Dagblaðið - 08.10.1981, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
FÓLK
Uppsagnir
og umsóknir
Mikil ólga er sögð innan veggja
sjónvarpsins með yfirmann
tæknideildar, Hörð Frimannsson, og
er talað um fjöldauppsagnir vegna
þess. Við fréttum að tugir umsókna
hefðu komið til Mats Wibe Lund,
síðast er hann auglýsti eftir starfs-
krafti, og voru þær allar á nafni
Harðar Frímannssonar. Ætli starfs-
mennirnir séu nokkuð að hugsa um
uppsagnir — eða hver skyldi hafa
sent umsóknirnar — varla Hörður.
Þessar umsóknir þóttu hálf-
illkvittnislegar í garð yfirmannsins og
fóru víst í ruslafötu Mats þannig að
starfsmennirnir hjá sjónvarpinu —
eða hver sá sem vill Hörð burt úr
sjónvarpinu — fengu ekki óskir sínar
uppfylltar.
Akureyringar
útundan
íslendingur á Akureyri birdr grein
30. september og er heldur vonsvik-
inn út í Sambandsverksmiðjurnar.
Blaðið segir frá stórútsölu verksmiðj-
anna og þar sé á boðstólum ýmis
góður varningur á ,,góðu” verði m.a.
sem framleiddur er á Akureyri.
„Gallinn er bara sá,” segir íslend-
ingur, „að útsala þessi fer fram i
sýningarskálanum við Bildshöfða í
Reykjavík og samkvæmt frásögn
forráðamanna Iðnaðardeildar hér á
Akureyri er markaðurinn of lítill til
þess að unnt sé að halda sams konar
útsölu hér. Akureyringar eru nógu
góðir til að afhenda Iðunni 200
þusund krónur úr bæjarsjóði þegar
árar illa en þeir fá ekki að njóta sðmu
kjara og Sunnlendingar þegar m.a.
skór frá Iðunni eru settir áútsölu.”
Útlaginn
í nœsta mánuði
Við sðgðum frá því að frumsýna
ætti myndina um þá bræður Jón Odd
og Jón Bjarna um jólin í Háskóla-
bíói. Nú heyrum við af frumsýningu
annarrar íslenzkrar myndar,
nefnilega Útlaga Ágústs Guðmunds-
sonar sem eigi að frumsýna í Austur-
bæjarbíói um miðjan næsta mánuð.
Flugfélag
íslands á
flugvélar
Gömlu flugfélögin, Flugfélag
íslands og Loftleiðir, eru enn við
lýði, a.m.k. á pappírnum. Þau eru þó
bæöi algerlega í eigu Flugleiða.
Stjórnir Flugfélags íslands og
Loftleiða eru skipaðar sömu mönn-
um og sitja í stjórn Flugleiða.
Stjórnarformaður Flugleiða, örn Ó.
Johnson, er þó ekki jafnframt
stjórnarformaður hinna félaganna
heldur er Óttarr Möller stjórnarfor-
maður Flugfélagsins og Grétar Br.
Kristjánsson Loftleiða.
Á hverju ári er haldinn aðalfundur
hinna gömlu flugfélaga og er fullyrt
að það sé eina starfsemin sem enn
fari þar fram.
Enn eru þó fjórar flugvélar skráðar
á nafn Flugfélags íslands. Eru það
tvær Boeing-þotur, TF-FLG og TF-
FLH, og tveir Fokkerar, TF-FLM og
TF-FLN.
Húsnœðislaus
ráðherra
Það eru margir sem eiga við
húsnæðisvanda að stríða og það eru
ekki siður þeir háu i þjóðfélaginu.
Við heyrðum nefnilega að sjálfum
menntamálaráðherra, Ingvari Gísla-
syni, hefði verið sagt upp húsnæðinu.
Vinnsla nýrrar Startplötu
or n Inkavtioi ^ Plötunni verða tíu lös>
c/ U li/miJligi mestmegnis rokkarar
Eldsmiðurinn, kxikmynd Hugrenningar, á lokastigi:
Erla Eggortsdóttir með híð
nýútkomna bloð, Lopl og band.
DB-mynd Einar Ólason
Fjallarum einsetumann sem býr viðHomajjörð
Merkiskarllnn Sigurður Fiiippusson og Friðrik Þór FriCriksson stjórnandi
kvikmyndarinnar Eldsmiðurinn. L/ósm. Ari Kristinsson.
