags-
ins. Hins vegar tel ég mjög líklegt að
Pétur gerist atvinnumaður hjá félaginu
innan tlðar,” sagði Atli Eðvaldsson,
þegar DB ræddi við hann i morgun. Að
sögn Viggós Sigurðssonar i Leverkusen
var þvi slegið upp í þýzku blöðunum í
morgun að Pétur væri orðinn atvinnu-
maður hjá Fortuna Dusseldorf. Félagið
hefði nú tvo íslenzka landsliðsmenn á
sinum snærum.
„Þjálfari Fortuna, Berger, fór til
írlands ásamt öðrum manni frá
félaginu til að fylgjast með Evrópuleik
Dundalk og Fram en Willie Reinke fór
hins vegar ekki. Pétur kom svo aftur til
Diisseldorf ásamt Þjóðverjunum í gær
en ekki var þá gengið frá neinum
samningum við Pétur. Hann verður hér
hjá Fortuna að minnsta kosti fram að
HM-leiknum við Wales, sem verður 14.
október í Wales. Ég hugsa að hann
hann getur ekki nema bætt sig með því
að vera hér við æfingar. Allir láta vel af
Pétri hér og hann mun leika með vara-
liðinu á þriðjudag. Þjóðverjarnir sögðu
mér að Fram hefði Ieikið betur á
irlandi en Dundalk. Dómari leiksins
hefði beinlinis gefið írska liðinu tvö
mörk — tvö rangstöðumörk. Síðan
hefði Hafþór Sveinjónsson verið
rekinn af velli og þar með voru mögu-
leikar Fram úr sögunni. En það verður
gaman að fylgjast með þróun mála
hvað Pétur snertir hjá Fortuna Dússel-
dorf. Það hlýtur að skýrast næstu
daga,” sagði Atli ennfremur.
Þá má geta þess, að Willie Reinke
hafði samband við Lárus Guðmunds-
son, unga landsliðsmiðherjann í
Víking, og vildi strax fá hann til
Vestur-Þýzkalands til liðs við Armenia
Bielefeld, sem leikur í Bundeslígunni.
Lárus er nú í Frakklandi ásamt félög-
um sínum i Víking og getur verið að
hann fari til V-Þýzkalands -hsím.
Stórmót í körff ubolta
— Portúgalir, Hollendingar og sennilega Finnar koma íbyrjun janúar
— íslandsmótið hefst í kvöld með leik Njarðvíkur og Vals
„Við höfum fengið endanlegt svar
frá Hollendingum um að þeir munu
koma hingað um áramótin og taka þátt
í fjögurra liða móti,” sagði Einar
Bollason, landsliðsþjálfari i körfu-
knattleik, á blaflamannafundi í gær.
„Portúgalar koma einnig og að öllum
líkindum Finnar en endanlegt svar
hefur ekki borizt frá þeim. Þá hafa
Skotar beðið um að fá að taka þátt i
þessu móti en við erum ekki sérstaklega
hlynntir því þar sem þeir verða í riðli
með okkur á Evrópumótinu í apríl.”
Hér er um að ræða stórviðburð í
islenzkum körfuknattleik. Hér eru
sterkar þjóðir á körfuknattleikssviðinu
á ferð og leikir gegn þeim ættu að geta
komið landsliðinu að góðum notum
fyrir Evrópukeppnina. Þar leikur
ísland í C-riðli ásamt Skotum, írum,
Egyptum, Austurriki og Ungverjalandi
og verður leikið í Edinborg 26.—30.
apríl á vori komanda.
Næsta víst er að fjögurra liða mótið
fer fram dagana 5.—7. janúar næst-
komandi. Fyrstu leikirnir fara fram í
Reykjavík en síðan er fyrirhugað að
leika víðar, og koma þar Borgarnes,
Njarðvík og Keflavík helzt til greina
sem keppnisstaðir. Þess má geta að í
kjölfar hins góða árangurs íslenzka
landsliðsins í siðustu Evrópukeppni var
því boðið að taka þátt í miklu móti í
Grikklandi seinni hluta októbermán-
aðar en vegna fjárhagsörðugleika varð
körfuknattleikssambandið að afþakka
þetta glæsilega boð.
