Dagblaðið - 02.10.1981, Page 10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
10
írjálst, úháð daghlað
Útgefandi: Dagblaðið hf.
Framkvmmdaaljóff: Svainn R. EyjóHaaon. Ritatjórí: Jónaa Kríatjánaaon.
AðatoAarrftatjórí: Haukur Helgaaon. Fiittaatjórí: Ómar Valdimaraaon.
Skrif atofuatjóri ritatjómar Jóhannaa Raykdal.
íþróttir: Hallur Sfmonaraon. Aðatoðarfráttaatjóri: Jónaa Haraldaaon.
Handrít: Aagrímur Páiaaon. Hönnun: Hllmar Kariaaon.
Blaðamann: Anna Bjamaaon, Atli Stainaraaon, Áagelr Tómaaaon, Bragi Siguröaaon, Dóra Stefána-
dóttlr, EHn Albertadóttir, Franziaca Gunnaradóttir, Inga Hukf Hákonardóttir, Jóhanna Þráinadóttir,
Kriatján Már Unnaraaon, Lllja K. MBIIar, Ólafur E. Friðrikaaon, Sigurður Svarriaaon, Vlðlr Sigurðaaon.
Ljóamyndln Bjamlaífur Bjamleifaaon. Einar Ólaaon, Ragnar Th. Sigurðaaon,
og Sveinn Þormóðsson.
Skrífstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. GjokikeH: Þráinn Þoríeifsson. Auglýsingastjórí: Ingótfur P. Steins-
son. Dreif ingarstjórí: Valgerður H. Sveinsdóttir.
Ritstjóm: SWumúla 12. Afgreiösla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhoiti 11.
Aðalsimi blaösins er 27022 (10 linur).
Setning og umbrot Degblaðlð hf., Síðumúla 12.
Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Slðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skorfunni 10.
Áskriftarverð á mánuði kr. 85,00. Verð I lausasölu kr. 6,00.
Gengið er fallið
Gengi krónunnar er þegar fallið.
Aðeins er eftir að viðurkenna það í
skráningu.
Þegar verðbólgan er hér margfalt
meiri en hjá viðskiptaþjóðum okkar,
fellur gengi krónunnar.
„Það stendur óhaggað, að gengið er fallið. Málið er
bara, að þessir ágætu menn, sem með landsstjórnina
fara, geri sér það ljóst. Undan gengisfellingu komast
menn ekki. Það er aðeins ríkisstjórnarinnar að velja
henni dag,” sagði Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi sjó-
manna í yfirnefnd, í viðtali við Dagblaðið i fyrradag.
Þetta er hárrétt hjá Ingólfi.
Málið er ofureinfalt. Ekki er hægt að halda gengi
krónunnar uppi,meðan verðbólga hér er 40 prósent á
ári. Því þýðir ekki að fárast yfir gengisfellingu. Sökin
er þeirra, sem láta verðbólguna verða þetta mikla.
Meðan verðbólguhraðinn er hér 40 prósent á ári,
hefur hann verið 10—12 prósent eða minni í viðskipta-
löndum okkar. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhags-
stofnun hefur verðbólguhraðinn verið um og yfir 12
prósent á öðrum Norðurlöndum, miðað við heilt ár.
Hraði verðbólgunnar er um 10 prósent í Bandaríkjun-
um, 12 prósent í Bretlandi og 6 prósent í Vestur-Þýzka-
landi.
Það gefur augaleið, að kostnaðurinn við rekstur út-
flutningsatvinnuveganna hér heima vex í takt við verð-
bólguna hér, meðan verðlag á erlendum mörkuðum
hækkar mestmegnis í takt við verðbólguna í viðkom-
andi löndum. Því geta útflutningsatvinnuvegirnir ekki
borið sig án stuðnings. Vegna mismunarins á verð-
bólguþróuninni hér og erlendis skapast sú staða, að
segja má, að gengi krónunnar sé þegar fallið.
„Það er enginn vafi, að frystingin stendur mjög
illa,” sagði Steingrímur Hermannsson sjávarútvegs-
ráðherra í viðtali við Dagblaðið í gær. Líklega stendur
iðnaðurinn enn verr.
