Dagblaðið - 08.10.1981, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1981.
w \
I
GÆRKVÖLDI
Afmæii
85 ára er í dag, 8. október, Maria Anna
Kristjánsdóttir frá ísafirði. Hún er
fædd í Hliðarhúsum í Snæfjallahreppi,
N-ís., 8. október 1896. Eiginmaður
hennar, Sigfús Guðfinnsson skipstjóri
og síðar kaupmaður, lézt á sl. ári. Þau
eignuðust 8 börn, 6 þeirra eru á lífi.
María er nú rúmliggjandi á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund.
GENGIÐ
Gert er ráö fyrir noröaustanátt um allt
land, óljagangi um noröanvert landiö,
björtu á Suðuriandi. ( dag fer hiti
aöeins yfir frostmark sunnanlands,
annars veröur vœgt frost um allt
land.
Kl. 6 var í Reykjavik noröan 2, létt-
skýjaö, —1, Gufuskálar, austan 3,
skýjað og 0, Galtarviti norönoröaust-
an 5, anjókomu og 0, Akureyri logn,
—2 og snjókomu, Raufarhöfn norö-
noröaustan 5, alskýjað 0, Daiatangi
noröan 4, slydduél 1, Höfn norönorö-
vestan 4, hátfskýjaö og 0, Stórhöfði
austan 3, hálfskýjaö og 1.
( Kaupmannahöfn var skýjað og 10,
( Osló lóttskýjaö og 8, Stokkhólmur
skýjað og 9, London aiskýjað og 13,
Hamborg skýjaö og 9, Madrid
skýjaö og 13, Lissabon léttskýjað og
15, Nevv York skýjaö og 11.
: ÍSLAND 5000
Nýtt f rímerki
Póst- og símamálastofnunin gcfur aö þessu sinni út
frimerki með mynd af málverki eftir Gunnlaug
Scheving, „Linan dregin”. Þaö var málaö á árinu
1945 meö oliulitum og er nú i eigu Rikisútvarpsins.
— Gunnlaugur Scheving listmálari fæddist árið 1904
í Reykjavík en dvaldist hjá fósturforeldrum sínum á
Austurlandi til ársins 1921, en síðan tvö ár í Reykja-
vik og-fékk þar tilsögn í teikningu. — Haustið 1923
fór hann til myndlistarnáms til Danmerkur og var
þann vetur á teikniskóla þar, en hélt síðan heim.
— Ári síðar fór hann aftur til Kaupmannahafnar og
settist þá i Listaháskólann og var þar við nám á
árunurt) 1925 til 1929. — Sína fyrstu málverkasýn-
ingu hélt Gunnlaugur Scheving á Seyðisfirði þegar á
námsárum sinum. Siðan oft í Reykjavik og utan-
lands. Verk Gunnlaugs Scheving eru viða til í söfn-
um bæði innanlands og utan og einnig í mörgum
opinberum byggingum í Reykjavík. — Gunnlaugur
Scheving listmálari andaðist í Reykjavík árið 1972.
Til bæjarstjórnar
Kópavogs
Stjórnarfundur Landssambands mennta- og
fjölbrautaskólanema, haldinn í Menntaskólanum
við Sund 26.9. 1981, skorar á bæjarstjórn Kópavogs
og menntamálaráðuneytið að leysa húsnæðisvanda-
mál Menntaskólans i Kópavogi svo hann geti þróazt
í fjölbrautaskóla.
Þið munið hann Jónas
Litli leikklúbburinn heldur kynningarkvöld Jónasar
Árnasonar föstudaginn 9. október í félagsheimilinu
Hnífsdal. Þar verða flutt atriði úr leikritum hans og
sögum. Sungin verða lög við ljóð hans og fleira.
Jónas mætir sjálfur á staðinn.
Sambandsþing
Norræna félagsins
HAUKUR
HELGASON
Guðríður Þórðardóttir, Reykjavikur-
vegi 16 Hafnarfirði, lézt 30. september.
Hún fæddist að Kröggólfsstöðúm í
ölfusi 12. ágúst 1892, næstelzt af tíu
börnum hjónanna Ragnhildar Magnús-
dóttur og Þórðar Þorgeirssonar.
Guðríður missti móður sína snemma,
fór Guðríður þvi í fóstur. Fósturfor-
eldrar hennar voru Guðrún Þorgeirs-
dóttir og Þórður Magnússon. Guðríður
giftist Guðbirni Gíslasyni, þau eign-
uðust tvö börn. Hún starfaði við fisk-
verkun í rúm 40 ár. Síðustu árin dvald-
ist hún á Sólvangi í Hafnarfirði.