Unglingalandslið Hollands, sem talið
er í hópi tíu beztu unglingaliða í
Evrópu um þessar mundir, er væntan-
legt hingað til lands þann 19. október
og leikur hér þrjá leiki gegn íslenzkum
jafnöldrum sínum. Að sögn Einars
Bollasonar er markmiðið með því að
leika gegn svo sterku liði það að læra
semmest og búa piltana sem bezt undir
framtiðina.
íslandsmótið
„Ég á von á því að keppnin í Úrvals-
deildinni í vetur verði mun jafnari en í
fyrra og af leikjunum í Reykjavíkur-
mótinu sýnist mér að við megum búast
við betri körfuknattleik nú en oftast
áður,” sagði Kristbjörn Albertsson,
nýkjörinn formaður KKÍ.
Úrvalsdeildin hefst í kvöld með
„sprengjuleik” íslandsmeistara Njarð-
víkur og bikarmeistara Vals í Njarðvík
og hefst leikurinn kl. 20. Á laugardag
kl. 14 leika ÍR og KR og á sunnudags-
kvöld kl. 20 leika Fram og ÍS. Báðir
leikirnir fara fram í Hagaskóla. Ár-
mann og ÍBK eiga að leika á sunnudag
tkl. 14 í 1. deild og mikill spenningur
ríkir í sambandi við Ármannsliðið þvi
flestir leikmenn þess frá því í fyrra hafa
gengið i önnur félög og ýmsar sögu-
sagnir hafa verið á lofti um hvort
Ármann mæti yfirleitt til leiks. Úr því
fæst endanlega skorið þegar flautað
verður til leiks á sunnudag.
Ýmsar blikur eru nú á lofti í sam-
bandi við niðurröðun leikja. Engir
tímar hafa enn fengizt í íþróttahúsi
Hagaskóla nema fyrstu vikur mótsins
og eru forráðamenn KKÍ mjög
óánægðir með frammistöðu ÍBR í mál-
inu. Endanlega mótaskrá frá KKÍ er
því ekki hægt að fá strax. Þá var lengi
vel óvist hvort KKÍ fengi inni í Laugar-
dalshöllinni í vetur vegna þess hve
gólfið væri farið að gefa sig undan
körfubúnaðinum. Á tímabili voru
aðeins tveir möguleikar í stöðunni,
körfuboltinn út eða gólfið út. Nú hefur
þó verið ákveðið að henda körfuknatt-
leiksmönnum ekki út í vetur hvað svo
sem síðar verður.
Sem kunnugt er hafa öll úrvals-
deildarliðin fengið til liðs við sig er-
lenda leikmenn. Meiðsli Stwart John-
son setja þó strik í reikninginn hjá KR-
ingum þar sem hann verður frá í sex til
átta vikur. Enn er óvíst hvort KR-ingar
fá annan leikmann í staðinn eða hefja
mótið alíslenzkir. Vitað er um þrjá er-
lenda leikmenn í 1. deildinni. Dakarsta
Webster leikur með nýliðum Hauka,
Mark Holines með Grindavík og Tim
Higgins með Keflavik.
Eftirtalin lið taka þátt í deildakeppn-
inni: Úrvalsdeild: Njarðvík, Valur, ÍR,
KR, ÍS og Fram. 1. deild: Ármann,
Keflavík, Grindavík, Skallagrímur,
Borgarnesi og Haukar, Hafnarfirði. 2.
deild: A-riðill: Þór, Akureyri, Tinda-
stóll, Sauðárkróki, KFÍ, ísafirði og
ÍME Egilsstöðum. B-riðill: Vikingur
Ólafsvík, UBK, Kópavogi, Bræður,
Reykjavik, Akranes og Hörður,
Patreksfirði. C-riðill: Léttir, Reykja-
vík, Esja, Reykjavík, ÍV, Vestmanna-
eyjum, og FH, Hafnarfirði. Fimm lið
leika í 1. deild kvenna, KR, lR, ÍS,
Laugdælir og Njarðvik. Til viðbótar
senda Reykjaskóli og Reynir, Sand-
gerði, lið í yngri flokkunt.
._________________-VS.
