Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Page 13

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Page 13
SUNNUDAGUR 189 Uppgröfturinn á Þórarins- stöðum. í byngnum (til hægri á myndinni) sem mokað hefur verið upp úr húsarústunum. — Á bak við sjást rofbakkar bcir sem enn standa eftir. Þannifí hefur landið litið út áður en foklögin, sem grrófu bæiun tóku að blása burtu. (Líjósm. Sig. Þórarinsson). Enginn þeirra gróf svo mikið í rústirnar, að unnt væri að glöggva sig á húsaskipun einstakra bæja, en Brynjólfur var sá eini þeirra, semJkom á alla staðina og gerði tilraun til að úrskurða, hvar verið hefði bær og hvar ekki, og þessi tilraun er mikilsvirði, því að hann er enn einn til sagna í þessu efni. Brynjólfur fullyrðir um suma staðina, að þar hafi aldrei byggð ból verið. Þann dóm fá allir éfstu staðirnir, m. a. Ásgarðarhir báðir. Sumt af því sem áður höfðu verið talið bæjarrústir, reyndist vera stórþýfður mói. Nið- urstaðan af rannsókn Brynjólfs er í raun og veru sú, að ekki séu nema 5 staðir á Hrunamannaafrétti sem full vissa er fyrir, að bæir hafi staðið á. Svo mjög héfur byggðin og um leið landauðnin vaxið í munnmælunum, því að það orkar ekki tvímælis, að fremur ber að treysta rannsókn Brynjólfs en munn- mælum þeirra Ytri-Hreppsmanna. Brynjólfur frá Minha-Núpi var ekki slíkur maður, að hann gerði það að gamni sínu að bera brigður á gömul munn- mæli. Hann var þvert á móti bannig skapi farinn, að hann treysti þeim í lengstu lög og gekk ekki í berhögg við þau fyrr en í fulla hnefana. Þegar hann íullýrðir, að bess sjáist engin merki, að munnmæli líafi við rök að styðjast, þá er ekki líklegt að þau geri það. Þessir’f mm bæir, sem full vissa er fyrir, að verið hafi á-i Hrunamannaafrétti heita Stangarnes eða Stöhg,' Rógshólar, Mörþúfur, Laugar eða Laugá- hvammar og Þórarinsstaðir Við þetta mætti þó bæla tveimur bæjum, sem enn sjást merki eftir uppi við Hvítárvatn og líklega eru frá sama tíma og bæirnir á afrétt num Eins og eðlilegt er á uppblástrarsvæði hafa rústir bæjanna fimm hlotið mismunandi örlög. Stangarnesrústirnar eru nú með öllu horfnar, en haía verið mjög greinilegar á dögum Árna Magnússonár. í Mörþúfum voru allmiklar rústir sjáanlegar um miðja 19. þld, en eru nú gjöreyddar. Sama er að segja um Rógshóla. Þar stendur nú ekki steinn yfir steihii, en Brynjólfur og fleiri hafa fundið þar forngripi, bg enn sjást grjótdreifar nokkrar, þar sem bærinn héíur staðið. Á Laugum getur enn að líta miklar bygging- arleifar, en vindur og vatn_ hafa farið um þær svo ó- mjúkum höndúm, að varla verður héðan af hægt að glöggva sig á til fullnustu hversu hýbýlum hefur verið háttað þar. Á því er þó enginn vafi, að þetta býli hefur verið stærra en nokkurt hinna. Þar mun hafa verið kirkja eða bænhús og heit uppsprétta hefur verið bar nálægt bænum, eins og nafnið sýnir. Laug sú er nú þorrin, og segja munnmæli, að hún hafi fært sig til, þegar bærinn fór í eyði. — ÞeSsi fjögur bæjarstæði sýna áþreifanlega’ hvc aðgangs- harður uppblásturinn hefur verið nú á síðari tim- um. Leifar hinna fornu bæja eru' annað hvort foknaf út í veður og vind í bókstaflegum skilningi, eða svo mjög úr lagi færðar, að einskis árangurs er að vænta af rannsókn þeirra.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.