Guðríður verður jarðsungin í dag, 8.
október, frá Hafnarfjarðarkirkju kl.
14.
Þóra Marta Stefánsdóttir lézt 27.
september 1981. Hún var fædd 1.
nóvember 1905. Foreldrar hennar voru
Jóhanna Sigfúsdóttir og maður
hennar, Stefán B. Jónsson. Þóra Marta
var þeirra einkabarn. Hún lauk námi úr
Verzlunarskóia íslands og kennara-
prófi lauk hún 1933. Þóra Marta giftist-
Karii Hirst, eignuðust þau tvo syni.
Hún starfaði við búskap og verzlunar-
störf. Þóra Marta verður jarðsungin í
dag, 8. október, frá Dómkirkjunni kl.
13.30.
Johanne Bachmann, Sólheimum 23,
andaðist i Borgarspítalanum 6.
október.
Sigríður Guðmundsdóttir frá Bildudal
andaðist í Borgarspítalanum 6. októ-
ber.
Lára Sigurðardóltir, fyrrverandi
matráðskona á Kleppsspítalanum, er
látin.
Jón H. Júliusson frá Siglufirði and-
aðist í Landakotsspítalanum þriðju-
daginn 6. október.
Jón A.F. Hjartarson fiskmatsmaður,
Sólvöllum 19 Akureyri, veðrur jarð-
sunginn 10. októer kl. 13.30 frá Akur-
eyrarkirkju.
Oddný Friðriksdóttir, Löngufit 5,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
9. október kl. 13.30.
Steinar Sveinsson lézt 1. október 1981.
Hann var fæddur 21. maí 1932. Steinar
vann flest algeng störf verkamanna til
sjós og lands. Síðustu árin starfaði
hann við Sigöldu og síðar við
Hrauneyjafoss. Steinar lætur eftir sig
tvo syni. Hann verður jarðsunginn í
dag, 8. október, frá Fossvogskirkju.
Kári H. Sigurjónsson, Drápuhlið 38,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
9. október kl. 9.30.
Jón Eyjólfur Jóhannesson frá Möðru-
dal, Lindargötu 61 Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju 10.
október kl. 14.00.
Björn Kr. Jónsson fv. verzlunarmaður,
Sólheimum 23, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni 9. október kl. 13.30.
Frá Guðspekifólaginu
Vetrarstarfið hefst með erindi Ingibjargar Þorgeirs-
dóttur um Martínus kl. 21.00 8. okt fimmtudags-
kvöld.
Kvennadeild
Slysavarnafélags
íslands
heldur fyrsta fund vetrarins fimmtudagskvöld 8.
okt. í húsi Slysavarnafélags íslands á Grandagarði
kl. 20.00.
Lesin ferðasaga til Skotlands. Sagt frá þin.v Slysa-
varnafélags íslands á Laugum sl. snrnai Spiluð
félagsvlst, góð verðlaun. Stjórnin.
Fermingarbörn Óháða
safnaðarins
árið 1982 eru beðin að koma til viðtals og skráningar
í Kirkjubæ kl. 18.00 fímmtudaginn 8. október.
Spurningjar hefjast síðar.
Þjóðdansafólag
Reykjavikur 30 ára
Sl. vor voru liðin 30 ár frá því aö Sigriður Valgeirs-
dóttir gekkst fyrir þvi að Þ.R. var stofnað. í tilefni
afmælisins æfði Sigríður upp 30 mínútna islenzkt
dansprógramm meö hópi félaga í Þ.R. Var þaö
siöan sýnt almenningi að Kjarvalsstöðum 17. júnl,
en það er stofndagur félagsins.
Tekinn var á leigu verzlunargluggi að Laugavegi
41, en hann var notaður fyrir búningaútstillingu.
Var þar leitazt við að setja upp sem flestar gerðir
Draumur kúasmalans
Varla er svo ómerkileg sápuópera,
að ekki finnist i henni nokkur sann-
leikans sandkorn.
Þannig fjallaði hinn margumdeildi
Dallas í gærkvöldi um „draum kúa-
smalans” eða hinn „bandariska
draum” um að rísa úr. öskunni og
verða stór.
