Dagblaðið - 08.10.1981, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
15
wBaiHMai I rtTtlufM
■M——HMHUMBfcaaMWBBMPrgM
ígiu
llTOT
íþróftir
iþróttir
iþróttir
iþróttir
D
Pétur skoraði úr víti
er Anderlecht vann heppnissigur á Lokeren. Meiddist á hné 15 mín. fyrir leikslok
„Við vorum heppnir að hljóta bæði
stigin í leiknum við Lokeren hér i
Briissel i gærkvöld. Anderlecht sigraði
3—2 eftir að staðan i hálfleik var 0—1
fyrir Lokeren. Ég var i byrjunarliði
Anderlecht og Arnór Guðjohnsen lék
allan leikinn með Lokeren. Fimmtán
mfn. fyrir leikslok fékk ég spark f hné
og varð að fara út af. Ég veit ekki fyrr
en siðar i dag hvort meiðslin eru alvar-
leg,” sagði Pétur Pétursson, þegar DB
ræddi við hann. Pétur skoraði eitt af
mörkum Anderlecht úr vitaspyrnu.
Það var mikill áhugi á þessum leik í
Brilssel, uppselt og áhorfendur um 40
þúsund. Lokeren náði forustu í fyrri
hálfleik með marki danska markaskor-
arans mikla, Preben Elkjær Larsen.
Snemma í síðari hálfleik var dæmd
vítaspyrna á Lokeren fyrir hönd innan
teigs. Pétur tók spyrnuna og skoraði
1 — 1. Anderlecht komst síðan í 3—1
með mörkum Kenneth Brylle og Willie
Geurds en Larsen minnkaði m uninn í
3—2. Leikurinn var skemtilegur og
fjörugur og mikil stemmning. Lokeren
fékk mjög góð tækifæri, sem liðinu
tókst ekki að nýta, og nokkur heppnis-
stimpill á sigri Anderlecht að sögn
Péturs. Frí verður nú í ellefu daga í 1.
deildinni vegna HM-leiks Belgíu og
Hollands og Pétur fær því góðan tíma
til að jafna sig í hnénu. Arnór slapp við
meiðsli í leiknum og heldur til móts við
íslenzka landsliðið á sunnudag. Úrslit í
gær urðu þessi.
Mechelen—FC Liege 0—0
CS Brugge—Beringen 3—2
Waterschei—Lierse 0—0
Anderlecht—Lokeren 3—2
T ongeren—Winterslag 1 —0
Standard—Courtrai 3—0
Antwerpen—FC Brugge 3—0
' Beveren—Ghent 0—0
Waregem—Molenbeek 1—0
Staðan er nú þannig: ' -
Anderlecht 8 5 2 1 20—9 13
Ghent 7 5 11 10—5 11
Standard 8 4 3 1 16- -8 11
FC Liege 8 4 2 2 13- -7 10
Antwerpen 8 4 2 2 10- -4 10
Lierse 8 4 2 2 12- -10 10
Lokeren 8 4 1 3 9- -8 9
Tongeren 8 3 2 3 11- -11 8
Courtrai 8 3 2 3 8- -11 8
Molenbeek 7 3 1 3 9- -10 7
CS Brílgge 8 3 1 4 16—18 7
Waregem 8 2 2 4 7- -7 6
Beveren 6 2 2 2 5- -5 6
FC BrOgge 8 2 1 5 12- -15 5
Waterschei 8 1 3 4 8- -16 5
Beringen 5 2 0 3 7- -9 4
Winterslag 7 1 1 5 5- -16 3
Mechelen 8 0 3 5 8- -15 3
41. tbl. 43. árg. 8. október 1981
— Verð 27 kr.
Ný framhaldssaga
Pat Benatar í opnu
Fimm mörk Liverpool
Meistarar Liverpool i deildabikarnum
unnu stærsta sigurinn i gærkvöld, þegar fyrri
leikirnir i 2. umferð f keppninni voru háðir
eða þeir sem eftir voru. Margir leikir á
þriðjudag. En það skyggði á 5—0 sigur
Liverpool á Exeter að aðeins 11.478 áhorf-
endur voru á Anfield. Fæstir áhorfendur sem
þar hafa verið á meiri háttar leik. staðan 3—
0 f hálfleik. Ian Rush, Terry McDermott og
Kenny Dalglish skoruðu. Glæsimark hjá
Rush, þrumufleygur af 25 metra færi. 1
þeim siðari skoraði hann aftur og Ronnie
Whelan fimmta markið.
