Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Síða 14

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Síða 14
190 SUNNUDAGUR Öðru máli gegnir um Þórarinsstaði, hinn fimmta og efsta af bæjum þeim, er nefndir voru. Bæjarrúst- imar þar hafa snemma grafizt undir þykku áfokslagi, og það er tiltölulega stutt síðan þeim fór að verða hætta búin áf uppblæstri. Hvergi er meiri vitneskju að vænta um hina fornu byggð en einmitt þar, og þess vegna lögðu þeir Þorsteinn Erlingsson og Daníel Brún fyrst og fremst leið sina þangað. En hvorugur þeirra gerði þar ýtarlega rannsókn. Þar mátti mikið um bæta, og því var það, að nokkrir menn tóku sig til að ráði þjóðmjnjavarðar og gerðu út leiðangur upp að Þórarinsstöðum síðastliðið sumar. Þeir lágu þar við á aðra viku, rannsökuðu allt hátt og lágt og þótt- ust hafa haft erindi sem erfiði. Bærinn á, Þórarihsstöðum hefur staðið vestan til í ávölum heiðarási, er nefnist Hnausheiði, við á eina litla, sem heitir Stangará og rennur í Hvítá. Dálít- ill, viðkunnanlegur foss er í ánni rétt hjá bæjarstæð- inu Þar hefur vatn verið tekið og klæði þvegin. Framhlið bæjarins hefur snúið móti vestri, enda er víðsýní mest í þeirri átt. Þar blasir við Langjökull með Jarlihettum fyrir framan. Geitlandsjökull og Þórisjökull. Litlu sunnar er Hlöðufell og enn fleiri há og virðuleg fjöll. í hánorðri er Bláfell og hægra megin við það bryddir á Kerlingarfjöllum. Það er fagurt um að litast á Þórarinsstöðum nú, en endur fyrir löngu, meðan byggð stóð bar í blóma, tún rækt- hð og skógar miklir á alla vegu og þessi f jalladýrð að baki, hefur það þó verið enn fegurra. Það kom brátt í ljós, þegar farið var að grafa í rústirnar, að þær voru með fádæmum vel varðveitt- ar, svo að engar miðaldarústir, sem hér hafa verið rannsakaðar, skara fram úr þeim nema bæjarrústirn- ar í Stöng í Þjórsárdal. Allir veggir standa enn upp til miðs og má ýkjulaust segja, að hvergi hafi hagg- azt steinn í vegg. Ástæðan er sú, að áfokið, sem tóft- irnar voru fullar af, hefur stutt veggina og varið þá hruni. Þegar svo áfokið er hreinsað burtu, má ljós- lega sjá, hversu húsum hefur verið skipað. Gestúr, sem komið hefur neðan úr hreppnum, þeg- ar bærinn stóð á Þórarinsstöðum, mun fyrst hafa séð fyrir sér aflangt hús með framhlið móti vestri, • en þegar hann reið í hlaðið, hefur hann komizt að raun um, að þetta voru í raun og veru þrjú hús, sem stóðu hvort af annars enda, skáli í miðju, en stofa og fjós til beggja enda. Norðarlega á skálavegg eru aðaldyr bæjarins, lagðar hellum, eins og venja var til. í eins konar skáp eða skoti í vinstra dyrakampi niðri við gólf er komið fyrir stórri, íhvolfri hellu eða steinskál, sem tekið hefur nokkra lítra vatns. Stein- skálar eða ker hafa fundizt nálaégt útidyrum í fleiri fornaldar- og miðaldarbæjum og cr varla til önnur skýring ja þeim en að þær séu mundlaugar. Það er alkunna, af fornum sögum, að handþvottur var al- gengur í fyrndinni en bæjarrústarannsóknirnar hafa nú sýnt og sannað, að naumast var sá bær byggður, er sæmilegur skyldi talinn, að ekki væri búið um vatnsskál við útidyr, svo að verkmenn gætu þvegið hendur sínar, er þeir gengu í bæ frá vinnu sinni; Mun þetta lengi verða talið menningu forfeðra vorra til ágætis. — Skátinn, sem gengið er í úr bæjardyr- * um, er aðalhús bæjarins. Hann er 8 m langur og 4 m breiður og mundi ekki vera tallnn stór af fornum skála að vera, en þó hið sæmilegasta hús og ólíkt stærri en meðal baðstofukytra frá seinni öldum. Á miðju gólfi er eldstæði, sem maður dyrfist varla að kalla langeldstæði, en hlutverk elds þess, sem þar hefur brunnið, hefur þó verið h ð sama og langeld- anna fornu. Hann hefur einkum verið til þess að hita upp skálann, sem var svefnhús heimamanna. Fram með báðum hliðarveggjum e.ru upphækkuð set, þar sem hvílurnar hafa verið, gríðarmiklar hellur í rúmstokks stað fyrir framan. Iíeldur eru nú hvíl- urnar kaldranalegar, en þess ber að gæta, að í þeim hefur verið hálmur og loðfeldir, meðan þær voru í notkun. Á þessum bálkum virðist hafa verið svefn- rúm fyrir 12 manns. Úr öðrum enda skálans er gengið til stofu. Stofa var annað aðalhúsið, sem vera átti á hverjum vel hýstum bæ. Þar sat fólkið við vinnu sína á veturna í flöktandi koluljósinu, þar voru kvæði kveðin og sögur sagðar. Stofan er álíka stór og skálinn og virð- ist því munu hafa verið tiltölulega rýmra um heim- ilisfólkið við vinnu sína í stofunni um daga eh á skálabálkunum um nætur. Fram með báðum stofu- veggjum eru setbekkir með framhlið úr úrvalshell- um, sem felldar eru saman með miklum hagleik. Fyr- ir stafni stofunnar er enginn bekkur, enda þurfti að vera gott rúm þar fyrir vefstólinn. Þar fannst hrúga af steinum, kljasteinum, sem hafðir voru til að strengja voðina í gömlu, íslenzku vefstólunum. Það má nærri geta, að tóvinna hefur verið ein helzta iðja fólks í stofunni. Þar voru unnar voðir þær allar, er þurftu til klæða heimilisfólksins, og þar var fram- leiddur kaupeyrir bóndans, vaðmálin. En fleira gerð- ist í stofunni. Við veitum því athygli, að ekkert eld- hús er á bænum. í einu stofuhorninu eru stórar og myndarlegar hlóðir, og þar hefur maturinn verið eldaður. Þetta var að mörgu leyti hagkvæmt. Hlóða- eldurinn hitaði upp stofuna, og þegar maturinn var

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.