Húskarlinn Ray hafði lengi horft
upp á, hvernig húsbændur hans fóru
að. Nú þykist hann elska konu. ,,Ég
ætla að kvænast henni,” segir
húskarlinn, og við hinn mikla J. R.:
„Nei, hana vil ég eiga einn.” Fleira
vakir fyrir þjóninum. Hann er sem sé
orðinn landeigandi, fékk skika hjá
yfirboðara sínum og segir: „Nú er ég
landeigandi”. Það virðist hafa farið
fram hjá honum, að með gjöfinni
fylgdi, að hann starfaði um aldur og
ævi á vegum húsbændanna. Nú
virðist draumur Bandarikjamannsins
og velsæld vera að rætast. í mörgum,
fögrum bandarískum ljóðum hefur
því verið lýst, hvernig hinn blá-
fátæki verður ríkur og farsæll í því
sælunnar ríki.
í þættinum í gærkvöld var hús-
karlinum lýst sem einstæðu „góð-
menni”. Við höfum þó áður séð sitt-
hvað til hans. Hahn gerði barnunga
bróðurdóttur J. R. að frillu sinni.
Hann reyndi að leiða mágkonu J. R. í
gildru fyrir tilstilli yfirboðara síns.
Hann var sýndur í svalli með yfir-
manni sínum, sem endaði með því,
að kokkálaðir eiginmenn hugðust
ganga af þeim dauðum. En í gær var
húskarlinn sakleysingi, sem reyndi að
gera „ameríska drauminn” að veru-
leika.
En það er svo með ameríska
drauminn um vegsæld sem fleiri
drauma. Líklega er lýsingin í Dallas,
hvernig kúasmalinn er aftur settur á
sinn bás, nær veruleikanum en
margir öfundarmenn bandarisku
„velsældarinnar” munu viðurkenna.
Ray tókst ekki það, sem Jenna tókst í
gærkvöldi, að komast í fílslíki, svo
að kötturinn varð hræddur. Það var
lika baraævintýri.
-HH.
íslenzkra þjóðbúninga. Stóð útstilling þessi i eina
viku.
Aðalfundur félagsins var fimmtudaginn 24.
september sl. í skýrslu formanns kom það fram m.a.
að næsta sumar veröur norrænt þjóðdansamót,
NORDLEK, haldiö í Gautaborg í Svíþjóð. En ísland
er aðili að norrænu samstarfi um þjóðdansa og
þjóðlög.
Einnig gat formaður þess, að tilundirbúningsmóti
þessu héldu 4 aðilar frá félaginu til Gautaborgar s.l.
vor og nutu þau styrks frá Menntamálai áðuneytinu
til fararinnar.
Form'aður gat þess einnig, að óvenjumikið hefði
verið um sýningar á vegum félagsins nú í sumar .
Um 30 manna hópur hélt norður til Akurcyrar og
sýndi þar á landsmóti Ungmennasambands íslands.
Einnig var dansað fyrir erlenda ferðamenn, s.s. í
skemmtiferðaskipum, í Norræna húsinu, á sam-
komu hjá Þjóðræknisfélaginu, í Árbæjarsafni, fyrir
Sjálfsbjörgu og víðar.
Nú er vetrarstarf félagsins hafið. Félagið gengst
nú, eins og undanfarin ár, fyrir almennum dansnám-
skeiðum, bæði fyrir börn og fullorðna. Kennt er á
mánudögum og miðvikudögum í Fáksheimilinu.
Barnaflokkar eru á mánudögum frá kl. 16:30.
Námskeið i gömlum dönsum eru á mánudags- og
miðvikudagskvöldum frá kl. 20:00.
Enn er mögulegt að bæta í suma hópana.
Þjóðdansar verða eins og áöur í iþróttasal Vörðu-
skóla á Fimmtudagskvöldum og hefjast þeir 1.
október kl. 20.00.
Ingibjörg Bragadóttir var endurkjörin formaður
félagsins. Einnig var Þorbjörn Jónssonend»»*-V\'riun
formaður sýningaflokks en Þorbjörn hefur að mesiu
séð um fyrirgreiðslu sýninga félagsins sl. starfsár.
Þeim sem hafa ahuga á að fá sýningu á vegum
félagsins er því bent á að bezt er að hafa samband
við Þorbjörn í síma 12926, eða formann í síma
30495, eftir almennan vinnutíma.
Nær öll starfsemi félagsins byggist upp á sjálf-
boðavinnu og áhuga félaganna.
Að lokum viljum við færa öllum þeim sem veitt
hafa okkur stuðning á árinu beztu þakkir fyrir.
Þjóðdansafélag Reykjavikur.