Andy Gray skoraði fyrir Úlfana gegn
Aston Villa á 32. mín. en var svo rekinn af
velli á 54. mín. Strax á eftir kom Joe
Gallagher Úlfunum í 0—2. Þá vöknuðu leik-
menn Villa. Des Bremner og Andy Blair
jöfnuðu og rétt í lokin skoraði Tony Morley,
sem hafði komið inn á fyrir Peter Withe, sem
meiddist, sigurmark Villa. Verra var hjá
Notts County í Lincoln. Tveir leikmenn
liðsins, Benjamin og Christie, reknir af velli.
Leikmenn County níu lokakaflann en náðu
þójafntefli 1—1. Úrslit í gær.
Aston Villa—Wolves 3—2
Blackburn—Sheff.Wed. I—1
Bradford—Mansfield 3—4
Derby—West Ham 2—3
Leeds—Ipswich 0—1
Lincoln—Notts Co. 1 — 1
Liverpool—Exeter 5—0
Man. City—Stoke 2—0
Newcastle—Fulham 1—2
Sunderland—Rotherham 2—0
Tottenham—Man. Utd. 1—0
Norwich—Charlton 1—0
Leikmenn Man. Utd. voru miklir klaufar
Ármann vann
Einn leikur fór fram í 3. deild karla í hand-
knattleik i gærkvöldi. Ármann og Ögri léku í
Laugardalshöllinni og sigruðu Ármenningar,
sem féllu i 3. deild í fyrsta skipti i fyrra,
örugglega, 35—10, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 14—1. Ögri, félag heyrnar-
daufra, tekur nú i fyrsta skipti þátt i íslands-
mótinu i handknattleik. Liðið tapaði einnig
með nokkrum mun gegn Akranesi á dögun-
um en fall er fararheill og þátttaka félagsins
er stór áfangi i málefnum fatlaðra.
-VS.
að tapa á White Hart Lane. Mun betra liðið
framan af. Á 3. mín. fékk United horn-
spyrnu sem Wilkins tók. Frank Stapleton
skallaði að marki og knötturinn var á leið í
markið, þegar Steve Coppell kom og ætlaði
að bæta um betur en spyrnti yfir. Marc Falco
meiddist á 10. mín. og kom Giorgio Mazzon
í hans stað hjá Tottenham. Eftir því sem leið
á hálfleikinn kom Tottenham meira inn í
myndina en Steve Coppell fékk þó aftur
dauðafæri í lok hálfleiksins. Skallaði fram-
hjá af 4 metra færi og markið opið. Mikil
spenna í s.h. og rúmlega 40 þúsund áhorf-
endur vel með á nótunum. Á 63. mín. slas-
aðist Gary Birtless og var borinn af velli.
Tveimur mínútum síðar skoraði Steve
Archibald sigurmark Tottenham. Mikið
klaufamark Gary Bailey. Hann var allt of
framarlega, þegar Archibald fékk knöttinn
við vítateiginn. Reyndi að vippa yfir Bailey,
sem hafði hendur á knettinum og missti hann
svo í markið. Bryan Robson lék sinn fyrsta
leik með United. Átti rólegan dag og var
bókaður. Liðin: Tottenhan: Clemence,
Perr-yman,. Houghton, Miller, Roberts,
Ardiles, Hoddle, Villa, Falco (Mazzon),
Archibald og Galvin. Man. Utd.: Bailey,
Gidman, Albiston, Buchan, Moran,
Robson, Wilkins, Mcllroy, Coppell,
Stapleton, Birtles (Duxbury).
Fjörleikur í Derby. Heimaliðið komst yfir
á 10; mín. með sjálfsmarki Ray Stewart.
DavidCross jafnaði á 13. mín. og misnotaði
síðan tvö góð færi. í fyrsta upphlaupinu, eftir
10 sek. í s.h. skoraði Kevin Hector, sem
verður 37 ára í næsta mánuði, annað mark
Derby. Trevor Brooking jafnaði í 2—2 á 47.
mín. Fimm mín. fyrir leikslok skoraði Stew-
art sigurmark WH úr vítaspyrnu. Eric Gates
skoraði sigurmark Ipswich í Leeds á 72. mín.
eftir að Ipswich hafði lengi átt í vök að verj-
ast. Dennis Smith skoraði furðulegt sjálfs-
mark í leiknum á Maine Road. Kastaði sér
niður og skallaði með tilþrifum í eigið mark.
