Dagblaðið - 26.10.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1981.
Pólland:
Ríkisstjómin
beitir hemum
— til að skipuleggja matvæladreifingu
Smáum hópum pólskra hermanna
var dreift um landbúnaðarhéruð Pól-
lands í gær eftir að ríkisstjórnin hafði
tilkynnt að hún ætlaði að beita hernum
til að koma skipulagi á matvæladreif-
inguna í landinu. Stjórnvöld hafa lýst
því yfir að hlutverk hermannanna sé
fyrst og fremst að tryggja að matvæli
komist á markað, til að koma í veg
fyrir óstjórn og sóun og undirbúa
landið fyrir veturinn. Hópar hermanna
munu vera staðsettir í um 2 þúsund
sveitarfélögum til aðstoðar við flutn-
inga á matvælum og til að koma kolum
til viðtakenda.
Talsmenn Einingar, samtaka frjálsra
verkalýðsfélaga í Póllandi, hafa lýst því
yfir að þeir fagni sérhverjum úrbótum
á matvæladreifingunni og þeir líti svo á
að hlutverk hersins sé að vinna að úr-
bótum á því sviði þar til annað sannast.
Eining hefur lýst yfir einnar klukku-
stundar verkfalli á miðvikudaginn til
að mótmæla auknum matvælaskorti og
einnig aðgerðum lögreglunnar til að
hindra félaga samtakanna við að dreifa
útgáfuefni sínu.
Ríkisstjórnin hefur einnig sett á stofn
séistaka nefnd undir forsæti Jedynak
varaforsætisráðherra, til að rannsaka
tap það sem orðið hefur vegna verk-
falla í brennisteinsnámum og stál-
iðnaði. Yfirvöld hafa fordæmt fyrir-
hugað verkfall Einingar og talið það
vera merki þess að öfgamenn innan
samtakanna stefni í átök milli ríkis-
valdsins og verkalýðsfélaganna.
Bardagará
götum Kairó
— hundruð strangtrúarmanna handtekin
Yfirvöld í Egyptalandi hafa tilkynnt
að til skotbardaga hafi komið í einu út-
hverfa Kairó siðustu daga milli her-
manna og strangtrúaðra múhameðs-
trúarmanna. Yfirvöld segja að hópur
sá er að átökunum stóð hafi verið
viðriðinn morðið á Sadat forseta og
unnið væri að því að uppræta þessa
hryðjuverkamenn. Einn féll í átökun-
um en um 400 voru handteknir.
Yfirvöld segjast hafa gert upptækt
mikið af vopnum og sprengiefni í bæki-
stöðvum strangtrúaðra og auk þess
mikið fé í innlendum og erlendum
gjaldeyri. Hinir handteknu hafa játað
að hafa haft áætlun um að koma á
byltingu í Egyptalandi, að fyrirmynd
Khomeinis, með því að myrða
embættismenn og vinna skemmdar-
verk. Ætlunin hafi verið að koma á fót
tvenns konar ráðum eins og tíðkast í
íran, annað samanstæði eingöngu af
trúarleiðtogum en hitt ráðgefandi og
ættu þau að styðjast við byltingar-
nefndir og hernaðarrágjafa. Sagt er að
slíkar nefndir hafi þegar verið mynd-
aðar af stúdentum og verkamönnum.
Fataefnin eru frá viðurkenndum framleiðendum. Klæðskeri í verzluninni,
svo þú ert í góðum höndum.
Veldu klæðnaðinn hjá okkur, hann gerir örugglega meira en að hylja nekt
þína.
//
K
Snorrabraut 56 Sími 13505
Glæsibæ Sími 34350
10
simi
Austurstræti
27211
Briáge
Eftir níu umferðir í heimsmeistara-
keppninni í bridge, sem nú stendur yfir
í New York, hafa Bretar tekið foryst-
una. Bretland hefur hlotið 106 stig í
keppninni, Pólland og Argentína 100
stig, Bandarikin 99 stig, Ástralía 87
stig, Pakistan 83 stig og Indónesía 73
Rauðu herdeildirnar íV-Þýzkalandi:
„Guernica” á Spáni
Hið fræga meistaraverk'spænska fyrr en lýðræðið væri endurreist í
málarans Pablo Ricasso, Guernica, er landinu. Eftir dauða Francos
nú til sýnis á Spáni í fyrsta sinn. Mál- einræðisherra árið 1975 var það skil-
verkið var gert í París árið 1937 og yrði uppfyllt. Ströng öryggisgæzla er
sýnir loftárás Þjóðverja á baskneska, um myndina og allir áhorfendur
þorpið Guernica í spænsku borgara- verða að ganga gegnum málmleitar-
styrjöldinni. Picasso lagði svo fyrir tæki áður en þeir fá að berja verkið
að málverkið skyldi ekki sýnt á Spáni augum gegnum skothelt gler.
Hugðust ræna
Friðrik prins
V-þýzka lögreglan hefur afhjúpað
sámsæri hryðjuverkamanna í rauðu
herdeildunum um að ræna danska
krónprinsinum, Friðrik, og Jóakim
bróður hans.
Vopnaðir öryggisverðir gæta prins-
anna nú allan sólarhringinn enda lítur
danska lögreglan mál þetta mjög alvar-
legum augum. Prinsarnir eru keyrðir til
skóla i skotheldum bíl og vopnaðir
verðir fylgja þeim hvert fótmál, jafn-
vel inn í skólastofuna. Enginn fær að
fara inn í skólann eða út úr honum án
þess að hafa gengizt undir nákvæma
skoðun hjá öryggisvörðunum.
V-þýzka lögreglan fann skjöl við
húsleit í Wiesbaden á stað þar sem
greinilegt var að liðsmenn rauðu her-
deildanna höfðu haldið til. Skjöl þessi
höfðu að geyma upplýsingar um dag-
legar ferðir prinsanna í Kaupmanna-
höfn og skólagöngu þeirra þar.
V-þýzka lögreglan telur að liðsmenn
rauðu herdeildanna hafi ætlað sér að
ræna prinsunum og reýna þannig að
frelsa ýmsa liðsmenn rauðu herdeild-
anna sem margir hverjir sitja í fangels-
umíV-Þýzkalandi.
OLAFUR EINAR
FRIÐRIKSSON
mm.
REUTER
D
Þaðeru
margar leiðir til að
liylja
nekt þína.
Við bendum þér á leiðina, sem margir velklæddir viðskiptavinir okkar hafa
farið og vakið athygli annara.
■GAJ, Lundi/-SSv. Friflrik krónprins Danmerkur.