Dagblaðið - 02.10.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
7
Deila um olíuskuld veltir upp á sig:
„Nýtt er virðuleg stórfyrirtæki fara
að bjarga sér með smásvindli”
—segir Guðlaugur L Jónsson í opnu bréff i til dómsmálaráðherra, Lögmannaf élagsins og lögmanns og
forstjóra olíufélagsins Skeljungs hf.
„Sumir embættismenn virðast ekki
telja það í sinum verkahring að reyna
að tryggja að réttlæti og réttvísi fylgist
að. Margir lögmenn umgangast rétt-
lætið af miklu frjálslyndi, þótt það
borgi sig sjaldan til lengdar. Hvorugt er
alveg nýtt. Hitt sýnist nýtt, er virðuleg
stórfyrirtæki fara að bjarga sér með
smásvindli.” Svo segir í lokaorðum
bréfs Guðlaugs E. Jónssonar, Heiðar-
gerði 116 Reykjavik. Bréf sitt sendir
Guðlaugur Friðjóni Þórðarsyni dóms-
málaráðherra, Lögmannafélagi
íslands, Kristni Björnssyni lögmanni
og Indriða Pálssyni, forstjóra Skelj-
ungs hf.
Tilefni bréfsins er fjárnám og upp-
boðsbeiðni Kristins Björnssonar fyrir
hönd Skeljungs, hjá syni Guðlaugs,
Frey Guðlaugssyni, Hjaltabakka 32
Reykjavík. Fram kemur i bréfinu að
Skeljungur er að innheimta olíuúttekt
vegna hitunar á risíbúð að Suðurgötu
78 á Akranesi. Guðlaugur segir að hér
sé ekki um skuld Freys að ræða, krafan
sé röng og dómur hafi fengizt með
blekkingum sem orðið hafi til þess að
Freyr taldi óþarft að hafa varnir uppi.
Guðlaugur segir að Freyr hafi átt
þessa íbúð einu sinni og búið í henni.
Hann hafi hins vegar verið fluttur til
Reykjavíkur og selt ibúðina þegar olían
var tekin út. Hann hafi ekki beðið um
olíuna og ekki kvittað fyrir móttöku
hennar og skuldi því Skeljungi ekki
neitt.
í bréfinu krefst Guðlaugur þess að
fallið verði frá kröfunni og fjárnáminu
og uppboðinu verði aflýst. Þá krefst
hann og að Indriði Pálsson, f.h. Skelj-
ungs, og Kristinn Björnsson hdl., sæti
ábyrgð að lögum og skv. siðareglum
Krístinn Bjömsson, lögmaður Skeljungs:
„HELDUR SÐNT í
RASSINN GRIPIД
- Freyr talinn eigandi íbúðarínnar af hinu opinbera og
allan þennan tama hefur hún veriö í eigu þieirra feðga
„Við fengum innheimtu á Frey frá
Skeljungi í júlí 1980,” sagði Kristinn
Björnsson, lögmaður Skeljungs.
„Hann svaraði ekki bréfi þar sem hann
var krafinn um greiðslu en réttarhlé var
í júlí og ágúst. Þegar farið var að huga
að stefnum i september og október
kom Freyr og bað um frest til þess að
greiða skuldina.
Olíufélagið Skeljungur veitir rými-
lega fresti og Frey var sagt að hann
skyldi hafa sína hentisemi, en hann
gerði ekkert í málinu. Honum var því
stefnt í byrjun desember. Hann mætti
ekki og því fékkst heimild til aðfarar
29. desember og beðið um fjárnám.
Freyr mætti til fógeta og segir þá að
hann hafi ekki átt íbúðina. Mér fannst
það heldur seint í rassinn gripið. Freyr
fékk að tala við föður sinn í síma og
faðir hans ræddi síðan við fógeta.
Fógeti sagði honum að upphæðin næði
ekki áfrýjunarfjárhæð en höfuðstóll
upphæðarinnar er 1.151 króna. Faðir
Furðulegt að
reyna ekki
vamir
— segir forstjórí Skeljungs
„Þetta er aðeins eitt af mörg
hundruð málum, sem þarf að setja í
innheimtu,” sagði Indriði Pálsson, for-
stjóri Skeljungs hf. Indriði sagðist
ekkert hafa heyrt um þetta mál fyrr en
honum barst bréf Guðlaugs og vissi
hann því litið um málið og ekki um
hvaða upphæð væri að tefla.
í bréfi sínu segir Guðlaugur að með
hótunum hafi hann fengið viku frest á
fyrirtekt uppboðsbeiðninnar svo hann
gæti haft samband við Indriða Páls-
son, forstjóra Skeljungs. Indriði var
þá fjarverandi og ekki væntanlegur í
tíma. Fulltrúi hans hefði hins vegar
lofað að kynna sér málið og láta vita
um árangur, en frá honum hefði ekki
heyrzt, Uppboðið á íbúð Freys á að
fara fram 12. nóvember nk.
