Dagblaðið - 26.10.1981, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1981.
23
Mick Taylor sem forðum lék á
gltar með RoHing Stones hefur
hiifðað mál á hendur gömlu félögunum
slnum. Mick telur að þeir hafi ekki
staðið i skilum með þann hlut, sem
hunum har af launum fyrír plötusölu
eftir að hann htetti í hljómsveitinnL
Taylor gekk til liðs við Rolling
Stones skömmu fyrir andlát Bríans
Jones. Hann vann með h(jóm-
sveitinni í sex ár, til ársins 1975.
Nokkru síðar tók Ron Wood sœti
hans í hljómsveitinni. Mick Taylor
vann smávegis við tvo lög á nýjustu
Stonesplötunni Tattoo You.
Pretenders urðu að hœtta I miðju
kafi á hljómlcikaferð um Bandaríkin.
Trommuleikarinn Martín Chambers
meiddist illa á hendi er hann reyndi að
opna glugga á hótelherbergi sem
hljómsveitin bjó á I Philadelphia. Svo
slæmt var sáriðscm hann hlaut að hann
varð að fara til New York og láta sér-
frœðing lita á meiddið. Hann varð að
hafa umbúðir á hendinni í háffan
mánuð og I þrjár vikur til viðbótar má
hann ekki sveijla trommukjuða,
Þetta kemur sér illa fyrir
Pretenders því að aðalhljómleikamir i
fcrðinni voru eftir. í New York. Ekki
var endanlega ákveðið, síðast er
jréttist, hvort hljómleikunum yrói
alveg sleppt eða þeirfœrðir aftur.
Rod Stswart sendir firá sér nýja
LP plötu áður en langt um llður. Lag
uf henni, Tonight I’m Yours, (Don’t
Hurt Me) cr komið út á litilli plötu. Á
B-hliðinni er lag sem nefnist Sonny.
Það verður ekki með á breiðskífunni.
Bric Clapton hefur nú sagt skilið
við RSO hljómplötuútgáfuna og samið
við VYamer Brothers um útgáfu um
allan heim. Fyrsta plata hans hjá nýju
verktökunum er vœntanlega vœntanleg
á markaðinn vorið 1982.
Clapton hefur verið hjá RSO allt frá
þvi á sjöunda áratugnum er hunn lék
með Croam og BlindFafth.
Olivia Newton-John hefurnýlega
sent frá sér slna fyrstu sólóplötu um
þriggja ára skeið. Sú nefnist
Physical. Á henni er vœntanlega
fóður fyrir óskalagaþœttina næsta
árið, ef að llkum lætur.
Fyrstu vestrænu
rokktónleikarnir íKína:
Jean-Michel
Jarre fékk
viðtökur
Rolling Stones urðu ekki fyrstir
vestrænna poppara til að halda
hljómleika í Kína eins og þá hafði
dreymt um árum saman. Franski
hljómborðsleikarinn og tónskáldið
Jean-Michel Jarre brá sér austur óg
Iék fyrir um 15 þúsund Kínverja í
Peking á mánudagskvöldið síðasta.
Jarre lék lög af metsöluplötu sinni
Oxygene og öðrum vel þekktum.
Kínverjarnir virtust skemmta sér á-
gætlega og fögnuðu öðru hverju.
Reyndar virtist leysi-ljósasjóvið sem
notað var á tónleikunum gera meiri
lukku en tónlistin. Þrátt fyrir að
undirtektir væru framar öllum
vonum var hljómleikasalurinn hálf-
tóniur er konsertinum lauk.
Skýringin er ekki talin sú að
áheyrendur hafi verið orðnir þreyttir
heldur að strætisvagnar hætta að
ganga í Peking klukkan tíu að kvöldi.
Jarre lék í tæpar þrjár
klukkustundir á þessum fyrstu rokk-
tónleikum í Kina. Hann sagðist eftir
á vera prýðilega ánægður með
viðtökurnar. Aheyrendur sem rætt
var við að tónleikunum loknum létu
kurteisleg orð falla um tónlistina en
kona kvaðst þó hafa orðið hug-
fangnari af Jeysunum en músikinni.
Enda urðu fagnaðarlætin mest,
þegai Jeysarnir lýstu upp svarta
borða sem héntu niður úr lofti
tónleikasalarins og rituðu Kina og
Peking á frönsku og kínversku á
borðana.
Vestræn dægurtónlist er óðum að
verða þekktari og þekktari i Kína.
Hún var bannfærð á stjórnarárum
Maos tseTung. (Reutcr)
Plastklæddir liðsmenn Friðryks i tilefni þess að tónlist þeirra er nú loks komin á plast.
Friðryk byrjar vetrarstarfid
með plötu og hljómleikaferð
— Björgvin Gíslason hefur bætzt í hópinn
Vetrarstarf hljómsveitarinnar
Friðryks er hafið. LP plata samnend
hljómsveitinni kom út á föstudaginn
og i kvöld leikur hún á fyrstu
tónleikunum í ferð um landið. Það
verður á Selfossi.