Atletic Madríd
slegidútíUEFA
Atletico Madrid, Spáni, sigraði Boa-
vista, Portúgal, 3—1 (1—1) í UEFA-
keppninni í knattspyrnu í Madrid í
gær. Dirceu, tvö, og Cano, víti,
skoruðu mörk Atlctico en Diamantino
mark portúgalska liðsins. Það sigraði
samanlagt 5—4. Áhorfendur 25.000.
y, Greinargerd frá Knattspymuráði Akraness:
Akvörðun formanns KSI
óvirðing við dómstólinn
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi
greinargerð frá Knattspyrnuráði Akra-
ness vegna kærumáls ÍA gegn KR,
undirrituð af Jóni Runólfssyni, for-
manni KRA.
„Elns og flcstum knattspyrnuáhuga-
mönnum mun nú kunnugt, þá er lokið
máli því sem KRA stóð í gegn KR á
dögunum. Vegna þess hve máli þessu
voru gerð lítil skil í fjölmiðlum vill
KRA gera stutta grein fyrir málinu eins
og það lítur út frá okkar bæjardyrum
séð. Til að spara rými þá verður hér
aðeins stiklað á stóru og minnzt á aðal-
atriði málsins.
Eins og menn muna spruttu dell-
urnar út af atviki í leik KR gegn ÍA í 1.
deild þann 3.9. sl. Atvikið var i stuttu
máli það að Óskar Ingimundarson fær
rautt spjald fyrir að yfirgefa leikvöllinn
i leyfisleysi (hann hafði fengifl gult
spjald áður), eftir að hann fær rauða
spjaldið er Atli Þór Héðinsson sendur
inn á völlinn í stað Óskars. í knatt-
spyrnulögunum segir að ekki megi setja
leikmann inn á fyrir þann sem hefur
verið rekinn af leikvelli. Á þeim for-
sendum byggðum við okkar kæru.
Okkur var ljóst að tvennt hafði gerzt. í
fyrsta lagi setja KR-ingar mann inn á
fyrir mann sem stuttu áður hafði fengið
rautt spjald. Öllum sem hafa komið
nálægt knattspyrnu hlýtur að vera Ijóst
afl það má ekki. í öðru iagi gerist það
að dómarinn gefur varamanni leyfi til
að koma inn á, hann brýtur einnig
lögin. í hita leiksins verða báðum
aðilum á mistök á viðkvæmu augna-
bliki, KR er nýbúið afl ná forystu i
leiknum og Skagamenn leggja allt i það
að jafna á síðustu mínútunum sem oft
hafa reynzt liðinu drjúgar í sumar.
Atvikið er síflan kært til sérráðsdóms
KRR. Sá dómur tekur málið fyrir og
sýknar KR-inga á alröngum forsendum
(sjá meðfylgjandi Ijósrit). KRA sættir
sig ekki við niðurstöðurnar og telur að
spurningunni sé ósvarað. Við áfrýjum
til dómstóls KSÍ. Dómurinn ákveður
að 'hraða málinu, svo niðurstaða liggi
fyrir áður en síðasti leikurinn í 1. deild
fer fram. Það reynist ekki hægt þar
sem KR biður um frest. Þá gerist sér-
stakt atvik. Formaður KSÍ tilkynnir
það í Morgunbiaðinu að verðlaun í
íslandsmótinu verði afhent að loknum
leik Víkings og KR þrátt fyrir kæru
okkar, sem e.t.v. hefði getað breytt röð
efstu liða. Úr því að Vikingur vann KR
þá var að sjálfsögðu hægt að afhenda
þeim verðskulduð sigurlaun en öðru
máli gegndi um Framara, þeir lóku á
móti verðlaunum, sem þeir áttu á
hættu að missa nokkrum dögum síðar,
eða hvað? Þessi ákvörðun formannsins
er að okkar mati óvirðing við dómstól
KSÍ, svo ekki sé meira sagt. Það liggur í
augum uppi að dómstóllinn er i miklu
erfiðari aðstöðu til að kveða upp hlut-
lausan dóm í svona stöðu. Áfrýjun er
síðan tekin fyrir og dómur upp kveð-
inn: KR sýknað. Að okkar mati eru
dómsniðurstöður svo loðnar að
spurningunni er enn ósvarað: Má setja
mann inn á i stað þess sem rekinn er út
af?”