Dagblaðið - 02.10.1981, Side 16
24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1981.
Þjást attar óhamingjusamar
fjölskyldur á sama hátt?
—Um Mörtu Tikkanen sem stödd er í Reykjavík til að vera á frumsýningu á „Ástarsögu aldarinnar”
— íÞjóðleikhúsinu
„Um þig og mig / væri allt betur /
ósagt,” segir Marta Tikkanen i ljóði
um eiginmann sinn, Henrik, sem er
bráðfyndinn rithöfundur og teiknari,
en drykkfelldur í betra lagi.
Lýsingar hennar á því hvernig það er
að búa „hálfan metra frá drykkju-
manni” eins og hún orðar það, komu
út undir heitinu „Ástarsaga aldarinn-
ar” 1978. Þar segir hún frá örvæntingu
sinni yfir því hvernig samlíf þeirra
hjóna verður sárasta kvöl vegna
drykkjunnar, og óverjandi álag fyrir
börnin.
En samt elskar hún hann og getur
ekki yfirgefið hann, hvað sem -á
gengur.
Bókin hefur orðið feikilega vinsæl.
Á skömmum tíma seldust meira en
hundrað þúsund eintök á Norðurlönd-
um, auk þess sem verið er að þýða hana
á þýzku, ensku og hollenzku.
Það kemur nefnilega í ljós að
árekstrar þeirra Mörtu og Henriks
Tikkanens eru ekkert einstakir, það
liggur við að það sé óhugnanlegt hvað
mörgum lesendum finnst bókin eins og
töluð nákvæmlega út úr sínu hjarta.
Á 19. öldinni sagði rússneska skáldið
Tolstoy, að engar tvær óhamingjusam-
ar fjölskyldur þjáðust á sama hátt, en
hamingjusamar fjölskyldur væru allar
eins. Ætli þetta hafi ekki alveg snúizt
viðá20. öldinni?
Marta Tikkanen: „Kannski skána hiutirnir ekkert þótt um þá sé talað, en ég er viss um að þeir versna ekki af þvi.”
Eitt kvöld var hringt til mín í ofboði:
það vantaði á stundinni skemmtiatriði
fyrir áttatíu sænska félagsráðgjafa,
sem staddir voru í Helsinki.
Ég hugsaði: Allt í lagi að leyfa þeim
að heyra eitthvað úr þessu, þeir eru allir
að fara úr landi og ég sé þá aldrei meir.
Þeir urðu stórhrifnir, könnuðust við
allt, ýmist úr vinnunni eða af heima-
vettvangi, og það kom á daginn, sem
mig undir niðri hafði grunað: ástandið
heima hjá okkur var ekkert einsdæmi.
Enginn getur hafa elsk-
að einlægar en óg ...
Það þarf vægðarlaust raunsæi til að
líta yfir genginn veg og sjá að í upphafi
„getur enginn hafa elskað einlægar en
ég” og svo „í dag ertu sá sem ég bý
með”. Það þarf hörku til að spyrja
sjálfan sig: Hvernig gátum við sem
„fórum að búa saman . . . vegna þess
að við komumst ekki hjá því,” orðið
svo vond við hvort annað?”
„Og kannski skána hlutirnir ekkert
þótt um þá sé talað,” segir Marta, „en
ég er viss um að þeir versna ekki af
því.”
Hún segir það sannfæringu sina að
konur eigi auðveldara með að tala um
tilfinningar sínar heldur en karlar.
Það muni vera rétt sem finnski fé-
lagsfræðingurinn Rita Liljeström segir:
„Karlmenn óttast tilfinningar, bæði í
sjálfum sér og hjá öðrum.”
Flótti — með brennivíni
eða ofvinnu
Ég hitti Mörtu Tikkanen stutta stund
í Norræna húsinu, á leiðinni af flug-
vellinum á æfingu í Þjóðleikhúsinu, en
þangað fór hún strax fyrsta kvöldið.
Mér fannst hún alveg eins og margra
barna móðirin í húsinu hinum megin
við götuna, vinnuleg og full ábyrgðar-
tilfinningar. Og enn einu sinni fylltist
ég aðdáun yfir því hvað sumar konur
geta verið óendanlega þrautseigar.
