Dagblaðið - 26.10.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1981.
Vigdis ekur eftir Karl-Johan i gömlum og virðulegum Kádilják. Talsverður mann-
fjöldi fylgdist með þvf er hún ók eftir götunni.
Frá undlrritun Jan Mayen-samkomulagsins. Vinstra megin við borðið eru þeir Ólafur
Jóhannesson og Páll Ásgeir Tryggvason fyrir íslands hönd, en sá Norðmaðurinn sem
mest ber á hinum megin borðsins er Svenn Stray, utanríkisráðherra.
Makalaus forseti frá
landi án atvinnuleysis
—skrifar sænska blaðið Expressen
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni Dagblaðsins i Svíþjóð:
Makalaus forseti í heimsókn skrifaði
sænska blaðið Expressen i gær i tilefni
af heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur
forseta tslands tíi Sviþjóðar í dag.
Frá veizlu i Akershus-virkinu, sem for-
setanum var haidin. Auk Vigdisar má sjá
Ólaf Noregskommg og Sonju krónprins-
essu við háborðið.
Fjölmargir tslendingar komu i móttökuna, sem Vigdis héit á Grand Hotel. Yfir 500 tslendingar voru þar saman komnir til
að heilsa upp á forsetann.
HER ER
PLATAN
FYRIR MG
Hún inniheldur kröftugt
rokk ásamt öðru léttmeti.
UTGEFANDI
OG DREIFING:
Platan með EGLU vinnur á!
AKUREYRI - SÍMI 96-25984.
Vigdfs forseti skoðar hér Henie-Onstad safnið undir leiðsögn Per Hovdenakk (lengst
Lv.). Vigdfs er á miðri mynd, en lengst t.h. er Haraldur krónprins og að baki Sonju,
eiginkonu hans, má sjá Ólaf Noregskonung.
Mörg af sænsku dagblöðunum birtu
greinar um Vigdísi í gær og undanfarna
daga hefur óvenju mikið verið skrifað
um ísland í sænskum blöðum og á þaö
vafalaust rætur sínar að rekja til heim-
sóknar Vigdísar. Það kemur víst engum
á óvart að áberandi hefur verið í skrif-
um blaðanna um Vigdísi að hún er ein-
stæð eða makalaus eins og Expressen
orðaði það.
,,Ég er oft spurð að því hvernig ég
fari að því að búa án karlmanns,” segir
Vigdís í viðtali sem Aftenbladet birtí
við hana í gær. ,,En það hafði ég gert
svo lengi áður en ég varð forsetí og
hvers vegna skyldi ég þá ekki geta það
núna. Hins vegar er enginn sem spyr að
því hvernig ég ættí að fara að því að
búa með karlmanni,” sagði Vigdís enn-
fremur.
Aðspurð sagði Vigdís i þessu sama
viðtali að hún teldi það ekki aðeins
þýðingarmikið fyrir íslenzkar konur að
hún varð forsetí heldur einnig fyrir all-
ar konur heimsins. ,,Nú þegar íslend-
ingar hafa sýnt þann kjark að velja
konu sem forseta hlýtur þe'J að stuðla
að því að heimurinn velji, kjósi eða
ráði konur í hvaða stöður eða störf sem
er,” segir Vigdís.
Mörg sænsku blaðanna hafa í
skrifum sínum um ísland undanfarna
daga staðnæmzt við þá staðreynd að
atvinnuleysi er ekkert á íslandi. í
Svíþjóð hefur atvinnuleysi vaxið mjög
að undanförnu og hafa Svíar af því
auknar áhyggjur og horfa í því sam-
bandi öfundaraugum tíl íslands þótt
ekki segjst þeir vilja skipta á sínu 2,6%
atvinnuleysi og 40% verðbólgu á fs-
landi.
í dag mun Vigdís hitta sænsku kon-
ungshjónin og borgarstjórn Stokk-
hólms og á meðan á heimsókn hennar i
Sviþjóð stendur mun hún m.a. skoða
sðgusafnið, konunglega bókasafnið og
„Dramaten”. Hún mun einnig halda
móttöku fyrir íslendinga í Svíþjóð.
Heim heldur hún síðan á fimmtudags-
morgun. -GAJ, Lundi/-SSv.
Bílbeltin
hafa bjargað
UXF
IFERÐAR