Asa Hartford skoraði siðara mark Man.
City. Fox, markvörður Stoke, varði víta-
spyrnu frá Dennis Tueart. Arsenal bauð
Man. City 450 þúsund pund í Tommy Caton
í gær. Boðinu strax hafnað og hjá Man. Utd.
tilkynnti Coppell í gær, að hann vildi alls
ekki fara frá félaginu. Lék sinn 200 deilda-
leik í röð með United á laugardag. Rowell og
Ritchie skoruðu mörk Sunderland, Hooks
fyrir Notts Co. -hsim.
„Ég vona að þetta sé ekkl alvarlegt
en eins og máliö stendur núna er
óljóst hvort ég gerist atvinnumaöur
hjá Fortuna Dússeldorf. Sennilega
fer ég ekki til Þýzkalands aftur á
föstudag eins og til stóö,” sagði
Pétur Ormslev, þegar DB ræddi viö
hann. Þeir Pétur og þýzki umboðs-
maðurinn Reinke komu til íslands í
gær. Hófu viðræður i gærkvöld við
forráðamenn knattspyrnudeildar
Fram. Þar kom fram nokkur ágrein-
ingur um atriði í samningsuppkasti
Péturs við þýzka félagið og fór málið
í strand í bili að minnsta kosti. „Ég
veit ekki hvernig þýzka félagið tekur
þessu en það skýrist næstu daga,
þegar Reinke hefur rætt við forráða-
menn Dússeldorf,” sagði Pétur.
Myndin að ofan var tekin, þegar
Pétur og Reinke komu til fundar við
forráðamenn Fram að Hótel Loft-
leiðum í gærkvöldi.
DB-mynd Bjarnleifur.
Uppskeruhátíð
hjá dómuram
Knattspyrnudómarar efna til uppskeru-
hátíðar um helgina og hefst hún kl. 19 á
laugardag í Snorrabæ. Knattspyrnudómara-
samband íslands skorar á alla dómara að
mæta en aðgöngumiðarnir eru hjá Villa Þór
rakara._______________
Þorsteinnístað
Guðmundar
„Landsliðshópurinn sem fer til Wales
verður óbreyttur frá HM leiknum við Tékka
á dögunum, nema Þorsteinn Bjarnason,
markvörður frá Keflavik, tekur sæti Guð-
mundar Ásgeirssonar,” sagði Helgi Daníels-
son formaður landsliðsnefndar KSÍ i gær.
Eins og kunnugt er leika Wales og ísland í
undankeppni HM þann 14. október, næsta
miðvikudag, og verður leikið á Vetch Field,
heimavelli 1. deildarliðs Swansea. Flogið
verður til London á sunnudag og þar munu
atvinnumennirnir sex, Atli, Janus, Ásgeir,
Magnús, Arnór og Örn, koma til móts við
félaga sína sama dag.
-VS.
Valur hitti fyrir ofjarla
sína í London
þegar liðið tapaði fyrir Crystal Palace 118-80
„Þetta fór nú eins og við reiknuðum
frekar með,” sagði Einar Matthías-
son, liðsstjóri Vals, þegar DB náði
tali af honum simleiðis í gærkvöldi.
„Lið Crystal Palace er geysisterkt, þeir
hafa sex leikmenn sem eru jafnháir eða
hærri en hæsti leikmaður okkar. í
liðinu eru fjórir Ameríkanar, tveir af
þeim enskir ríkisborgarar, og það
leikur mjög hraðan og skemmtilegan
körfuknattleik,” sagði Einar.
Það fór eins og búast mátti við, Vals-
menn sóttu ekki gull í greipar ensku
bikarmeistaranna, Crystal Palace, er
Iiðin mættust í Evrópukeppni bikar-
hafa í London í gærkvöldi. Crystal
Palace sigraði örugglega með 38 stiga
mun, 118—80, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 60—26 þeim ensku í hag.
Fyrri hálfleikurinn reyndist Vals-
mönnum mjög erfiður. Crystal Palace
pressaði mjög stíft í byrjun og beitti
svæðispressu um allan völl. Jafnt á 1.
mín. 2—2, í eina skiptið f leiknum.