Samt kjósa sumir ráðherrar að stíga á stokk og
hafna því gjörsamlega, að gengið verði fellt í tengslum
við væntanlega hækkun fiskverðs.
Meðan verðbólguhraðinn hefur i ár verið 40 pró-
sent, miðað við heilt ár, hefur meðalgengi krónunnar
aðeins fallið um 9 prósent.
Afleiðingin er hallarekstur í frystingu og iðnaði.
Auðvitað er gengisfelling aðeins bráðabirgða”redd-
ing”. Steingrímur Hermannsson getur mætavel kallað
hana „gamalt íhaldsúrræði” og forseti Sjómannasam-
bandsins getur líkt henni við að pissa í skóinn sinn. Samt
er það svo, að ríkisstjórnin hefur ekki boðið upp á ann-
að úrræði þolanlegra. Gengið hefur fallið vegna verð-
bólgunnar, og því kemur sennilega að því, að ríkis-
stjórnin verði að velja dag fyrir breytta gengisskrán-
ingu, eins og Ingólfur Ingólfsson segir. Ella mætti
búast við atvinnuleysi og stöðvun útflutningsat-
vinnuveganna.
Ekki stoðar að stinga höfðinu í sandinn og hafna
alfarið gengisfellingu, sem þegar er orðin í raun.
Með réttu ætti fiskverð nú þegar að hafa verið
ákveðið. Tómas Árnason viðskiptaráðherra getur talað
um niðurtalningu en varla sem leið út úr þeim ógöng-
um, sem útflutningsgreinarnar eru komnar í nú í októ-
berbyrjun.
V
V
Dagur hinna öldruðu ílandi hinnar rísandi sólar:
18% þjóðarinnar
65 ára og eldri
um aldamótin
manna) eftir önnur 25 ár. Ef sú spá
reynist rétt þá mun Japan slá út
Svíþjóð þar sem prósentuhluti 65 ára
og eldri mun ná 15.5% áður en hann
fer að lækka aftur. Aftur á móti
hefur þessi þróun staðið yfir miklu
lengur i Evrópu en í Japan, þar sem
þetta gerist á nokkrum áratugum.
Japanska ríkisstjórnin og stórfyrir-
tækin gera sér ljósa grein fyrir
vandanum. Erfitt verður fyrir þann
litla hluta þjóðarinnar sem hefur
fulla atvinnu að standa undir skött-
um og öðrum greiðslum til að halda
gangandi tryggingakerfinu og
eftirlaunagreiðslum. Til að sporna
við þessari þróun sögðust helmingur
7000 fyrirtækja sem spurð voru ætla
að hækka á næstu árum eftirlauna-
aldurinn upp í 60 ár. Þetta er spor i
rétta átt en betur má ef duga skal.
Verkalýðsfélögin eru að reyna að
stofna samtök meðal eftirlaunaþega
með þvi takmarki að fá lögleitt að
þeir hafi sama rétt til vinnu og aðrir
allt til sjötugs. Er mjög ólíklegt að
þetta nái fram að ganga.
ísland kemst árlega á forsíður
Japan er liklega eina þjóðin f
heiminum sem hefur löghelgan frídag
ár hvert til að sýna gamla fólkinu
virðingu sfna.
Um næstu aldamót munu um 18%
japönsku þjóðarinnar véra 65 ára og
eldri.
Þótt Japanir séu iðin þjóð sem
vinnur langan vinnudag og tekur
stutt sumarfrí þá eru þó nokkuð
margir frídagar á árinu sem þjóðin
heldur upp á. Einn þeirra er 15.
september og nefndist hann
Keirooriohi sem í lauslegri þýðingu
mætti nefna ,,dag hinna öldruðu”.