— og er langt á undan sinni samtíð
— Rokk í Reykjavík næsta mynd félagsins
„Þetta er heimildarkvikmynd um
76 ára gamlan einsetumann, Sigurð
Filippusson, sem býr á Hólabrekku
við Hornafjörð,” sagði Friðrik Þór
Friðriksson er hann var spurður um
kvikmyndina Eldsmiðinn en sú mynd
er á lokastigi hjá kvikmyndafélaginu
Hugrenningu. Myndin var unnin í
sumar og er hún 40 mínútur að lengd.
„Sigurður er mjög merkilegur
maöur og langt á undan sinni sam-
tíð,” sagöi Friðrik ennfremur.
„Hann er þúsund þjala smiður og
hefur smíðað marga merkisgripi t.d.
eina íslenzka gírahjólið sem mér er
kunnugt um. Sigurður fylgist vel með
tækninni og notar hana.
Þá hefur hann smíðað vindmyllu
sem hann notar sem eigin rafstöð og
er hún i góðu gagni. Fyrir mörgum
árum — fyrir þann tíma sem dagatöl
voru hér allsráðandi — breytti hann
gamalli klukku í dagatal þannig að
hann gat fylgzt með hvað dögunum
liði,” sagði Friðrik Þór.
Kvikmyndatökumaður myndar-
innar var Ari Kristinsson og Jón Karl
Helgason hljóðtökumaður. Friðrik
var stjórnandi. „Við förum með
myndina út eftir rúma viku í litgrein-
ingu og 24.þessa mánaðar ætti hún að
vera tilbúin,” sagði Friðrik. Hann
sagði að væntanlega yrði sjónvarpinu
boðið myndin til kaups.
, .Sigurður hefur haft litil samskipti
við umheiminn, hann hefur aðeins
' einu sinni komið til Reykjavíkur. Það
var árið 1936 er hann þurfti að leggj-
ast inn á sjúkrahús. Hann býr í litlum
bæ, svona 16 fermetrum, og hluti af
því er verkstæði þar sem hann er með
rennibekk sem hann hefur sjálfur
smíðað.
Þá herðir Sigurður stál og mér er
sagt að það sé svo vel hert að ekki
finnist annað eins. Hann þarf líka
sérstakt veður til að herða stálið t.d.
herðir hann ekki, ef sól er eða
snjór,” sagði Friðrik.
Friðrik var þá spurður út í kvik-
mynd þá sem hann hyggst gera um ný
bylgjutónlist hér á landi og. sagði
hann að allur undirbúningur fyrir þá
mynd væri á lokastigi. „Það er
ætlunin að taka þá mynd fyrir jól og
frumsýna hana í marz. Myndin sem
við höfum kallað Rokk í Reykjavík,
verður í fullri lengd. Hún mun fjalla
um rokkhljómsveitir í Reykjavík,
viðtöl við hljómsveitarmeðlimi og
aðra sem tengjast rokkinu,” sagði
Friðrik. „Hljómsveitir hafa ekki
verið endanlegavaldarímyndina.”
Áætlað er að Rokk í Reykjavík
verði síðan seld til annarra landa og
fá því íslenzkar hljómsveitir heil-
mikla auglýsingu út úr þeirri mynd.
' Af Brennunjálssögu Friðriks er það
að frétta að sjónvarpið hafnaði
kaupum á henni en hún hefur verið
boðin til kaups í öðrum löndum.
Hefur hún þegar veriö sýnd í Noregi.
-ELA.
Nýtt blað komið út:
Það er hœgt að
leika sér með
íslenzku ullina
— segir Erla Eggertsdóttir ritstjóri
prjónablaðsins Lopi og band
„Ég hef unnið við vinnslu þessa
blaðs síðan i apríl,” sagði Erla
Eggertsdóttir ritstjóri nýs blaðs,
prjónablaðsins Lopi og band sem hóf
göngu sína i siðustu viku. „Ég hafði
áður starfað við uppskriftagerð og
prjónablaðið Elínu fyrir Gefjun á
Akureyri. í prjónablaðinu Elinu
koma uppskriftir inn í samkeppni. Ég
hef hins vegar fengið hönnuði til að
gera uppskriftir,” annað hef ég sjálf
séðum,”sagði Erla.
