Dagblaðið - 02.10.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
JÓHANNA »
ÞRÁINSDÓtTIR
Loftárás á Kuwait
Haig upplýstir að banda-
rískar AWACS-vélar
haf i staðið írana að verki
Að sögn yfirvalda í Kuwait, gerðu
þrjár íranskar orrustuþotur loftárás á
oliuhreinsunarstöð þar í landi í gær.
íranir hafa borið þessar ásakanir til
baka, og segja að árásirnar séu verk
íraka. Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Alexander Haig, upplýsti þó á
fundi utanrikismálanefndar Banda-
ríkjaþings að bandarískar AWACS
radarflugvélar, sem staðsettar eru í
Saudi-Arabíu, hafi fylgzt með
írönsku orrustuþotunum allt frá því
að þær tóku sig á loft í fran og þar til
þær gerðu árásina.
Hluti olíuhreinsunarstöðvarinnar
eyðilagðist en engir týndu lífi í árás-
inni. Tókst að slökkva eldana, sem
kviknuðu við árásina, að tólf tímum
liðnum. Talsmaður stjórnarinnar í
Kuwait sagði um árásina að hún væri
nýr hlekkur í keðju árása sem íranski
flugherinn hefði að undanförnu gert í
lofthelgi Kuwait.
Eftir að stríðið brauzt út milli írana
og íraka fyrir um ári siðan hefur
Kuwait þjónað sem milliliður í olíu-
útflutningi fraka en helztu hafnar-
borgir þeirra hafa verið lokaðar
vegna stríðsins.
frak, Saudi-Arabía og Bahrain for-
dæmdu árásina og hétu Kuwait
stuðningi sínum, að því er opinberar
heimildir herma.
Hermenn Khomeinis: Hafa nóg að gera fyrir leiðtogann.
Bonn:
Vestur-Þjóðverjar hafa látið lausan
a-þýzka njósnarann Gunter Guillaume
en handtaka hans leiddi á sínum tíma
til afsagnar Willy Brandts kanslara.
Ekki hefur enn verið skýrt frá hverja V-
Þjóðverjar fá í skiptum fyrir Guill-
aume.
Gdansk:
Leiðtogar óháðu verkalýðssamtak-
anna Einingar i Póllandi eiga nú i inn-
byrðis átökum um forystuhlutverk í
hreyfingunni. Þeir hafa gagnrýnt aðild
Póllands að Varsjárbandalaginu og
krefjast frjálsra þingkosninga að vest-
rænni fyrirmynd.
Stokk-
hólmur:
V33) TÖKUM,
STEFNUNA A
„Kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum er augsýnilega hags-
munamál fyrir Svíþjóð en ekki með
hvaða skilmálum sem er,” sagði Olof
Palme á flokksþingi sænskra sósíal-
demókrata fyrir skömmu. Palme benti
á að hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laust svæði mætti útfæra á þann veg að
það hefði í för með sér skyldur sem
væru ósamrýmanlegar hlutleysi
Svíþjóðar. Átti hann þá einkum við, að
því fylgdi meiri stjórnun og eftirlit en
Svíar gætu sætt sig við af hendi stór-
veldanna.
Fyrir flokksþinginu lágu fjölmargar
tillögur um kjarnorkuvopnalaus svæði.
Nokkrar tillögurnar gerðu ráð fyrir að
Svíþjóð lýsti sig einhliða kjarnorku-
vopnalaust land en aðrar miðuðu við
samstöðu allra Evrópuríkja. Á þinginu
var samþykkt að veita stuðning allri
viðleitni til kjarnorkuafvopnunar um
allan heim og að Norðurlönd ættu að
rannsaka hvaða grundvöll þau ættu
sameiginlegan til að koma á kjarnorku-
vopnalausu svæði. Palme sagði að
langan tíma gæti tekið að rannsaka
hvaða möguleikar væru fyrir hendi og
ekki sizt til hvaða úrræða Sovétstjórnin
vildi grípa í þessu sambandi.
Beirút:
Palestínumenn hafa sakað ísrael um
að hafa staðið að baki sprengingum í
Beirút sem kostuðu 50 manns lifið og
250 særðust.
Hreyfing sem berst fyrir frelsun
Líbanon og brottrekstri allra erlendra
manna úr landinu hefur tekið á sig
ábyrgð af sprengingunum og segir að
frekari aðgerðir séu væntanlegar.
Taiwan:
Neita sátt-
um við Kína
Stjórn Taiwan lýsti yfir því í gær að
nýjar sáttatillögur Kínverja til samein-
ingar eyjunnar við meginlandið væru
áróður og um sameiningu yrði ekki að
ræða á meðan kommúnistastjórn fer
með völdíKína.
Talsmaður stjórnarinnar, James
Soong, sagði ennfremur að tillögur þær
er bornar hafa verið fram af utanríkis-
ráðherra Kína, Ye Jianying mar-
skálki, innihéldu ekkert nýtt.
Soong sagði að Kína ædaði sér að
þvinga Kínverja er byggja eyjarnar
Taiwan, Penghu, Quemoy og Matsu
undir kommúnistastjórn.
— Við höfum alltaf haldið því fram
að Kínverjar óski þess heitast að geta
sameinazt, sagði hann. — En það er
ekki Taiwan sundið sem skilur eyjarnar
frá meginlandinu heldur tvö gjörólík
kerfi, — lýðræði og einræði. Og það er
ekki hægt að sameina Kínverja undir
þaðsíðarnefnda.
SIMRAD ,
umboóió á Islandi
óbrejrtt
?HOLT
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER
FRIDRIK A.-IOVSSOV HF.
SKIPHOLT 7 — BOX 362 121 REYKJAVÍK — SÍMAR 14135 — 14340