Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Síða 10

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Síða 10
186 SUNNUDAGUR Barnaskólaliúsiö í Ámesi á Ströndum. þetta sé versti fjallvegur, sem' hann hafði farið, en Eggert fór ekki lengra vestur um Hornstrandir en til Furufjarðar. í botni Þaralátursfjarðar fellur jökulá, Þaraláturs- ós, og kemur hún úr Drangajökli, sem er þarna mjög nálægur. Drangajökull teygir skriðjökla sína niður í margar víkur og firði á Hornströndum og setur kaldranalegan svip á landslagið. Þaralátursós var mesta vatnsfallið, sem við þurft- um að vaða á Ströndum. Þegar við vorum komnir yfir hann, borðuðum við nestið okkar og sleiktum sólskinið. Gengum svo yfir Þaralátursnes og komum að Reykjarfirði snemma um kvöldið. Eins og nafnið bendir til, eru heitar laugar í Reykjarfirði og fyrir nokkrum árum byggðu synir Jakobs bónda þar ’sundlaug. Trjáreki hefur löngum þótt stórhlunnindi á Strönd- um. Svo er og enn. Undanfarin ár hefur verið mikill markaður fyrir rekaviðinn og fengizt fyrir hann gott verð. Algengasti rekaviðurinn eru óunnir, bark- arlausir trjábolir, en stundum rekur þó unninn við. í Reykjarfirði er sögunarvél, sem sagar trén niður í ákveðríár stærðir. Yzti hluti trjánna er hafður í girðingarstaura, en innviðurinn í bita. Daginn eftir fórum við frá Reykjarfirði. Benedikt, sonur Jakobs bónda, reiddi okkur yfir Reykjar- fjarðarós að rótum Fossadalslheiðar. Þar kvöddum við Benedíkt og settum á okkur bakpoka. Okkur gekk vel yfir heiðina og komumst yfir Sunndalsá á snjó- brú. Við vorum nú komnir ú.r ísafjarðarsýslu og í Stfandasýslu, því að sýslumörkin eru á Fossadals- heiði og enda í Geirólfsgnúpi. í Bjamarfírði fórum við úr sokkum og skóm og óðum yfir Bjarnarfjarðará. Þegar við vorum komnir yfir, borðuðum við og létum fara vel um okkur, af því að veðrið var svo gott. Dvaldist okkur þarna í þrjá tíma. Síðan gengum við út með firðinum og bar þá margt fyrir augu. Fyrst sáum við örn á sv.eimi yfir firðinum. Æðar- kollur hlupu úr vegi okkar með langa halarófu af ungum á eftir sér. Selir lágu á steinum og skerj- um, reistu hausinn, þegar þeir sáu til mannaferða og steyptu sér í sjóinn. Tófur hlupu upp úr fjörunni, tylltu sér á tá og höfðu gát á ferðum okkar. En himbrimi hló úti á firðinum. Við komum nú að Meyjará. Hún er óbrúuð, en svo heppilega vildi til, að nokkrir hestar voru á beit okkar megin árinnar og tókum við þá trausta- tak'. Síðan gengum við heim að Dröngum. Þáðum við þar hinn bezta beina hjá Eiríki bónda og hefðum gist þar um nóttina, ef Guðmundur Pétursson frá Ófeigsfirði, sem staddur var á Dröngum, hefði ekki boðið okkur far með sér t'l Ófeigsfjarðar. Því boði gátum við ekki neitað, því að það sparaði okkur erfiða dagleið. Um miðnætti lögðum við af stað á litlúm vélbáti og komum til Ófe'gsfjarðar um klukkan þrjú um nóttina. Á leiðinni sigldum við rétt hjá hinum nafnkunnu Dröngum. Um þá segir Þorvaldur Thor- oddsen: Það eru ógurlegar, risavaxnar hamrastrýtur, sem líklega eru í fyrstu svo til orðnar, að f jallalækir 'hafa beggja vegna grafið geilar í fjallsbrúnina, unz þær náðu saman og svo urðu strýtumar eftir, því að alltaf dýpkuðu geilarnar meir og meir. í Dröng- unum eru blágrýtislögin áframhaldandi eins og í fjallinu fyrir ofan. Efsti dranginn er hæstur, odd- hvass eins og nál að ofan. Þá er annar breiðvaxnari, flatari í toppinn. Þá hinn þriðji, nærri eins breiður og báðir hinir, en sýling niður í hann miðjan, svo að úr honum verða einhvern tíma tvær strýtur. Þá er fjórði dranginn miklu lægri með skoru í toppinn og hinn fimmti yzt, langminnstur. Efsti dranginn er á að gizka 800 fet á hæð. Út með hlíðinni og gegnum Drangaskörðin er illfær vegur. Þar er stundum far- ið af gangandi mönnum. Eftir myndinni í ferðabók Eggerts er ekki ólíklegt, að Drangarnir hafi nokk- * uð breytzt, síðan hann fó.r þar um. Hvergi á íslandi hef ég séð jafn hrikalegt náttúrusmíði í þessari röð, eins og Drangarnir eru. Drangarnir sjást langt að norðan úr hafinu, þegar siglt er til Norðurlandsins. Þeir eru eins og risavaxnir stólpar, sem benda norð- ur í óbyggðir Grænlands. Hér er víst óvistlegt á vetr- i

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.