Dagblaðið - 08.10.1981, Síða 28
Jóhann H. Jónson, bæjarráðsmaður Framsóknarflokksins í Kópavogí:
Framsókn ekki á iítleið
úr meirihlutasamstarfi
—ef meirihlutinn er að springa, þá sprengja hann einhverjir aðrir en við
„Framsóknarflokkurinn er ekki á
útleið-"út úr meirihlutasamstarfi í
bæjarstjórn Kópavogs,” sagði
Jóhann H. Jónsson, bæjarráðs-
maður Framsóknarflokksins, í
morgun. „Ef meirihlutinn er að
springa, þá verða það einhverjir aðrir
sem sprengja hann.”
Guðmundur Oddsson, bæjarráðs-
maður Alþýðuflokksins, sagði í við-
tali við DB í gær að um djúpstæðan
ágreining í skólamálum væri að ræða
milli Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags annars vegar og Framsóknar-
flokks, Sjálfstæðisflokks og
Borgaralista hins vegar. Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag vildu
ekki láta Þinghólsskóla af hendi en
hinir flokkarnir vildu halda þeim
möguleika opnum í viðræðum við
menntamálaráðuneyti. „Framsókn
er að halla sér að Sjálfstæðisflokkn-
um, þeir eiga bara eftir að stíga
skrefið til fulls,” sagði Guðmundur.
1 Þjóðviljanum í morgun er Björn
Ólafsson bæjarráðsmaður spurður
að því hvort ágreiningurinn um
skólamálin kunni að hafa áhrif á
meirihlutasamstarfið í Kópavogi.
„Það er ekki nokkur vafi á að það
hefur áhrif ef samherjar í meiri-
hlutanum neita að ræða og taka þátt í
samningu tillagna sem meirihluti
hyggst standa að. Ef Framsóknar-
flokkurinn stendur að baki fulltrúa
sinum í þessu máli þýðir það ekki
nema eitt,” segir Björn þar.
,,Ég hef heyrt þessar hótanir áður,
þetta er ekki í fyrsta skipti sem ágætir
samstarfsaðilar okkar hóta meiri-
hiutaslitum,” sagði Jóhann H. Jóns-
son í morgun. ,,Ég sé ekki að þetta sé
mál þess efnis að til slíks ætti að
koma. Það er ljóst að framhalds-
skóli, menntaskóli eða fjölbrauta-
skóli, verður í einhverju húsnæði sem
grunnskólinnerinúna.” ■
-JH.
'Gunnlaugur Carl Nielsen og Sigriður Stanleysdóttir sigurvegarar keppninnar Vikan velur módel.
DB-mynd: Einar Ólason.
Þau þóttu efnilegustu módelin
Sigríður Stanleysdóttir og Gunn-
laugur Carl Nielsen fögnuðu sigri i
gærkvöldi, er Sigurður Hreiðar rit-
stjóri Vikunnar tilkynnti úrslit keppn-
innar „Vikan velur módel” í hófi sem
fram fór í Hollywood. Sex stúlkur og
fjórir piltar hafa undanfarið verið á
námskeiði hjá Módelsamtökunum og
valdi dómnefndin tvö efnilegustu eftir
það. Verðlaunin eru vikuferð til New
York auk þess sem ýmis fyrirtæki
færðu keppendunum gjafir.
Keppni þessi fór af stað í júní en þá
voru þau tíu sem kepptu til úrslita valin
úr þrjátiu manna hópi. í sumar hefur
Vikan kynnt keppendurna fyrir lesend-
um sínum og nú hafa sem sagt úrslitin
verið kynnt.
I dómnefnd keppninnar sátu Sig-
urður Hreiðar ritstjóri Vikunnar,
Unnur Arngrímsdóttir hjá Módelsam-
tökunum og Ottó Ólafsson frá auglýs-
ingastofunni Gylmi. Dómnefndin sagði
í gærkvöldi að valið hefði verið erfítt, í
rauninni hefði allur hópurinn átt að
fara til New York. „En reglur eru
reglur og eftir þeim verður að fara,”
sagði Sigurður Hreiðar. Boðsgestir í
Hollywood i gær voru svo margir sem
komast fyrir á staðnum.
-ELA.