„Mér finnst það afskaplega furðu-
legt, eftir að málið er búið að ganga í
gegnum öll dómsstig, að maðurinn
skuli ekki hafa reynt að koma við
vörnum. Hann hefði getað fengið frest
hjá lögfræðingi, þegar hann fékk
stefnu og þegar málið kom fyrir
dómara, en ekkert var reynt,” sagði
Indriði. -JH.
lögmannafélags íslands, fyrir ranga
kröfugerð og vítaverða málsmeðferð.
Að lokum krefst bréfritari þess að
borgarfógetinn í Reykjavík sæti
ábyrgð eða fulltrúi hans, Ólafur Sigur-
geirsson, fyrir að synja ekki uppboðs-
beiðni eftir að honum var gerð grein
fyrir málsatvikum. Úr hendi allra
framantalinna aðila áskilur Guðlaugur
Frey rétt til bóta.
Guðlaugur segir að Freyr hafi ráðið
sig í iðnnám á Akranesi vorið 1975 og
þá keypt áðurnefnda íbúð. Hann hafi
búið í íbúðinni fram á sumar 1976. Þá
hafi hann flutt til Reykjavíkur og selt
íbúðina. Freyr hafi skýrt lögmanninum
frá þessu eftir að honum var birt stefna
vegna krðfunnar. Lögmaðurinn hafi
viðurkennt að ekki væri um skuld
Freys að ræða og því hafi hann talið
málið úrsögunni.
. Hann hafi hins vegar ekki skilið að-
ferðir „hinna háskólamenntuðu rukk-
ara” og krafan því tekin fyrir á stefnu-
degi þar sem henni var ekki mótmælt.
Siðan var gert fjánám og beðið um
uppboð. Ekki varð neinu um þokað
þegar Freyr mætti til varna þegar upp-
boðsbeiðnin var tekin fyrir. Að sögn
Guðlaugs voru lögmaður og fulltrúi
fógeta ekki til umræðu um málavexti.
„Fyrir náð fékk Freyr að hringja til
mín úr réttinum,” segir Guð-
laugur. . . .” og átti ég nokkur orða-
skipti við þá félaga. Ég krafðist af lög-
manninum að fallið yrði frá uppboðs-
beiðni og fjárnáminu yrði aflýst þar
sem ljóst væri að dómurinn væri
rangur. Af fógeta krafðist ég að upp-
boðsbeiðninni yrði synjað, þar eð
krafan væri sannanlega röng.”
Guðlaugur segir að lögmaðurinn
hafi haldið því fram að Freyr væri
ábyrgur fyrir greiðslu olíureikninganna
sem þinglýstur eigandi íbúðarinnar.
„Heldur veikt hálmstrá sýnist manni,”
segir Guðlaugur. „Hann væri þá
væntanlega einnig áfiyrgur fyrir öðrum
reikningum leigjenda, matarreikning-
um og til vill barnsmeðlögum. En
hálmstráið hans Kristins var bara skyn-
villa: Freyr var ekki þinglýstur eigandi
íbúðarinnar. Þess vegna hefði hann
eins getað krafið Frey um alla vanskila-
reikningaSkeljungshf.” -JH.
Freys sagði síðan við mig að hann
myndi hafa saroband við Dagblaðið
vegna málsins. Ég sagði honum að
slíkt kæmist ekki að sem vörn í málinu.
Vikufrestur fékkst en síðan hefur
ekkert heyrzt í manninum.
Málið hefur verið kannað og allir
aðilar sammála um að Freyr eigi
íbúðina.. Á fasteignaseðli Bæjarsjóðs
Akraness árið 1980 er hann skráður
eigandi og einnig hjá Brunabótafélagi
íslands fyrir árið 1980.
Það er óljóst i veðbókum á Akranesi
hver er eigandi ibúðarinnar, en 21.
apríl 1980 er Frey veitt heimild til þess
að veðsetja 1. veðrétt ibúðarinnar og er
það undirritað af Guðlaugi E. Jóns-
syni, föður Freys. Hið opinbera telur
Frey eiganda íbúðarinnar en vera má
að Guðlaugur faðir hans sé eigandinn.
Hafi hún verið í leigu á þessum tima
er einfaldlega um galla að ræða í leigu-
samningi,” sagði Kristinn.
-JH.
★VERÐ AÐEINS ca Kr. 66.990 -
MEÐ
RYÐVÖRN
MUNIÐ AÐ
VARAHLUTANÚNUSTA
OKKAR ER F SÉRFLOKKI.
ÞAÐ VAR STAÐFEST [ KÖNNUN
VERÐLAGSSTOFNUNAR.
BIFREIÐAR OG
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38-600
Sáuð þið boðslistann frá
MANHA3TAN
í MOGGANUM í morgun?