Yngsta barn hennar.Sofia, 14 ára, er
með í ferðinni en hefur lagt sig eftir
flugferðina. Hún hefur frá fæðingu
vægan heilaskaða (á læknamáli
skammstafaður MBD). Þetta lýsir sér í
vissum talörðugleikum og þar með fé-
lagslegum samskiptum, en annars er
þetta glöð og falleg stúlka.
Auk þess að hlúa að börnunum
fjórum og drykkjumanninum var
Marta í átta ár skólastjóri og bar þá
ábyrgð á 6000 nemendum og 160 kenn-
urum. Þetta var stofnun fyrir fullorð-
insfræðslu.
Þegar ég spyr hvernig hún hafi farið
að þessu segir hún: „Ég flúði í vinnuna
vegna þess að ég gat ekki horfzt i augu
við veruleikann heima hjá mér. Þaðeru
fleiri flóttaleiðir en áfengið.”
Hún fær oft bréf frá konum sem
þakka henni fyrir Ástarsögu aldarinnar
og segja „Maðurinn minn er ekki
áfengissjúklingur, hann er vinnusjúkl-
ingur, og ég næ engu sambandi við
hann.”
ATVINNA
Unga duglega menn vantar nú þegar til starfa í vettlinga-
deild okkar að Súðarvogi.
Unnið í bónuskerfi. Uppl. í síma 12200 i dag og næstu
daga.
pr
oo
SEXriuœsEXNÖeouD
SJmtlHUIERfllN K
Skúlagötu 51.
80 sænskir fólagsráð-
gjafar þurftu skemmtun
En hvernig stóð á því að hún þorði
að setja á prent þessar miskunnarlausu
lýsingar á heimilislífi sínu?
„Ég skrifaði þetta bara fyrir sjálfa
mig,” segir Marta, „bara til að fá út-
rás, bara til að lifa af. Hefði ég ætlað
að birta það hefði mér ekki dottið í hug
að skrifa það svona.
Svo lá þetta í skúffu hjá mér.
Skrifar nu um dóttur
sína
Viðtökurnar á „Ástarsögu aldarinn-
ar” gáfu Mörtu sjálfstraust og fjár-
hagslega möguleika til þess að hætta
skólastjórninni, leigja sér vinnuher-
bergi og snúa sér alfarið að ritstörfum.
En hún hefur snúið sér frá hjónaband-
inu í bili. Ljóðabók hennar frá í fyrra
„Myrkrið sem gjörir gleðina djúpa”
segir frá móður og syni. Þau ganga
saman gegnum mikla spennu vegna
geðrænna vandamála sinna. Þetta
gerist fyrir svo sem hundrað árum
síðan, en gæti alveg eins átt sér stað í
dag.
í vikunni sem leið skilaði hún svo af
sér handriti um veikindin sem dóttir
hennar, Sofia, á við að glíma. Hún
segir að það sé enginn skáldskapur,
heldur upplýsingar, og reyndar hefur
Sofia sjálf skrifað kafla í hana.
Um að vera foreldri segir Marta:
„Foreldrar eru einlægt með sektar-
kennd, en í rauninni væri sektarkennd
eðlilegri gagnvart maka en börnum.
Því maka velur maður sjálfur, en
börnin verður maður að taka eins og
þau eru.”
-IHH.
Til húseigenda
og garðeigenda
Nýjung:
Steinar fyrir
bílastæði og
innkeyrslubrautir.
Mikið úrval af gangstéttarhellum með ávölum brúnum.
Þessar hellur er auðvelt að leggja. Einnig fást kant-
steinar og hleðslusteinar.
Vinsamlega haf ið samband
við okkur sími 30322.
HELLU OG STEINSTEYPAN
VAGNHOFÐ117. SiMI 30322.
REYKJAVtK
í vikunni sem leið skilaði Marta af sér handríti að bók sem fjallar um dóttur hennar, Sofiu. Sofia, sem er fjórtán ára, kom
með móður sinni i þessa stuttu heimsókn til tslands. DB-myndir: Einar Ólason.