Dagblaðið - 08.10.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
mm
Erica Jong, höfundur bókarinnar Fear of Flying, heýur nú skrifað Fanny:
Kvikmyndaleikkonan Laur-
een Bacall átti afmæli hér á dög-
unum og varð hvorki meira né
minna en 57 ára gömul þótt út-
litið beri ekki vott um svo lang-
an lífsferil. Laureen leikur nú í
leikritinu Kona ársins í Palace
leikhúsinu í New York og þykir
gagnrýnendum hún hafa unnið
umtalsverðan leiksigur. Hún var
auðvitað að leika um kvöldið á
afmælisdegi sínum en eins og
myndin sýnir gleymdu vinir og
kunningjar ekki þessum merkis-
degi og fœrðu henni stóra
afmælistertu að tjaldabaki.
Ævintýrakvendi á Englandi á 18, öld
Erica Jong setti allt áannan endánn
með bókinni Fear of flying fyrir nokkr-
um árum. Voru sumir mjög hrifnir,
aðrir stórhneykslaðir, á berorðum lýs-
ingum hennar á ástalífi. Bókin var
þýdd á íslenzku og hét þá ísadóra.
Fyrir nokkru sendi Erica frá sér aðra
bók, sem gerist á 18. öld og lýsir at-
burðaríkum ferli konu, sem nefnist
Fanny. Er það einnig heiti bókarinnar,
sem nú er komin í ódýrri útgáfu og fæst
í bókaverzlunum um allan heim, einnig
í Reykjavík.
Fanny þessi lendir í æðislegum ævin-
týrum. í upphafi bókar er hún munað-
arlaus, lendir á hóruhúsi í London,
síðan á þrælaskipi, verður upp úr því
sjóræningi, og yfirleitt er það varla til
sem hún ekki lendir í. Hún uppgötvar
að hennar líffræðilegi faðir er um leið
barnsfaðir hennar en hann deyr í
klaustri i Sviss og arfleiðir hana að
miklum eignum.
Skopstæling á Fanny
Hill, gamalli sögu um
gleðikonu
Þessi saga er í rauninni skopstæling á
frægri skáldsögu, sem út kom í Eng-
landi árið 1749 og hét Fanny Hill —
endurminningar gleðikonu. Er það ein
frægasta „dónaleg” bók sem nokkurn
tíma hefur verið skrifuð. Höfundurinn,
FÓLK
John Cleland, var bláfátækur og fékk
sem svarar isl. kr. 12000 fyrir handrit-
ið. En aðalsmaður nokkur greiddi
honum síðan föst árslaun gegn því skil-
yrði að hann skrifaði ekki fleiri skáld-
sögur af þessu tagi.
En Erica Jong varð milljónari eftir
að Fear of Flying kom út og skrifaði
Fanny ekki peninganna vegna. Hún
segist hefðu getað grætt margfalt meira
á því að skrifa kvikmyndahandrit þau
fjögur ár sem það tók hana að skrifa
Fanny, sem er um 550 blaðsíðna löng
og að sumu leyti byggð á gömlum
heimildum. Erica Jong reyndi að fara
sem næst sannleikanum i öllum lýsing-
um á daglegu lífi þótt ævintýri
Fanneyjar séu að sjálfsögðu uppspuni.
Kynsvall í munka- og
nunnuklæðum
Erica segir að löngu áður en hún
varð frægur rithöfundur hafi hún lesið
enskar bókmenntir 18. aldar við
Columbia háskóla í Bandaríkjunum.
Kennarar hennar voru mjög skemmti-
legir og kveiktu hjá henni áhuga fyrir
þessu tímabili, í Englandi, og alltaf
uppfrá því langaði hana til að kynna
sér það betur. Hvenær sem hún átti leið
um England skoðaði hún gömul hús frá
þessari öld og hún las allt sem hún
komst yfir um það hvernig fólk hugs-
aði, talaði, borðaði, ferðaðist og
elskaði á þessu tímabili.
Hún gróf upp ýmsar heimildir um það
hvernig getnaðarvarnir, barnsfæðing-
ar og annað sem sífellt verður kvenlegt
viðfangsefni fór fram á þessum tíma.
Af sögum um lauslæti var vissulega
nóg og í bókinni er sagt frá því hvernig
virðulegir borgarar klæddust dularbún-
ingum og leyndust á afskekktum
stöðum til að taka þátt í drykkju og
kynsvalli. Til að hafa þetta sem allra
skemmtilegast klæddust þeir munka-
búningum og dömumar voru í nunnu-
kuflum.
sínafyrstu hljómplötu, seminniheldurlögm:
VJdeó,
Imúmum
og Guðjón Þorsteinsson bifreiðarstjóri
Útg. ogdreifíngarsími: 29767-78971
I rauninni
þroskasaga konu
Bókin Fanny verður þannig blanda
af sagnfræði, ýkjum, aldarlýsingu og
samfarasögum. En Erica segir að það
sé algjör misskilningur að hún skrifi
um samfarir til þess að bækur hennar
seljist betur.
„Mig langaði að skrifa þroskasögu
konu, sem gengur út í lífið án þess að
vita mikið um það, en kynnist smátt og
smátt bæði veröldinni og sjálfri sér.
Hún þarf að þola miklar auðmýkingar
en stendur að lokum með pálmann í
höndunum.
Auðvitað hugsar hún að mörgu leyti
eins og nútímakona þótt hún lifi og
hrærist á 18. öld. Og sannleikurinn er
sá að það er meira úr mínu eigin lífi í
þessari bók heldur en í Fear of flying,”
segir EricaJong.
„Bg imr f/ögur ér að skrifo þessa bók og sökkti mér í sagnfræðilagar rann-
sóknlr isfoð þess að skrifo vel borguð kvikmyndahandrit," segir Brica Jong,
„en samt er meira i henni um sjálfo mig heidur en í Fear of flying."
VERZLI
ÓDÝ
Reykt rúllupylsa ■ kg verð 26,00 kr.
Söltuð rúllupylsa kg verð 23,00 kr.
Hvalkjöt kg verð 26,00 kr.
Hrefnukjöt kg verð 27,00 kr.
Dilkalifur kg verð 40,30 kr.
Dilka hjörtu kg verð 26,70 kr.
Dilka nýru kg verð 26,70 kr.
Dilka mör kg verð 6,40 kr.
Slagvefja með beikoni . . . . . . . 21,00 kr.
Kjúklingar, 4 stk. í poka, kg verð 54,00 kr.
Kjúklingar kg verð 61,00 kr.
Skankasteik kg verð 48,90 kr.
Slog••■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■ kg verð 10,50 kr.
Niðursagaðir lamba frampartar kg verð 31,80 kr.
Saltkjöt kg verð 38,95 kr.
Hangikjöt allt á gamla verðinu.
Lambakjöt allt á gamla verðinu
5 slátur í kassa úr Borgarnesi.
Verð á kassa 235,00
Frá 1. okt. verður opið:
Mánud. — miðvikudag. kl. 9—18.
Fimmtudaga kl. 9—20.
Föstudaga kl. 9—22 — laugardaga kl.
9-12.
JON
LOFTSSON H/F
HRINGBRAUT 121
SÍMI 10600
OP/o
tilkl.