Rauö seta úr sófasetti
datt úr aftaníkerru þegar sófasett var flutt úr Breið-
holti að Tunguheiöi, siðan þaöan í Auðbrekku.
Þetta gerðist sl. föstudag um kl. 18.00. Ung hjón,
sem eru að hefja búskap, keyptu sér notað sófasett
með rauðu plussáklæði og vantaði eina setu er heim
kom. Biðjum við fólk að líta í kringum sig á þessum
slóðum og vinsamlega að hringja í síma 44734 eða á
afgreiðslu Dagblaðsins ef setan finnst.
Tónlistarskóli
Rangæinga
hefur störf
Tónlistarskóli Rangæinga er þessa dagana að hcfja
vetrarstarf. í vetur verða nemendur 224 og kennarar
12 auk skólastjóra, Sigriðar Sigurðardóttur. Kennt
er á 7 stöðum í sýslunni að venju. Auk lögboðinna
greina er í skólanum starfandi barnakór, lúðrasveit
og kammersveit. Skólinn mun halda uppteknum
hætti og fá ýmsa listamenn til þess að halda tón-
leika. Fyrstu tónleikarnir verða í Hvoli 10. septem-
ber og leikur þá Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó-
leikari. Þá verða að venju skólatónleikar einu sinni i
mánuði auk þrennra jóla- og vortónleika. Formaöur
skólanefndar er Sigurður Haraldsson Kirkjubæ.
Helgi Jóhannsson
Hverfisgötu 117
hefur breytt rakarastofu sinni. Býöur hann nú uppá
permanent, andlitsböö, handsnyrtingu, litun og
strípur. Auk Helga starfa þær Dröfn og Dagný. sem
er rakara- og hárgrciöslumeistari, við Hverfisgötu
ll7. Siminner 29766.
60 ára er i dag, 8. október, Skarphéð-
inn D. Eyþórsson framkvæmdastjóri
Hópferðamiöstöðvarinnar. Kona hans
er Sigurmund Guðmundsdóttir.
Afmælisbarnið tekur á móti gestum
sínum í Hópferðamiðstöðinni, Skeif-
unni 8, ámili kl. 17 og 19 í dag.
60 ára er í dag, 8. október frú Anna
Guðmundsdóttir, Miðstræti 8 A í Nes-
kaupstað, kona Einars Einarssonar'
pípulagningameistara þar i bæ.
Sambandsþing Norræna félagsins verður að þessu
sinni háð i Mimaðamesi i Borgarfirði dagana 9.-11.
okt. nk.
Þetta er í fyrsta sinni að þingið er haldið utan
Reykjavíkur. Áður var þinghaldið aðeins einn dag.
Nú er stefnt að lengra þingi með ítarlegri umfjöllun
um málefni félagsins.
Deildir félagsins eru nú fjörutiu talsins um land
allt og verða 79 fulltrúar kjörnir til þingsins.
Það verður sett kl. 10 árdegis laugardaginn 10.
okt. og fram haldið til hádegis á sunnudag.
Mál þingsins verða nú tekin tii umræðu í
nefndum og verður þinghaldið allt mun yfirgrips-
meira en áður hefur tiðkazt.
1 GENGISSKRÁNING NR. 191 Feröamanna
8. OKTÓBER 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,648 7,670 8,437
1 Storiingspund 14,325 14,388 15,802
1 Kanadadollar 6,370 6,389 7,027
1 Dönsk króna 1,0633 1,0664 1,1730
1 Norskkróna 1,3113 1,3160 1,4465
1 Saonsk króna 1,3912 1,3962 1,5347
1 Finnskt mark 1,7429 1,7479 1,9227
1 Franskur franki 1,3645 1,3884 1,5052
1 Balg. franki 0,2044 0,2049 0,2254
1 Svissn. franki 4,0369 4,0486 4,4535
1 Hollonzk florina 3,0917 3,1006 3,4107
1 V.-þýzkt mark 3,4250 3,4348 3,7783
1 itölsk lira 0,00643 0,00645 0,00709
1 Austurr. Sch. 0,4876 0,4890 0,5379
1 Portug. Escudo 0,1194 0,1198 0,1317
1 Spánskur peseti 0,0809 0,0811 0,0892
1 Japansktyen 0,03326 0,03335 0,03668
1 (rsktDund 12,248 12,284 13,512
8DR (sérstök dráttarréttindl) 01/09 8,8982 8,9217
SJmsvari vagna gangisskránlngar 22190.
Aridlát