Er Japan líklega eina þjóðin í
heiminum sem hefur löghelgan frídag
ár hver til að votta gamla fólkinu
virðingu sína. Þótt hugsunin að baki
frídeginum sé góðra gjalda verð, þá
er það nú einu sinni svo að flestir
hugsa meira um að losna við að
vinna þennan dag en að votta
hinum öldruðu virðingu sína. Á sama
tíma á margt af þessu gamla fólki
enga ósk heitari en að eiga þess kost
að fá að vinna, en þar sem eftirlauna-
aldur hér miðast við 55 ár og er
framfylgt af stjórnvöldum og stór-
fyrirtækjum þá hefur þessu gamla
fólki, upp til hópa, verið neitað um
þessaósk.
Á degi hinna öldruðu fara fram
margvísleg hátíðarhöld víða um
Japan og japanska ríkisstjórnin færir
öllum þeim sem verða 100 ára á árinu
áritað skjal og silfurstaup að gjöf.
Forsætisráðherrann Zenko Suzuki
hringir einnig í elzta japanska ríkis-
borgarann sem er á lífi, en það er
hinn 116 ára Shigechiyo Izumi frá
Kagoshima héraðinu. Nýlega til-
kynnti Heilbrigðismálaráðuneytið
að í ár fengju 1072einstaklingar 100
ára viðurkenninguna og er það í
fyrsta sinn sem sú tala fer yfir 1000.
Er það 104 fleiri en í fyrra og til
gamans má geta að 1963 þegar þessi
listi var fyrst settur saman, þá voru
aðeins 153 nöfn á honum. Af þessum
1072 nöfnum á listanum í ár eru 970
konur og virðast þær því verða mun
langlifari en karlmennirnir hérna.
Þessi aukning á fólki sem nær
háum aldri gefur góða hugmynd um
hve stór hluti japönsku þjóðarinnar
er að komast á sín efri ár. Núna eru
9.3% þjóðarinnar 65 ára og eldri og
samkvæmt útreikningum mun sú tala
fara upp 1 18% (um 20 milljónir
Japanir hyggjast hækka eftirlaunaaldur úr SS árum í 60 ár til aö halda trygginga-
kerfinu gangandi.
Hvað er bygginga-
samvinnufélag?
Á undanförnum vikum hefur
farið fram í fjölmiðlum allsnörp
umræða um húsnæðisskort á
höfuðborgarsvæðinu.
Þvi hefur meðal annars verið
haldið fram að vandi þeirra sem vilja
eignast eigið húsnæði sé ekki ýkja
mikill, sem sjá megi á öllum þeim
aragrúa fasteigna, sem daglega eru
auglýstar til sölu.
Lánakjör
Sú staðreynd að margar íþúðir eru
til sölu á hverjum tíma leysir þó eng-
an veginn vanda þeirra sem eru að
koma upp sinni fyrstu íbúð.
Með breyttum kjörum á lána-
markaði, það er fullri verðtryggingu
lána, verður fólk að endurgreiða
raunvirði þess fjármagns sem það
fær að láni, auk um það bil tvö og
hálft prósent vaxta. Nú er ekki
ástæða til að kvarta yfir því að
endurgreiða þurfi það sem áður
Kjallarinn
Sigtryggur Jónsson
fékkst að láni, það hefur jú alltaf gilt
um alla aðra hluti en peninga. Engu
að síður eru viðbrigðin frá lágvaxta-
stefnunni mikil, en hitt er þó þyngra
á metunum, að kerfið hefur ekki
ráðið við að lengja lánstímann
nægilega, samfara verðtryggingunni.
Eigið húsnæði
Forsenda þess sem hér er sagt er
að fólk vilji eiga sitt eigið
íbúðarhúsnæði, en ekki leigja hjá
öðrum einstaklingum eða opinberum
aðilum. Það unga fólk sem hyggst
koma sér upp sinni fyrstu íbúð á i
raun un; þrjá valkosti að ræða. í
fyrsta lagi að leita út á frjálsa
markaðinn. það er kaupa notaða
íbúð eða nýja af byggingaverktaka.
Verð á þessum markaði og kjör eru
slik að aðeins lítill hluti þessa fólks
ræður við að kaupa á honum. Annar
kostur er að fá inni í verkamanna-
bústaðakerfinu. Þar eru þó sett á-
kveðin skilyrði sem verður að
fullnægja, svo sem í sambandi við
V