Friðryki hefur bætzt liðsauki.
Gítar- og hljómborðsleikarinn
Björgvin Gíslason. Hann hefur
haldið sig frá sviðsljósunum um
nokkurt skeið. Skrapp meðal annars
til Bandaríkjanna og lék þar með
eigin hljómsveit og annarra. Eftir að
hann sneri heim aftur hljóðritaði '
hann plötu sem er væntanleg á
markaðinn fyrir jól. Sú heitir
Margindi.
Tónleikar Friðryks í fyrstu atrennu
verða sem hér segir:
26. okt. Selfoss
27. okt. Laugarvatn
28. okt. Hvolsvöllur
29. okt. Höfn í Hornafirði
1. nóv. Egilsstaðir
2. nóv. Seyðisfjörður
3. nóv. Neskaupstaður
5. nóv. VíkíMýrdal.
Að þessari átta tónleika törn
lokinni liggur leið Friðryks til
Reykjavíkur. Þar eru fyrirhugaðir
tónleikar víðs vegar. Síðan liggur leið
hljómsveitarinnar, norður um land
og vestur. Rétt er að vekja athygli á
því að Friðryk hefur ekki fyrr á árinu
komið fram í Reykjavík en kosið að
halda sig við landsbyggðina.
Árangur tveggja nátta
samstarfs íStemmu:
Afrakstur tveggja nátta samstarfs
tríósins Dirty Dan Project er kominn út
í formi þriggja laga hljómplötu, lítillar
í sniðum.
Það var einhvern tíma síðastliðið
vor sem þeir Dirty Dan (Danny
Pollock), Mickey Dean (Mike Pollock)
og Ásgeir Bragason trommari
Purrksins komu saman í studíó
Stemmu hjá honum Didda. Á þeim
Dánartilkynning:
Taugadeildin
(1980-1981)
Poppsíðu Dagblaðsins hefur borizl
eftirfarandi dánarfregn:
Vér viljum votta þakklæti öllum
þeim sem sýndu samúð við fráfall
hljómsveitarinnar Taugadeildin.
Vér viljum einnig vekja athygli á því
að eftir hljómsveitina liggur nokkuð af
tónsmíðum, hvar af fjórar hafa verið
festar á plast og fást víða um land i
hljómplötuverzlunum.
Þeim sem vilja minnast hinna látnu
er bent á að kaupa plötuna. Blóm
vinsamlegast afþökkuð.
Fyrir hönd Taugadeildarinnar:
Óskar Þórisson, Árni Daníel Júlíus-
son, Óðinn Guðbrandsson, Þorsteinn
Hallgrímsson, Kommi og Egill
Lárusson.
N.B. Platan er gefin út af Fálkanum
og dreift um allt land þaðan.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á að kaupa nýútkomna fjögurra
laga plötu Taugadeildarinnar. Blóm eru
vinsamlegast afþökkuð. DB-mynd.
ÞRIGGJA LAGA PLATA DIRTY
DAN PROJECT ER KOMIN Á MARKAÐ
Pollockarnir Mickey Dean og Dirty Dan. Sá þriðji sem kemur fram á plötu Dirty
Dan Project er Ásgeir Bragason trommari Purrksins. Ljósm.: Gunni Vill.
tíma voru hræringar í rokkinu hér og
ýmsir nýir hlutir að líta dagsins Ijós. í
skemmtilegu og kannski dálitið undar-
legu andrúmslofti hljóðrituðu
þremenningarnir lögin þrjú á átta
klukkustundum.
Á fyrri hliðinni eru tvö lög. Annað
er eftir Mikka og Danna Pollock. Hitt
er Dylan-lagið Drifters Escape. Á
seinni hliðinni er að finna sex mínútna
lag eftir Mikka, Danna og Ásgeir. Það
ber nafnið Music Concrete og varð til á
staðnum. — Útgefandi plötunnar er út-
gáfufyrirtækið Gramm.
Nýkomin
stök teppi
íúrvafí.
mjög hagkvæmra innkaupa
"“Ppiklilóduni við næstu daga nokkrar nýjar^
~ - gorðir af stökum teppum á ótrúlega
Jim hagstæðu /erði. Verð t.d.:
Motta 60x1,20 á kr. 250,00.
lón Loftsson hf.
6AAAÁA
lH t_l 7] 1j j
L11 í___!H LJ U'C
iiii_____i-jijgijrij^
0PIÐ i ÖLLUM ' , Og við bjóðum ekki aðeins
nrn m ma \ lágt verð, heldur einnig
DtlLDUM: \ ótrúloga hagstæða
Mánud.— \ greiðsluskilmála, allt
miðvikudaga kl. 9—18\ niður í 20% útborgun
Fimmtudaga kl. 9—20. \°9 lánstíma allt
Föstudaga kl. 9-22 \ að 9 mánuðum.
Laugardaga kl. 9—12
Irinabraut 121. Sími 10600 oa 28603