Palace skoraði þá 6 körfur í röð,
staðan 14—2, tölur sem knattspyrnu-
menn okkar þekkja betur. Eftir 7 mín-
útur stóð 24—8 en þá tóku Valsmenn
aðeins við sér og munurinn jókst ekki
næstu fimm minúturnar, staðan 35—
18. Þá setti Palace allt í gang á ný og
staðan i hálfleik eins og áður sagði
60—26.
Valsliðið lék mun betur í síðari hálf-
leik enda höfðu menn þá áttað sig betur
á aðstæðunum. Stigaskorunin var
mjög áþekk hjá liðunum í hálfleiknum
og tókst Val að minnka stöðuna
aðeins, þegarbezt lét stóð 80-50. Loka-
tölurnar siðan 118—80 og Crystal
Palace vann því síðari hálfleikinn með
aðeins4stiga mun.
„Crystal Palace lék oft á tíðum stór-
kostlega en maður naut þess ekki sem
skyldi þar sem Valur var í hlutverki
þolandans,” sagði Einar. John Ramsey
skoraði langflest stig Valsmanna, nær
helming eða 39. Kristján Ágústsson átti
mjög góðan leik bæði í vörn og sókn og
skoraði 18 stig. Ríkharður Hrafnkels-
son skoraði 13. Þá átti Torfi Magnús-
son mjög góðan leik, sérstaklega í
vörn.
Að sögn Einars voru allar móttökur
Crystal Palace til mikillar fyrirmyndar
Nýjar alþjóðlegar leikreglur i hand-
knattleik tóku gildi 1. ágúst síðastliðinn
og gilda til næstu fjögurra ára. Þarsem
íslandsmótið er nú nýhafið er ekki úr
vegi að renna yfir helztu breytingarnar.
Markmiðið með þeim er betri og mark-
vissari uppröðun á reglunum ásamt
ýmsum ótviræðum ákvæðum sem
auðvelda dómgæzluna. Þær gefa
möguleika á hraðari leik og koma i veg
fyrir grófan leik án tilfinnanlegra refs-
inga hlutaðeigandi leikmanna.
Mikilvægustu breytingamar eru þær
að skora má beint úr öllum köstum, til
dæmis frumkasti, útkasti og innkasti.
Hornkast flokkast í reglu um innkast
og framkvæmt á enda hliðarlínu. j inn-
kasti skal standa með að minnsta kosti
annan fótinn á hliðarlínu. Hinn má
vera hvar sem er.
og báðu strákarnir fyrir kveðjur heim.
Liðin mætast að nýju á föstudags-
kvöld, þá í Slough sem er útborg
London. Einar taldi að fjarvera Val
Brazy, Fram, sem upphaflega átti að
leika með Valsmönnum, hefði munað
15—20 stigum fyrir Val, sérstaklega
hefði munað mikið um hann á upp-
hafsmínútunum þegar pressa enska
liðsins var yfirþyrmandi.
Ef dæmt er gegn liði því, sem 'hefur
knöttinn, skal sá sem heldur knettinum
leggja hann niður. Ef ekki kostar það
brottrekstur.
Markvörður má yfirgefa markteig án
knattar og fara um allan völl. Liðs-
starfsmenn og liðsmenn, sem ekki eru í
'leik, mega ekki fara inn á völlinn nema
með leyfi dómara. Viðurlög eru tveggja
minútna brottvikning fyrir leikmann,
áminning fyrir liðsstarfsmann. Regla
þessi er í gildi allan leiktimann, einnig
ef Ieiktími er stöðvaður, til dæmis
vegna meiðsla leikmanns.
Brjóti leikmaður gróflega á mótherja
skal hann útilokaður, það er tekur ekki
meira þátt i leiknum, en skiptimaður
kemur inn á eftir tvær minútur. Við út-
kast mega mótherjar markvarða standa
við markteiginn.
-VS.
