Dagblaðið - 02.10.1981, Qupperneq 24
Orkuverðið þarf að vera nógu lágt:
Oráblegt aö standa einir
að kísilmálmverksmiöju
—segir Jón Sigurðsson, forstjóri járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga
„Ég tel óráðlegt að við stöndum
einir að kísilmálmverksmiðju vegna
~ þess hvað hún kostar mikið. Bezt
væri að við semdum við erlenda aðila
um að koma þesu efni inn á markað-
inn. Ný verksmiðja verður að geta
ruðzt inn á markaðinn,” sagði Jón
Sigurðsson, forstjóri járnblendiverk-
smiðjunnar, í viðtali við DB.
Kísilmáimverksmiðja á Reyðar-
firði er í burðarliðnum. Búizt er við
frumvarpi um hana á Alþingi í vetur.
Jón Sigurðsson sagði að ein kísil-
málmverksmiðja á Reyðarfirði af
þeirri stærð sem rætt hefur verið um
mundi bæta 5 prósent við heimsfram-
leiðsluna af þvi efni. Slíkt væri ekki
einfalt mál þegar umframfram-
leiðslugeta er veruleg í heiminum.
Ný verksmiðja ætti undir högg að
sækja. Nýjasta verksmiðjan yrði
jafnframt sú dýrasta og bæri þyngstu
byrðarnar af fjármagnskostnaði. Þvi
yrði orkuverðið það sem úrslitum
réði. Það yrði að vera nógu lágt til að
tryggja grundvöll slikrar verksmiðju
fyrstu árin. „Kísilmálmverksmiðja er
sjálfsögð og Reyðarfjörður eins
góður staður og hver annar,” sagði
Jón Sigurðsson. En hún yrði að gefa
eftir í verði til að komast inn á mark-
aðinn. -HH.
BLUSAÐ A BORGINNIIGÆR
—á sjötta hundrað manns skemmtu sér konunglega
„I tell you that Reykjavík is the
friendliest place in the world ... I tell
you” þrumaði umbi Missisippi Delta
Blues Band yfir himinlifandi aðdá-
endum á Hótel Borg. Mikil fagnaðar-
læti brutust út er hann hafði lokið
ræðu sinni af og síðan fór stemmning-
in stigvaxandi út kvöldið, þótt nokkur
skörð væru komin í raðir hinna 550
tónleikagesta undir hið síðasta.
Unnendur blústónlistarinnar létu sig
ekki vanta á Borgina í gær og þeir sem
voru hvað ákafastir voru mættir upp
úr kl. 20 til að tryggja sér sem bezt út-
sýni og upp úr kl. 21 var salurinn
orðinn þéttsetinn (og staðinn). Mændu
menn á auð sæti likt og deyjandi menn
á vatn í eyðimörk.
Kvintettinn lék og söng á þriðju
klukkustund fyrir blúsþyrsta hugi
mörlandans og ekki bar á öðru en
undirtektir væru góðar. Varð hljóm-
sveitin að leika aukalag áður en hún
fékk að ganga af sviði og hefði vafa-
lítið tekið annað ef tíminn hefði ekki
verið útrunninn. ,,We don’t get tired of
playing, but the place is closing down
tonight” tilkynntu þeir félagar og þar
við sat. Fastlega má því búast við að
NEFS-klúbburinn verði troðfullur á
siðari tónleikum hljómsveitarinnar i
kvöld. -SSv.
Endanlegar niðurstöður dómnef ndar:
Starfsaldurslisti
flugmanna óbreyttur
—nema hvað Smári Karlsson venður efstur
Sameinaður starfsaldurslisti flug-
manna Flugleiða liggur nú endanlega
fyrir. Hin ríkisskipaða dómnefnd
hefur nú skilað niðurstöðu sinni og er
listinn óbreyttur frá því sem hann
var er Flugleiðir röðuðu á listann,
með þeirri einu undantekningu þó að
Smári Karlsson fiugstjóri verður efsti
maður á listanum. Hann var númer 2
áður.