Olíutankamálið rætt í bæjarstjórn Keflavíkur:
Lögbann á leiðsluna eða ný
birgðastöð á vellinum
Olíuleiðslur og -tankar fyrir Kefla-
víkurflugvöll urðu í fyrrakvöld, enn
einu sinni, tilefni umræðna. Tvær til-
lögur voru lagðar fram á bæjar-
stjórnarfundi í Keflavík og var þeim
báðum vísað til bæjarráðs, til sam-
ráðs við Njarðvíkurbæ.
Fyrri tillagan kom frá Ólafi
Björnssyni, bæjarfulltrúa Alþýðu-
flokksins. Var hún á þá leið að sam-
þykkt yrði að leita samráðs við bæjar-
stjórn Njarðvíkur um að fá sett lög-
bann á olíuleiðslur þær og tanka, sem
eru á mörkum byggðarinnar, þar til
fyrir lægi yfirlýsing Siglingamála-
stofnunar um að umrædd mannvirki
stæðust þær kröfur sem gerðar væru
til þeirra.
Hin tillagan kom frá Karli Sigur-
bergssyni, bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins. Gerði hún ráð fyrir því
að leitað yrði samráðs við bæjar-
stjórn Njarðvíkur um að olíutanka-
málið yrði leyst á grundvelli hug-
myndar sem komin er frá Esso. Sú
hugmynd er á þá leið að í stað
nýrrar olíuhafnar í Helguvík verði
byggð ný birgðastöð á Keflavíkur-
flugvelli og að leiðsla sú sem nú
liggur um byggðina verði áfram not-
uðen grafiní jörð.
Karl Sigurbergsson sagði i samtali
við DB að tillaga sín væri grundvöll-
uð á þeirri hugmynd að í stað Helgu-
víkurstöðvar, allt að 200 þúsund
rúmmetrar að stærð, yrði byggð 50
þúsund rúmmetra birgðastöð inni á
Keflavíkurflugvelli. Helguvíkurhug-
myndin gerði hvort er er ráð fyrir 28
þúsund rúmmetra stöð inn á vellin-
um.
Það sem fyrir bæjarstjórnarmönn-
um liggur er að losna við tungu þá
sem gengur úr vallarsvæðinu vegna
olíumannvirkja og klýfur byggðina.
Þetta svæði er afgirt vegna þess að
oliuleiðsla liggur þar ofanjarðar frá
Keflavíkurhöfn. Efst i þeirri tungu
eru olíugeymarnir sem menn óttast
að vatnsbólum ekki langt þar-frá geti
stafað hættaaf.
-KMU.
frjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 8. OKT. 1981.
Látlaustfannkyngi
áAkureyri
Það er ekkert lát á „vetrarríki” á
Akureyri. í morgun tók að snjóa um
hálffimmleytið og var linnulaus hríð til
kl. 9 að aðeins tók að slota, að sögn
veðurathugunarmanna á Akureyri, sem
jafnframt eru Iögreglumenn staðarins.
Er nú talið að um 40 cm jafnfallinn
snjór sé á Akureyri og í nágrenni og að
auki hefur svo víða fokið í skafla.
Færðin er mjög erfið því hitastig er um
frostmark og snjórinn því erfiður yfir-
ferðar.
-A.St.
Fimm metra
fall af þaki
Vinnuslys varð við Nökkvavog 21 í
gær. Voru þar tveir menn að vinna á
þaki íbúðarhúss er annar féll niður.
Fallið var um 5 metrar að sögn
lögreglumanna. Sá er féll virtist í fyrstu
að minnsta kosti hafa sloppið betur en
á horfðist. Voru meiðsli hans ekki talin
verulega alvarleg, hvað sem síðar
kemuríljós.
-A.St./DB-mynd S.
Áskrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo ljónheppinn að
fá að svara spurningunum i leiknum
„DB-vinningur f viku hverri”. Nú
auglýsum við eftir honum á smá-
auglýsingasfðum blaðsins f dag.
Vinningur í þessari viku er Út-
sýnarferð til St. Petersborg Beach
með ferðaskrifstofunni Útsýn,
Austurstræti 17 Reykjavik.
Fylgizt vel með, áskrifendur,
fyrir næstu helgi verður einn ykkar
glæsilegri utanlandsferð ríkari.
hressir betur.