„Ég átti sjálf hugmyndina að þessu
blaði. Mig langaði að ráða sjálf hvað
birtist og standa svolítið öðruvísi að
þessu. Já, ég verð einungis með upp-
skriftir fyrir islenzka ull. Mér finnst
hún gefa svo mikla möguleika og
fjölbreytni. Auk þess sem er
skemmtileg áferð á ullinni, er hægt
að leika sér mikið með hana,” sagði
Erla.
„Jú, ég tel að það sé markaður
fyrir blað sem þetta. Móttökur sem
ég hef fengið undanfarna daga sýna
það. Sumar verzlanir hafa þegar
pantað aftur. Ég vona að blaðið eigi
efdr að ganga því það gefur mér
möguleika á að stækka það.
Ég hef hugsað mér að hafa aðal-
lega fatnað og þá lfka töluvert fyrir
börn og unglinga,” sagði Erla. „Þá
hef ég einnig hugsað mér að hafa
föndur til að gefa blaðinu meiri
breidd.” Erla sagðist ekki fyrr hafa
staðið að útgáfu blaðs og sagðist því
hafa rennt blint í sjóinn. „Það var
mikil vinna að koma blaðinu út,”
segir hún. Næsta blað mun koma út í
marz og þá með léttari fatnaði.
Útgáfumánuðir verða tveir, október
og marz. Erla Eggertsdóttir er gift
Gunnsteini Karlssyni auglýsinga-
stjóra Sambandsins og eiga þau tvær
dætur.
-ELA.
UOsmenn Start i hljóðveri. Aætiað er að piata hijómsvertannnar komi ut
um næstu mónaðamót DB-mynd.
Hljómsvéitin Start er nú í óða önn
að hljóðrita fyrstu LP plötu sína í
Hafnarfirði. Upphaflega var áætlað
að ljúka við hana í gærkvöld og
hljóðblanda og skera síðan i
London. Vinnslan hefur hins vegar
gengið aðeins hægar en gert var ráð
fyrirí upphafi.
Frá þvi að upptökur hófust hefur
ein mannabreyting orðið í Start.
Sigurgeir Sigmundsson gitarleikari
ákvað í miðju kafi að hætta í hljóm-
sveidnni. Hann var þó dlbúinn að
Ijúka við allan gítarleik á plötunni
áður en hann segði skilið við hina.
Nýr gítarleikari, Kristján Edel-
stein, var þegar ráðinn í stað Sigur-
geirs. Hann lék áður með Chaplin í
Borgarnesi. Að vel athuguðu máli var
ákveðið að Kristján tæki öll sóló í
lögum plötunnar til að hann þyrfti
■ekk i að læra hlutverk Sigurgeirs utan
að áður en byrjað yrði að fylgja út-
komu plötunnar eftir með hljómleik-
um og dansleikjum.
„Ég á von á að platan komi út um
næstu mánaðamót,” sagði.. Pétur
Kristjánsson söngvari. „Við byrjum
þáað spilaaðnýju.”
Blaðamaður DB leit við í stúdíói
kvöld eitt er Startarar voru önnum
kafnir við plötuupptökuna. Verið var
að taka upp gítarhlutann í grjóthörðu
rokklagi eftir Jón Ólafsson bassaleik-
ara. Nafn var enn ekki komið á lagið
og vinnutítill þess óprenthæfur.
„Þetta er aðallega rokk sem við
verðum með á plötunni,” sagði
Pétur. Þetta verða tiu lög í það heila.
Þar af eru níu frumsamin. Eitt er
belgískt. Ég fann það á Midem-plötu
sem var gefrn út í tengslum við sam-
nefnda ráðstefnu í Frakklandi. Þetta
lag varð mjög vinsælt í Belgiu í fyrra
en hefur lítið sem ekkert heyrzt
annarsstaðar.”
Það er hljómplötuútgáfan Steinar
sem gefur Start-plötuna út. Fyrr á
þessu ári kom út tveggja laga plata
með hljómsveidnni. Þeirri útgáfu
fylgdu þau orð að ef litla platan
seldist vel kæmi til greina að fylgja
henni eftir með stórri. Dæmið virðist
því hafa gengið upp hjá Start. -ÁT-