Dagblaðið - 02.10.1981, Síða 23
„Sá einn er sekur...” — eftirmáli:
KRISTIN UR FANG-
ELSIÁ SJÚKRAHÚS
—og batahorf ur hennar eru góðar
Á mánudaginn var sýndi sjón-
varpið athyglisverða brezka mynd
um 14 ára gamla stúlku sem dæmd
var til lífstíðar í fangelsi. Hét myndin
,,Sá einn er sekur. . . ” (Life for
Christine). Var myndin gerð að til-
stuðlan brezka geðverndarfélagsins
MIND.
í símasamtali við DB sagði fulltrúi
MIND í London, að stúlkan hefði
nýlega verið flutt úr fangelsinu á
venjulegt geðsjúkrahús. Væri andleg
líðan hennar nú miklu betri og góðar
horfur á því að hún yrði með tíman-
um útskrifuð sem heilbrigð.
Fulltrúi MIND var spurður hvort
kvikmyndin mundi hafa átt sinn þátt
í að Christine komst úr fangelsinu í
hendur lækna, og hann svaraði: ,,Já,
ég held að myndin hafi hjálpað mál'-
staðhennarmikið.” -IHH.
SKONROKK - sjónvarp í kvöld kl. 20.50:
Rolling Stones koma og flytja sitt nýjasta lag, Start Me Up.
Lundúnasinfónían og Rolling Stones
eru meðal f lytjenda f Skonnrok(k)
„Fyrsta Skonrokk eftir sumarleyfi
byrjar á Sinfóníuhljómsveit Lundúna.
Hún er ásamt fleirum komin í þá vin-
sælu iðngrein syrpuiðnina og flytur
fyrir okkur syrpu af klassískum stefj-
um með diskótakti,” sagði Þorgeir
Ástvaldsson er hann var inntur eftir
molum úr Skonrokkskistunni í kvöld.
„Það hefur safnazt fyrir talsvert af
lögum meðan þátturinn lá niðri svo að
ég hef ýmislegt í pokahorninu þessa
dagana,” sagði Þorgeir. „Alls verða í
þættinum í kvöld níu lög ný og nýleg.
Einnig hef ég reynt að hafa þáttinn sem
fjölbreyttastan svo að flestir finni sér
eitthvað við hæfi.”
Helzta skrautfjöðrin í þættinum í
kvöld er eflaust glæný filma með
hljómsveitinni Rolling Stones. Hún
flytur þar lagið Start Me Up á þann
hátt sem gömlum, þreyttum rokkurum
einum er lagið. Þá koma grínistarnir í
Madness fram og flytja lagið Gray
Day. Rockabillyið verður á sínum stað.
Lærisveinar Micks Jagger, Stray Cats,
flytja lagið Runaround Boy.
Þunga deildin fær einnig eitthvað
fyrir sig í kvöld. Hljómsveitin White-
snake flytur eitt lag og hljómsveitin
Gillan með Ian Gillan í broddi fylking-
ar tekur sannkallað himnaríkisrokk,
lagið I Wanna Go To Heaven. Að sjálf-
sögðu bregður hljómsveitin sér til
himna meðan lagið er leikið en eftir er
að sjá hvernig henni gengur að komast
til baka.
Endahnútinn á Skonrokk í kvöld
bindur síðan hljómsveitin Tenpole
Tudor með sannkölluðu víkingarokki.
Undir skylmingum og miklu vopna-
glamri flytur hljómsveitin lagið Wund-
erbar.
Litlar breytingar
Þorgeir Ástvaldsson kvað litlar sem
engar breytingar fyrirhugaðar á Skon-
rokki fram að jólum að minnsta kosti.
Þátturinn verður á dagskrá á hálfsmán-
aðar fresti. Þorgeir sagði að enn hefðu
engin leyfi fengizt fyrir því að blanda
islenzku efni innan um hið erlenda.
Þorgeir Ástvaidsson: Efnisöflun f þáttínn
verður nú auðveldari en oft fyrr.
DB-mynd.
Ástæðan er sú að slíkt hefur mikil út-
gjöld i för með sér fyrir sjónvarpið.
, ,Ég á þó von á að auðveldara verði
AÐ GERA JÖRÐINA MENNSKA - útvarp í kvöld kl. 21.20:
Um störf Samhygðar
Argentinu-
maðurinn Silo
er hugmynda-
smiður Sam-
hygðar. Það
er félag sem
vinnur að
jafnvægi og
þróun manns-
ins.
í kvöld, föstudag, verður
á dagskrá hljóðvarpsins þátturinn
„Að gera jörðina mennska” og
fjallar hann um starf Samhygðar.
Samhygð er félag sem vinnur að jafn-
vægi og þróun mannsins og var form-
lega stofnað á Islandi 18. ágúst 1980.
Hinn 4. maí 1969 flutti Argentínu-
maðurinn Silo opinbera ræðu sem
hann nefndi „Lækningþjáningarinn-
ar” og markar hún upphaf Samhygð-
ar í heiminum. Árið 1972 kom svo út
bókin Innri ró eftir Silo og hefur hún
að geyma kenningu þá sem Samhygð
byggir á. Samhygð er nú starfandi í
43 löndum víðs vegar um veröldina.
í þættinum er fjallað um nauðsyn
þess og mikilvægi að staldra við og
huga að því hvert stefnir í lífinu og
gera breytingar til hins betra í okkar
daglega lífi; hverju við þurfum að
breyta og hvernig við getum farið að
því. Gefið er dæmi um það hvernig
allir geta unnið skipulega að breyt-
ingum hjá sjálfum sér og sínu nán-
asta umhverfi.
Höfundar og flytjendur efnis í
þættinum eru: Helga Mattína Björns-
dóttir, Ingibjörg G. Guðmundsdótt-
ir, Júlíus Kr. Valdimarsson og
Methúsalem Þórisson.
Umsjónarmaður þáttarins er Gísli
Helgason.
fyrir mig um efnisöflun en áður af
ýmsum ástæðum,” sagði Þorgeir.
„Bæði er það að ég hef talsvert í hand-
raðanum núna og svo hafa opnazt betri
leiðir fyrir efni en áður.”
Hann var að lokum inntur eftir því
hvort aðdáendur Kiss hljómsveitarinn-
ar fengju eitthvað við sitt hæfi á næst-
unni. Sá hópur hefur verið öðrum dug-
legri við að skrifa lesendabréf og vekja
athygli á þvi Kiss-svelti sem þeir væru
hafðirí.
„Ég hef verið að gefa þessu Kiss máli
gaum,” svaraði Þorgeir og hló. „Ég
þori ekki að lofa neinu með hljómsveit-
inni en það eru bjartari vonir en
nokkru sinni fyrr fyrir því að það takist
aðnáífilmurmeðKiss.” -ÁT
■■rfl i ■ rrmnmttmm
FILMUR OG VELAR S.F.
uuauui
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
I LjósastiHingar dagiega
N.K. SVANE
SKEIFAN 5 - SÍMI34362
0PIÐ LAUGARDAGA
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488