Dagblaðið - 26.10.1981, Qupperneq 24
32
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1981.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
•mapantanir
13010
Staða varaslökkviliðs-
stjórans í Reykjavík
er laus til umsóknar
frá og með 1. janúar 1982.
Laun skv. 22. launaflokki opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir slökkviliðsstjórinn í
Reykjavík, Slökkvistöðinni við Reykjanesbraut.
23. október 1981.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
.Privat”fyrir dömurl
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
Júlíus Sveinbjömsson,
Gott úrval áklæða
Ennfremur: kögur,
snúrur og leggingar
Hagstætt verð
Póstsendum
B.G. áklœði Borgartúni 23
Sími 15512 Opið frá kl. 1 til 6
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bætt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
Venllirétfsi-
jUjirlmiliiriiin
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.'
12222
Húsgagnaáklæði
Utangarðsmenn—I upphafi skyldí endinn skoða:
MERKILEG SÖGUHEIMILD
UM EINSTÆÐA HUÓMSVEIT
Fyrir þá sem eiga allar piötur Utan-
garðsmanna er safnplatan í upphafi
skyldi endinn skoða merkileg viðbót
— og söguleg um Ieið. Fyrir hina, sem
ekkert eiga með Utangarðsmönnum í
fórum sínum, er platan enn eiguiegri
gripur því hún gefur góða mynd af því
sem Utangarðsmenn gerðu á hinum
stutta ferli sínum.
Þótt tekið sé fram að 10 laganna
hafi ekki verið gefin áður út á plasti er í
raun vart hægt að tala um nema átta
slíkt. Tvö laganna eru hér með enskum
texta en að öðru leyti eins og við höfum
heyrt þau áður; Ég vil ekki stelpu eins
Hie og Það er auðvelt. Söngur
Bubba annar í síðara lági"".
Það eru hins vegar hin lögin 8, sem
ekki hafa heyrzt á plötu áður, sem
vekja mesta athygli. Misgóð eins og
þau eru mörg skipa þau þó öll mikil-
væg sæti í þróunarsögu hljómsvéitar-
innar. Þar er t.d. að finna lagið 1
wanna be your dog sem Utangarðs-
menn fluttu svo til á hverjum einustu
tónleikum sínum. Atlantic blues, sem
gekk lengst af undir nafninu Beitingar-
blús, fyllir að mestu það tómarúm sem
myndast við missi ísbjarnarblúsins
Þótt ísbjarnarblúsinn sé ekki sameig-
inleg smíð Utangarðsmanna hefði hann
vel mátt eiga heima á plötunni eins og
hvert annað hinna laganna — ekki
síður en Jón pönkári.
Sum „nýju” laganna éru slök —
framhjá því verður varia horft. T.d.
eru lögin Bla bla bla og Síðasta blómið
— reyndar sérstakt framlag en varla til
útgáfu á plötu í þessari mynd — í lé-
legri kantinum. Flest hinna eru hins
vegar góð og sum mjög góð eins og t.d.
Júdas frá Ískaríot og Canvas City.
Við plötuna verður ekki skilið án
þess að minnast á sérdeilis skemmtilega
hannað umslag Ernst Backmann svo og
greinargott fylgiblað innan í plötuum-
slaginu. Bara þessi tvö atriði — að inni-
haldinu undanskildu — gera gripinn
-•"^leean. Það er hins vegar tónlist
þessarar einstöku mJ'í.nlsve'tar sem er
aðalatriðið og af henni verður engin,"
rokkari svikinn.
-SSv.
Shakin’ Stevens—Shaky:
GAMU ROKKSTÍLUNN UFIR
Shakin'Stevons - SHAKY
Epic / Steinar hf.
Shakin’ Stevens er alltaf eins.
Munurinn á plötunni This Ole House
sem kom út í fyrra og þeirri nýju er
enginn, nema vitaskuld sá að á þeim
eru ekki sömu lögin. Sami maður
stjórnar gerð platnanna, sami upptöku-
maðurinn við mixerinn og sömu
hljóðfæraleikarar leika undir hjá
Stebba.
Enginn vafi leikur á því að það er
þörf fyrir plötur eins og Shaky. Vin-
sældir Shakin’ Stevens sanna það.
Hann fer í fyrsta sæti vinsældalistanna
álíka auðveldlega og aðrir klæða sig í
skóna sína. Af plötunni Shaky hafa tvö
lög þegar slegið í gegn. Green Door og
You Drive Me Crazy. Önnur eiga áreið-
anlega eftir að gera það gott. Mona
Lisa er dæmi um það.
Fleiri orð þarf reyndar ekki að hafa
um plötuna Shaky. Fjallað var um This
Ole House í DB á sínum tíma. Það sem
var sagt þá á ennþá við. Gamla rokkið
stendur fyrir sínu (það er stíllinn) hvort
sem gömlu meistararnir eru á ferðinni
eða eftirlíkingar eins og Shakin’
Stevens.
-ÁT.
JoanArmatrading— WalkunderLadders:
Ágætsöngkona oggóöurlagasmiður
Joan Armatrading er búin að vera í
sviðsljósinu í sjö ár og hefur hún sent
frá sér jafnmargar LP-pIötur á þessu
tímabili og hver um sig jafnan vakið at-
hygli og aðdáun flestra sem á hana hafa
hlustað, bæði er hún með ágæta og sér-
kennilega söngrödd og lagasmíð
hennar er mjög góð og fjölbreytt.
Joan Armatrading er fædd í Vestur-
Indíum, en hefur búið í Bretlandi siðan
hún var þriggja ára og þaðan gerir hún
út. Meirihluti ársins hjá henni fer í að
ferðast um alla Evrópu og halda kons-'
erta. Fyrsta plata hennar nefndist
Whatever’s For Us og vakti hún þá
þegar verðskuldaða athygli og síðan
hafa þær komið ein á ári og allar orðið
vinsælar.
Nýjasta albúmið hennar nefnist
Walk Under Ladders og það er ekki að
heyra að henni hafi nokkuð farið aftur,
nema síður sé, heldur er Walk Under
Ladders einhver sú bezta sem Joan
Armatrading hefur sent frá sér. Frjó-
leikinn í lagasmíð hjá henni virðist vera
óþrjótandi og fjölbreytnin mikil.
Það er erfitt að gera upp á milli laga
á Walk Under Ladders, því lögin eru
mjög jafngóð. Þó finnst mér tvö fyrstu
lög plötunnar, I’m Lucky og When I
Get It right vera kannski í sérflokki
með það hvað fljótt ég meðtók þau,
bæði þrælgóð. Einnig má nefna No
Love og The Weakness In Me, sem er
mjögfallegt lag.
Joan Armatrading á sér marga aðdá-
endur á íslandi og ég er viss um að
margir eiga eftir að bætast við, því að á
þessari plötu má finna keim af flestum
þeim tónlistarstefnum sem í tízku eru í
dægurlagaheiminum í dag.
-HK.