Nú er hægt að skora úr innkasti:
Nýjar leikreglur í
handknattleiknum
—semgildatilnæstufjögurraára
Sólargeisli ífjár-
hagsörðugleikum HSÍ
- sagði Júlíus Hafstein, formaður HSÍ, eftir að SÍS hafði látið
sinn árlega styrk til íþróttahreyf ingarinnar renna til HSÍ
„Verkefnin sem blasa við handknatt-
leikssambandinu eru mörg og ekki
hægt að segja til um nú hvernig styrkn-
um verður varið,” sagði Július
Hafstein, formaður HSÍ, eftir að HSÍ
hafði verið veittur hinn árlegi styrkur
sem SÍS lætur renna til iþrótta-
hreyfingarinnar. „Margt kemur til
greina, unnið er að útbreiðslu og efl-
ingu íþróttarinnar, ýmislegt er á döf-
inni í landsliðsmálum og svo þurfum
við að borga niður gamlar syndir,”
sagði Júlíus.
Samband islenzkra samvinnufélaga
úthlutaði styrknum í gær en að þessu
sinni var upphæðin 150.000 kr.
Umsóknir bárust frá ellefu sérsam-
böndum innan ÍSÍ og að sögn Erlends
Einarssonar, forstjóra SÍS, var valið
erfitt, öll sérsamböndin væru verðugir
styrkþegar. Styrkurinn er veittur nú
fyrir árið 1982 en styrkinn fyrir þetta ár
hlaut Körfuknattleikssambandið.
,,Jú, það kom mér nokkuð á óvart
að HSl skyldi verða fyrir valinu,”
sagði Júlíus Hafstein. „Við vönduðum
vel til okkar umsóknar eins og allir
aðrir hafa eflaust gert. Það sem er
ánægjulegt við þetta lofsverða framtak
SÍS er að þeir skuli líta á íþróttir sem
menningarmál og verður það vonandi
fleirum til eftirbreytni. Þessi styrkur er
sem sólargeisli í fjárhagserfiðleikum
HSÍ.”
Óhætt er að takfi undir orð Júlíusar
um þessa styrkveitingu. Gífurlegar
fjárhæðir þarf til að reka íþrótta-
hreyfinguna og íþróttasamböndin
þurfa hvað eftir annað að leita til fyrir-
tækja og annarra til að hægt sé að
standa undir kostnaði. Enginn þarf að
efast um að HSÍ er vel að þessum styrk
komið. Fjárhagsörðugleikar HSÍ hafa
verið miklir, ekki sízt vegna þess að
ísland hefur ætíð staðið framarlega á
alþjóðavettvangi í handknattleik. Til
að halda þeirri stöðu þarf að kosta
miklu og sem dæmi um fjárþurrð HSÍ
að undanförnu má geta þess að nýlega
féll dómsskuld vegna vaxta á HSÍ og til
stóð að taka skrifborð í eigu HSÍ upp í
skuldina. Til þess þarf nú væntanlega
ekki að koma.
-VS.
Júlíus Hafstein, formaður HSÍ, tekur
við iþróttastyrk SÍS úr höndum Erlends
Einarssonar forstjóra SÍS. Upphæðir
sem SÍS veitir til iþróttahreyfingarinnai
fyrir árið 1982 er kr. 150.000 og rcnnur
hún óskipt til handknattleikssambands-
ins. Á milli Júliusar og Erlends situr
Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ.
Sovétmenn unnu Tyrki
Sovétmenn styrktu enn stöðu sina i 3. riðli undankeppni
HM i knattspyrnu er þeir sigruðu Tyrki i Ismir i gær með
þremur mörkum gegn engu.
Shengelia skoraði fyrsta markið eftir 16 minútur og Oleg
Blokhin kom gestunum í 2—0 á 36. min. Hann skoraði
siðan aftur á 53. min. og sigur Sovétmanna var öruggur.
Þelr tóku þar með forystuna i 3. riðli en staðan er þannig:
Sovétríkin
Tékkóslóvakia
Wales
ísland
Tyrkland
5 4 10 14—1
6 4 11 14—3
6 4 11 10—2
7 2 1 4 8—19
8 0 0 8 1—22
9
9
9
5
0
Tyrkir hafa þvi lokið leikjum sínum og fengið allháðu-
lega útreið. Eitt mark skorað, gegn íslandi, úr vítaspyrnu.
-VS.
GYLMIR • G4H 21 5
Á morgun höídumvið Góðborgaradag Óíafsvíkmgi
'iátíðkgan. ÞájdaBr Óísarar, stadáxr í Sorgimv
ókeypis g(as af bragðgóðit ísííöídii ogjreyðandi PEI-
Með Góðóorgarcáveðju.