Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Side 15

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 23.11.1945, Side 15
SUNNUDAGUR 191 i Skálinn á Þórarinsstöðum. Hann er 8. m. langur og 4 m. breiður. Meðfram hliðarveggjunum eru bálk- ar, þar sem heimilisfólkið hefur sofið. — Á miðju gólfi eru hellur og hefur þar verið eldstæði. (Ljósm. Sig. Þórarinsson). soðinn, 'þurfti ekki að bera hann langar leiðir handa fólkinu, sem sat á bekkjunum rétt hjá. Auðvitað hef- ur það fengið dáldtinn reykjareim í nef og augu um leið, en varla hafa menn kippt sér upp við slíka smá- muni í þá daga, þegar öll eldstæði voru opin, en loftrásir fáar. — Að baki langhúsanna, skála og stofu, er enn eitt hús, búrið. í því hefur verið geymd- ur alls konar matur, þó einkum mjólkurmatur. Þar hafa koppar og kirnur staðlð á stokkum við annan vegg, en við hinn hafa stórir skyr- eða sýrusáir, verið grafnir niður í gólfið. Þeir hafa verið eins og önnur stafaílát og töluvert djúpir. Þegar maður sér slík gímöld, skilur maður vel, hvernig Gissuri Þor_ valdssyni tókst að leynast 1 sýrukeraldinu á Flugu- mýri forðum. Á Þórarinsstöðum hefur verið sams konar umbúnaður. Þá eru upp talin mannahúsin á Þórarinsstöðum. En fleiri voru hús á bænum. Við norðurenda skál- ans er fjós og innangengt 1 það úr skálanum. í fiós- inu eru básar í tveimur röðum, en flór í milli. Þar hefur verið básrúm fyrir 14 nautgripi, kýr og geld- neyti, og er hægt að þekkja geldneytisbásana frá kýrbásunum eftir því hvemig básstokkurinn er gerð- ur. Allt er með ráði gert, og geldneytin hafa verið ■höfð fremst í fjósinu til að taka við útidyrakuldan- um, en mjólkurkýrnar innar í hlýjunni, nær manna- húsunum. Austur úr fjósinu gengur hlaða og lítill hrútakofi eða hesthúskofi við norðurstafn þess. Á túninu skammt frá bænum eru rústir tveggja fjárhúsa. Það eru löng hús og mjó, hið lengra hvorki meira né minna en 18 m að lengd, en aðeins rúm- ir 2 m að breidd, svo að það líkist einna helzt löng- um ranghala. Virðast þau munu hafa tekið um 75 fjár til samans. í báðum húsunum eru 'jötur úr hell- um við annan vegginn en ekki garði .eftir endilöngu húsi og krær til beggja hliða eins og nú táðkast' um land allt. Jötufjárhús af líkri gerð og Þórarins- staðahúsin hafa ver.ð notuð á Suðurlandi fram á daga þeirra manna, er enn lifa. En það var löngum fremur óþægilegt að gefa á þessar jötur, -og það var því ekki svo lítill búhnykkur fyrir Sunnlendinga, þegar þeir lærðu af Norðlendingum að reisa f járhús með garða, enda hafa þau nú til fulls útrýmt jötu- húsunum. Milli bæjarins og fjárhúsanna hefur smiðja bónd- ans staðið, en hana hefur uppblásturinn leikið harð- ast af húsunum öllum. Þess sjást þó greinileg merki, hvar hún hefur verið, enda liggur það í hlutarins eðli, að smiðja hefur verið á bænum, þótt ekki væri til annars en dengja ljáina. En áuk þess leynir það sér ekki, að bóndinn á Þórarinsstöðum hefur verið járnsmiður mikill og járngerðarmaður. Viðarkol, mýr- arrauði og gjall fannst í ríkum mæli í í’ústunum og kringum þær og ber vitni um þessa iðju hans. Hér hefur nú verið lýst því helzta, sem hafðist upp Framhald á bls. 194, \

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.