Dagblaðið - 08.10.1981, Side 11
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
Lífeyrissjóður bænda 1980:
NEYTENDUR LÁTN-
IR GREIÐA HELMING
AF TEKJUM SJÓÐSINS
fjórðungur til viðbótar opinberír styrkir en aðeins
fjórðungur greiddur af sjóðfélðgum
í rekstrarreikningi Lífeyrissjóðs
bænda fyrir árið 1980 kemur fram að
neytendur í landinu greiða til sjóðsins
meira en helming allra iðgjaldatekna
hans. Sú upphæð er neytendur
þannig greiða þessum lífeyrissjóði
var á árinu 1980 samtals
1.241.781.000 krónur eða 12.417.810
nýkrónur. Heildariðgjaldatekjur
sjóðsins voru 24.736.585 kr.
Auk þeirra 12,4 milljóna króna
sem Lífeyrissjóður bænda fær úr
vösum neytenda, fær hann að auki
3,36 milljónir kr. frá ríkissjóði (vasi
skattgreiðandans) og 2,02 milljónir
frá Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Iðgjaldatekjur Lífeyrissjóðs bænda
frá sjóðsfélögúm er aðeins rúmlega
fjórði hluti tekna sjóðsins eða 6,7
milljónir nýkróna.
í velflestum lífeyrissjóðum
landsins, kannski öllum nema einum,
greiðir sjóðsfélagi 4% af launum sín-
um til sjóðsins og atvinnurekandi 6%
á móti. Engar tekjur koma í flesta líf-
eyrissjóði starfsmannafélaga frá
rikinu.
Bændur eru taldir vera atvinnu-
rekendur þegar það á við en þegar
það á ekki við, eins og t.d. þegar um
Lífeyrissjóð bænda er að ræða, eru
þeir launþegar. í því tilfelli sem hér er
nefnt kemur dæmið út eins og neyt-
endur séu atvinnurekendur bænda og
greiði helmingi hærra en þeir til
þeirra eigin lifeyrissjóðs.
Umræddar greiðslur neytenda til
Lifeyrissjóðs bænda, tvöfaldar á
móti framlagi bænda sjálfra, eru
greiddar til sjóðsins af þvi fé sem
ríkissjóður ver til niðurgreiðslna
landbúnaðarvara. Þær greiðslur eru
himinháar og hækka stöðugt. Allar
koma þær úr vösum skattgreiðenda.
Á árinu 1980 þágu 1770 manns úr
bændastétt greiðslur úr Lífeyrissjóði
bænda, samtals rúmar 14 milljónir
króna. -A.St.
BARNAHJÓLIN
VINSÆLU
Á tækifærisverði
til mánaðamóta
14 tommu m/hjálparhj&lum. IStommu
Verð áöur kr. Ö40< Verð 6ðurT09<L-
Nú kr. 750.-
Núkr.870.-
Prihjól m/pallí Þríhjól
Verð áður kr. '450.- Verð áður'360«-
Nú kr. 360.- Nú kr. 288.-
ISCARGO VILL B0EING-727
Nautgripabændur i Andesfjöllum í
Perú eru væntanlegir hingað til lands í
næstu viku. Hafa þeir áhuga á að
kaupa Lockheed Electra-flugvél
Iscargo, að sögn Kristins-Finnboga-
sonar framkvæmdastjóra í samtali við
DB í fyrradag.
Sagði Kristinn að Iscargo stefndi að
því að kaupa Boéíng 727—100 sem
hentaði vel þar sem hægt væri að setja í
hana vörupalla auk þess sem hægt
væri að flytja með henni farþega á
sama tíma. Væri slík vél litlu dýrari en
Electra-vélin.
Iscargo hefur leyfi til að nota vélar
Transavia í einn mánuð í viðbót. Verði
félagið ekki búið að fá sína eigin þotu
þá verður reynt að brúa biiið með
íslenzkri leiguvél. Hefur Iscargo fengið
tilboð bæði frá Arnarflugi og
Flugleiðum i þvi sambandi. Að sögn
Kristins reyndist tilboð Arnarflugs of
hátt en Flugleiðir sýndu meiri
sveigjanleika, yrði því reynt að semja
við Flugleiðir.
Verði af sölu Electru-vélarinnar og
kaupum á Boeing 727-100 þotu þýddi
það að flutningar Iscargo færu fram
um Keflavíkurflugvöll í stað Reykja-
víkurflugvallar. Flugmálastjórn leyfir
ekki notkun Reykjavikurflugvallar til
reglubundins þotuflugs.
-KMU.
Póstsendum.
Hjól & Vagn
Háteigsvegi 3,105 Reykjavík. Sími (91)21511
HHini ■ ■ ■ imwwn
y
n
FILMUR QG VELAR S.F.
yuuj
SKÖLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
@ SANYO — video _ @ SANYO — video — © SANYO — , video
★ Alftað 3 klst og 15 mín. kassettuspólur.
★ Verð og fyrirferó spólanna í lágmarki.
★ Minni fyrir sjátfvirka upptöku í 7 daga.
★ Beta kerfið erþekkt um heim allan, Fischer, Sony,
Toshiba, Sanyo og fíeiri helztu videoframleiðend-
urerumeðþað.
★ Sanyo video er japönskgæðavara
★ Verðiö er alveg ótrúlegt
KYNNTU ÞÉR BETUR
KERFIÐ ÞEIRRA
þá kemstu að því að Sanyo Beta
er tækið fyrírþig
KYNTU ÞÉR BETUR
VERÐIÐ ÞEIRRA
ogþá kemstu að því að
Sanyo Beta er fyrirþig.
SANYO myndsegulbandseigendur gerist meðlimir um
leið og kaupin eru gerð.
Verð: 13.650
ÚTBORGUN KR. 6000.-
EFTIRSTÖÐVAR
Á6-8MÁN.
Staðgreiðsla:
12.950
Akurvík, Akureyri
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200