Dagblaðið - 02.10.1981, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
Bflbeltanotkun könnuð á Kleppsveginum:
Meirihlutinn
var spenntur
Lögreglan gerði skyndikannanir á
bílbeltanotkun víðsvegar um landið i
gær, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Sagt
er frá heildarniðurstöður á útsíðu
blaðsinsídag.
„Ég er bara ánægður með árangur-
inn,” sagði Þorkell Samúelsson lög-
reglumaður, sem ásamt starfsbróður
sínum, Steinari Birgissyni, var að telja
hve margir notuðu bílbelti í þeim bílum
sem óku austur Kleppsveginn framhjá
Laugarásbíói upp úr hádegi í gær.
„Af 216 ökumönnum voru 129 með
belti spennt en 87 án belta,” sagði
Þorkell.
Steinar laldi bílbeltanotkun meðal
framsætisfarþega. Hann hafði talið 73
farþega og reyndust 39 þeirra vera
spenntir en 34 ekki.
En hvað segja vegfarendur um bíl-
beltin? Við stöðvuðum nokkra á
Kleppsveginum og leituðum álits
þeirra:
„Bara að venjast
beltunum"
,,Ég er að byrja á þessu í dag,”
sagði Pálína Guðný Émilsdóttir sem
var með beltið spennt eins og lög gera
ráð fyrir.
„Mér finnst þvingandi að nota þau
en það er bara að venjast þeim. Ég er
alveg sannfærð um að bílbeltin geti
gert gagn,” sagði Pálína.
Við hlið hennar sat fjórtán ára
gamall piltur, Ingimar Jóhannsson.
Hann var einnig fastspenntur. Sagðist
hann vera að byrja núna að nota belt-
in en gerði ráð fyrir að nota þau í
framtíðinni.
„Set belti í bflinn"
,,Ég held ég fari nú að fá mér belti
í bílinn,” sagði Guðmundur Arnórs-
son, sem ók um á Mercedes Benz árg.
’61 sem af skiljanlegum ástæðum
Pálina Guðný Emilsdóttir: bflbeltin gera
sitt gagn.
Skyndihjálparkennarar!
Fundur um stofnun kennarafélags verður haldinn í ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða sunnudaginn 4. okt. nk. kl. 14.
Undirbúningsnefnd.
samtOk gegn astma og ofnæmi
Fundur verður að Norðurbrún 1 kl. 14.30 laugardaginn
3. október nk.
Dagskrá:
1. Atvinnusjúkdómar vegna ofnæmis og crtingar;
í öndunarfærum.
Davíð Gislason læknir flytur erindi og svarar
fyrirspurnum.
2. Gaman og alvara.
Andrés Valberg flytur.
3. Veitingar. ,
Allir velkomnir. Félagsmenn fjölmenni.
Skemmtinefndin.
Hino KM600, ekinn ca 30 þús. km. Selst með kassa ca
kr. 170.000.-. Án kassa ca kr. 120.000.-. Upplýsingar hjá
sölumanni véladeildar.
BÍLABORG HF.
Smiðshöffla 23, sími 81299.
hafði engin belti. Ekki er skylda að
hafa belti í bílum sem fluttir voru inn
fyrir árslok 1968.
„Ég held að beltin eigi alveg rétt á
sér. Ég gæti alveg trúað því að það
væri betra að nota þau. Það eru
reyndar komnir boltar fyrir beltin,”
sagði Guðmundur.
Aðalheiður Sigurðardóttir sat við
hlið Sigurðar.
,,Mér finnst allt í lagi að nota belt-
in. Ég hef ekki notað þau hingað til
að staðaldri, mest notað þau þegar ég
hef farið út úr bænum,” sagði Aðal-
heiður, sem einnig var með beltið
spennt.
Gréta Matthiasdóttir og Sveinbjörg Jónsdóttir: alveg sáttar vió löggjöOna.
DB-myndir. Kristján örn.
„Beltin auðveld í
notkun"
,,Ég hef alltaf verið hlynntur
öryggisbeltunum. Ég hef hins vegar
ekki verið mjög duglegur við að nota
þau í þéttbýli en alltaf ferðalögum,”
sagði Sigurður Gíslason ökukennari.
Hann var með beltið spennt.
„Lögin verða vonandi dl þess að ég
fari að nota þau að staðaldri.
Öryggisbeltin í þessum nýju bílum eru
svo auðveld í notkun að maður hlýtur
að venjast þeim fljótt.”
„Gleymdum að
spenna beltin"
„Við vorum að flýta okkur í skól-
ann og gleymdum að setja á okk-
ur beltin. Annars erum við búnar að
nota beltin í allan dag,” sagði Gréta
Matthíasdóttir, nemi í Fjölbrauta-
skólanum i Breiðholti. Skólasystir
hennar, Sveinbjörg Jónsdóttir, var
með henni og var hvorug með beltið
spennt.
„Ég hef notað þau einstaka sinnum
og hugsa að ég noti þau í framtíðinni.
Siguróur Gíslason og Aðalheiður Sig-
urðardóttir: auðvelt 1 notkun.
Guðmundur Arnórsson: boltarnir
komnir fyrir belti.
Annars held ég að fólk fari fyrst að
nota beltin að ráði þegar verður farið
að beita sektum. Ég sætti mig alveg
við lögin,” sagði Sveinbjörg.
„Mér finnst að fólk eigi að fá að
ráða því sjálft hvort það spenni á sig
beltin. Annars er ég alveg sátt við
þetta,” sagðiGréta.
Áður en stúlkurnar kvöddu blaða-
mennina spenntu þær báðar á sig
beltin. -KMU.
HARTOPPAR
FRA
TRENDMAN
Eðlilegir, léttir, þægilegir
og auðveldir
I hirðingu
og notkun
ENGIN
VERÐHÆKKUN
Sórfræðingur frá Trendman verður til viðtals
á rakarastofu minni, laugard. 3. okt, sunnud. 4. okt og mánud. 5. okt
PANTIÐ TÍMA I SÍMA
21575 EÐA 42415
VILLI RAKARI
MIKLUBRAUT 68. SÍMI21575