Dagblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 08.10.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981. Hvað segja stjómmálaforingjar um skoðanakönnun Dagblaðsins? Skoðanakannanir Dagblaðsins vekja alla jafna mikla athygli. Reynslan af þein hefur sýnt og sannað að þær eru verulega marktækar og sú aðferð sem beitt er við gerð þeirra hefur fyllilega sannað gildi sitt. Um síðustu helgi gerðu blaðamenn blaðsins skoðanakönnun sem byrjað var að birta niðurstöður úr í gær. Að vanda var valið 600 manna úrtak úr símaskrá, helmingur karlar og helmingur konur. Fyrsta spurningin í könnuninni var um fylgi ríkisstjórnarinnar og hljóðaði svo: Ertu fylgjandi eða andvigur ríkis- stjórninni? Niðurstöðurnar urðu þær að fylgjandi stjórninni voru 42%, and- vígir 23,5%, óákveðnir 22,7% og 11,8% vildu ekki svara. Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu voru niðurstöðurnar þær að fylgjandi stjórninni voru 64,1% en andvígir 35,9%. Dagblaðið leitaði i gær til nokkurra stjórnmálaforingja og leitaði álits þeirra á niðurstöðum könnunarinnar. í blaðinu í gær voru birt ummæli forsætisráðherra og leiðtoga stjórnarandstöðunnar á þingi, Ólafs G. Einarssonar for- manns þingflokks Sjálfstæðis- flokksins. Magnús H. Magnússon varaformaður Alþýðuf lokksins: „Fólkið sér ekki annan möguleika” „Ég er náttúrlega ekkert hissa á niðurstöðunum, siður en svo. Það er greinilegt að ýmsir sem studdu ríkis- stjórnina eru ekki allskostar ánægðir með árangurinn,” sagði Magnús H. Magnússon varaformaður Alþýðu- flokksins og fyrrum ráðherra. ,,Þó hefur ríkisstjórnin orðið fyrir margvíslegum höppum. Hækkun dollarans er eina ástæðan fyrir því að verðbólgan er ekki 60% heldur40%. Allur árangur í baráttunni við verðbólguna er dollaranum að þakka. En það sem mér finnst vera mest áberandi er það sem kemur fram í svörum fólks. Fólkið sér ekki annan möguleika, það sér ekki annan kost. En það er gaman að þessum könnunum ykkar,” sagði Magnús. -KMU. -<------m. Magnús H. Magnússon alþingis- maður og varaformaður Alþýðu- flokksins. Matthías Á. Mathiesen alþingismaður: þverrandi fyigi stjórnar- innar” Matthlas Á. Mathiesen þingmaður Sjáifstæðisflokksins. ,,Að því leyti sem þessi skoðana- könnun er marktæk sýnir hún þverr- andi fylgi ríkisstjórnarinnar frá því í vetur sem ekki kemur á óvart. En grunur minn er nú sá að staða ríkis- sé töluvert mikið verri sýna og það ekki að á- stæðulausu,” sagði Matthias Á. alþingismaður Sjálf- fyrrverandi fjár- -KMU. nTdsstjótrmtm ErtufylðfÍ «,,,1 septem oina„„n4t ctl Vy»»' ct r&zZiiéZ’1 í .. t .. ... tvrf ta' semtaKaal meðaU>e'inra mrinWuta ^turenn V.ont'"1"1' ¥C,‘ ja liinia'*1 jalnnuv'il1' ogutanW--" DtUdinW 4toftutn- H,Vi"»i0,n j.nftjuní1" Frétt Dagblaðsins um niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi ríkisstjórnarinnar i blaðinu i gær. Lúðvík Jósepsson fyrrum ráðherra: UTKOMAN NALÆGT MINU PERSÓNULEGA MATV’ ,,Ég hef oft sagt og segi enn að af- skaplega varhugavert er að treysta, eða taka mark á niðurstöðu skoðana- könnunar. Þar grípur svo margt inn í, spurningartími, gerð spurninga o.fl. Stundum hefur lika komið út af- leit vitleysa sem niðurstaða,” sagði Lúðvik Jósepsson fyrrum ráðherra er hann var spurður álits á niðurstöðu spurningarinnar um fylgi við ríkis- stjórnina nú. ,,Ég neita því hins vegar ekki að oft er talsvert til í því sem niður- staðan segir. Miðað við mitt per- sónulega mat er það nærri lagi að svo margir styðji núverandi ríkisstjórn að rúmlega 60% lýsi yfir fylgi við hana og tæplega 35% segist andvíg henni. Þetta er fremur trúleg niðurstaða,” sagði Lúðvík. „Og undir hana get ég tekið, sem mjög líklega.” „Það er allt í lagi og ágætt að spyrja hvort menn séu fylgjandi eða andvígir ríkisstjóm. En þegar kemur Lúðvfk Jósepsson fyrrum ráðherra. að spurningu um fylgi við flokka hef vara um niðurstöður skoðana- ég mínar sérstöku efasemdir og fyrir- kannana,” sagði Lúðvík. -A.St. Tómas Árnason viðskiptaráðherra: „Stjórnin má vel við „Mér finnst að ríkisstjórnin megi mjög vel við una. Ef ég man rétt þá virðist mér niðurstaðan í skoðana- könnuninni nú vera mjög svjpuð þeirri sem varð í könnun ykkar á sama tíma í fyrra,” sagði Tómas Árnason viðskiptaráðherra og vara- formaður Framsóknarflokksins. „Því er ekki að neita að við höfum búið við hagstæð skilyrði. En ég vil segja frá því að ég er nýkominn af ársfundi Alþjóðabankans þar sem menn voru flestir yfirleitt að kvarta undan atvinnuleysi, stöðnun og verðbólgu,” sagði Tómas. -KMU. Tómas Árnason ráðherra og varafor- maður Framsóknarflokksins. JÚDÓFÉLAG REYKJAVÍKUR Tilkynnum œfingartíma í hinni japönsku glímu._____ Júdó Drengir á mánudögum kl. 17—18 Framhaldsflokkar þriðjudaga og fimmtudagakl. 19—20.30. Innritun fyrir byrjendur og framhaldsflokka mánudaga frá kl. 18—19. Þriöjudaga ogfimmtudaga kl. 18—20. BYRJENDUR VELKOMNIR. Gufubað á staðnum. JÚDÓFÉLAG REYKJAVÍKUR, BRAUTARHOLT118, SÍM116288.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.