„Mér fannst illa að þessu máli
staðið í upphafi. Það er ýmislegt, sem
ég hefði viljað sjá öðruvisi en það
er,” sagði Kristján Egilsson, for-
maður Félags islenzkra atvinnuflug-
manna, er DB bar undir hann niður-
stöðuna. ,,En það er ekki til neins að
tína til smáatriði, þetta er endanlegt
og þessu verður ekki breytt. Ég á ekki
von á neinum eftirköstum, það yrði
aðeins til þess að skemma fyrir okkur
sjáifum.”
Ekki náðist i morgun i neinn
forystumanna úr hópi þeirra flug-
manna er voru í 'Félagi Loftleiðaflug-
manna. Þeir höfðu áður lýst því yfir
að þeir samþykktu listann eins og
hann lá fyrir.
í dómnefndinni voru Bárður
Daníelsson, Guðmundur Jónsson
borgardómari og Guðmundur
Magnússon háskólarektor. KMU/JH.
frjálst, úhád dagblað
FÖSTUDAGUR 2. OKT. 1981.
„Ufshlaup” Kjarvals
enn íbrennidepli:
Tilboð borgar-
innarhærra
eftirallt?
„Við munum leggja fram skýrslu í
borgarráði í dag varðandi kaup á lista-
verkinu,” sagði Björn Friðfinnsson við
DB i morgun. Hann hefur, ásamt Jóni
G. Tómassyni borgarlögmanni, staðið i
samningaumleitunum við Guðmund
Axelsson í Klausturhólum, eiganda
„Lífshlaups” Kjarvals.
Eftir því sem næst verður komizt ber
enn talsvert í milli hjá þessum aðilum.
Guðmundur hélt í morgun til Dan-
merkur. Er af sumum talið að hann
hafi farið utan til að semja um sölu
verksins til ákveðins aðila þar úti en
ekkert er sannað í þeim málum.
Guðmundur hefur þverneitað að sýna
borginni það tilboð sem hann hefur
sagzt hafa í höndum að utan, þannig að
í raun veit enginn með fuilri vissu hvort
tilboð hefur borizt í verkið frá Dan-
mörku.
Listaverkasafn Carlsberg-verksmiðj-
anna hefur verið nefnt sem þessi til-
boðsaðili að utan og í raun er talið hag-
stæðara á allan hátt fyrir eiganda
„Lífshlaupsins” að selja það úr landi
þar sem ekki kæmi þá til greiðsla sölu-
skatts af því. Umboðsmönnum borgar-
innar voru sett ákveðin mörk í tilboðs-
gerð og eftir þvi sem DB hefur frétt
hefur verið talið að tilboð það sem á að
hafa komið í verkið að utan sé ekki eins
hátt og það sem borgin bauð. -SSv.
Indriði ófundinn
Enn hefur leitin að Indriða Jónssyni,
Hátúni 10 Reykjavík, engan árangur
borið. Lögreglunni hafa borizt margar
ábendingar um að Indriði hafi sézt á
ákveðnum stöðum en þær hafa ekki
borið árangur enn en ennþá er verið að
vinna úr þeim.
í gærkvöldi beindist þungi leitar-
innar að Lágafellssvæðinu, Hamra-
hlíðinni og verzlunarhverfinu í Mos-
fellssveit. Var leitað fram á nótt. A.St.
mt7
T
jTT
Q Ö'
[VINININPUR
IVIKU HVERRI
Askrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo ijónheppinn að
fá að svara spurningunum f leiknum
„DB-vinningur f viku hverri”. Nú
augiýsum við eftir honum á smá-
auglýsingasiðum biaösius i dag.
Vinningur i þessuri viku er 10
gíra Raleigh reiðhjól fró
Fólkanum, Suðurlandsbraut 8 I
Reykjavík.
Fyigizt vel með, óskrifendur,
fyrir ncestu helgi verður einn ykkar
glœsilegu reiðhjóli ríkari.
hressir betur.