Dagblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981. 5 Þórður Gunnarsson á skrífstofu sinni. DB-mynd Gunnar Örn. Nýr þáttur á Neytendasíðu: Lögin eins og þau snúa að neytendum Þórður Gunnarsson er fæddur 23.1. 1948 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá M.R. árið 1969 og hóf þá nám við lagadeild Háskóla ís- lands. Þaðan lauk hann embættis- prófi árið 1975 og hóf þá störf sem fulltrúi á málflutningsstofu í Reykjavík. Þar hefur hann starfað síðan og verið meðeigandi síðan árið 1980. Með þessu starfi hefur hann kennt í viðskiptadeild Háskóla ís- lands þar á meðal um óréttmæta við- skiptahætti. Framhaldsnám á þvi sér- sviði stundaði Þórður í háskólanum í Osló í fyrravetur, frá áramótum, og skrifaði að því loknu ritgerð um góða - viðskiptahætti. Þórður mun af og til á næstu mánuðum rita greinar um þá hér á neytendasíðunni. -DS. eiginlega af þeirri stærð sem langflestir óska helzt eftir. Sigurður sagði okkur hins vegar að innan um þessar kartöflur, sem á færibandinu voru, væri það mikið af litlum kar- töflum, sem ekki næðu réttu I. flokks máli að þess vegna hefðu þær verið færðar niður um flokk. Um það bil 60—70% af kartöflunum á færi- bandinu náðu ekki æskilegu ummáli I. flokks. Hvort ekki er ástæða til þess að endurskoða þetta mat á kartöflum skal ósagt látið en yfirmatsmaður garðávaxta sagði í samtali við DB að reynt væri að örva kartöflubændur til þess að framleiða stærri kartöflur með því að greiða þeim hærra verð fyrir þær. Væri það ekkiaðeinsvegna þess að það hefði sýnt sig aðineyt- endur vildu heldur stórar kartöflur heldur einnig vegna þess að stærri kartöflur þola betur flutning en þær sem minni eru. 34 tonn á viku Ný pökkunarvél var komin í salar- kynni grænmetisins og var unnið af fullu kappi við að pakka kartöflum í bréfpokana með glugganum. „Neyzlan er í algjöru lágmarki núna, fólk er að taka upp eigin upp- skeru,” sagði Sighvatur jóhannsson yfirverkstjóri „Núna er neyzlan i Reykjavík um 34 tonn á viku. Þegar mest er fer þetta upp í 100 tonn á viku.” Grænmetið er með þrjá bila sem lesta tvisvar á dag. Það er reynt að hafa það þannig að þeir sem panta fyrir hádegi fá vöruna eftir hádegi og þeir sem panta eftir hádegi fá hana fyrir hádegi næsta dag. Bílarnir aka einnig út öðrum verzlunarvörum fyrirtækisins, gulrótum, rófum, káli, lauk og öðru því sem er til hverju sinni. -A.Bj. Þessar tvær kartöflur eru býsna likar hvor annarri. En þegar gert er upp á milli þeirra fer önnur, sú til vinstri, i I. flokk en hin sem er tii hægri fer i II. flokk. Áber- andi margar kartöflur af minni stærðinni voru i þessum kartöflum og þvi fóru þær allar i II. flokk. t ljös kom að hjá Grænmetinu er til flokkunarvél, sem flokkar kartöflurnar, þannig að Iitiu kartöflurnar detta úr. Sigurður verkstjóri sagði að bændur yrðu sjálfir að láta kartöflurnar sinar i gegnum vélina og gæti slikt leitt til þess að kartöflurnar færðust upp um flokk. Norðurf lug á Akureyrí orðið að Blue North Air fTexas: TRYGGVIKAUPIR FLUGVÖLL 0G 4 FLUGVÉLAR í TEXAS Tryggvi Helgason flugmaður frá Akureyri gerir það nú gott í Ameríku ef marka má blaðið The Stephenville Star í borginni Stephenville í Texas. Þar hefur Tryggvi keypt sér flugvöll og fjórar flugvélar. Rekur hann nú flugvöllinn og alla starfsemi þar síðan 24. júli í sumar. Kallar hann starfsemi sína Blátt norðurflug — Blue North Air. Stephenville er meðalstór bær skammt frá Dallas í Texas. Tryggvi segir í viðtali við bæjarblaðið að hann hafi ákveðið að flytjast til Bandaríkjanna vegna þess að þar séu möguleikarnir meiri. Hann hafi skoðað nokkra flugvelli í Texas áður en hann kom til Stephenville og ákvað að kaupa flugvöllinn þar, eða nánar tiltekið leiguréttinn, því bæjar- félagið á sjálft landið undir flug- vellinum og flugskýlin. Tryggvi og fyrri eigandi, Cecil Davis, eru fullir áhuga og ráðagerða um framtíðina, segir blaðið. Gera þeir sér vonir um að bæjarfélagið ráðist á næstunni í að byggja nýtt flugskýli og eins eru þeir með hugmyndir um að byggja nýtt flugstöðvarhús. Cecil Davis hefur rekið flugvöllinn í Stephenville i 31 ár en hyggst nú draga sig í hlé eftir að hann hefur aðstoðað Tryggva við að koma sér í gang með starf- semina. Tvær flugvélanna hyggst Tryggvi nota í leiguflug en hinar tvær til kennsluflugs. Allar eru eins hreyfils vélar en Tryggvi er með ráðagerðir um að kaupa fimmtu vélina, tveggja hreyfla, til frekara leiguflugs. Völlurinn er búinn radíóvita, flug- brautarljósum og aðflugshalla- ljósum. Tvær brautir eru þar, önnur 1400 metra löng og hin 900 metra löng. Báðar eru 20 metra breiðar. Blaðamaður Stephenville Star spurði Tryggva hvers vegna hann hefði komið til Bandarikjanna og hvers vegna hann hefði valið einmitt Stephenville. „Ja, ég var eiginlega á leið til Flórída þegar ég kom hingað. Mér leizt vel á völlinn, fólkið og borgina svo ég keypti fyrirtækið. Og ástæðan fyrir því að ég kom til Bandaríkjanna — ég var eiginlega búinn að vera að velta því fyrir mér í tvö ár heima á íslandi áður en ég fór þaðan i júní til að leita fyrir mér. Allir koma hingað í leit að einhverju.” Tryggvi Helgason við eina af vélum slnum á flugvellinum f Stephenville: allir koma i leit aö einhverju. Kona Tryggva og fimm börn eru enn á Akureyri en hann segir að þau muni flytjast utan þegar skóla lýkur næsta vor. -ÓV. Póstsendum Teg. 15 Litir: Svart ledur heinhvítt leður og Ijósbrúnt leður Stærðir: 36-40 Verd kr. 298,70 Skóverzlun Póstsendum ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR Laugavegi 95 — Simi 13570 Kirkjustræti 8 v/Austurvö/l — Simi 14181 Ji Ajl Afc £ fí p V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.