Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Blaðsíða 59
61
borist í hendur og sem jeg hjer vildi skýra nokkuru
nánar frá.
í danska ritinu »Tidskrift for Planteavl« 32. bindi 4.
hefti, er skýrsla eftir grasræktartilraunastjóra Dana, C. J.
Christensen, um tilraunir, sem gerðar hafa verið við
»Statens Moseforsögsstation« hjá Herning á Vestur-Jót-
landi og við Tylstrup á Norður-Jótlandi. í formála fyrir
skýrslunni segir, að tilraunin sje framkvæmd til að vinna
reynslu viðvíkjandi ræktun og grasfræsáningu á gras-
lendi, sem vegna Ijelegs gróðurs af verðlitlum grösum
og iilgresi, gefi of litla og Ijelega uppskeru til að borga
áburð. Tilraunasvæðið við Herning þekki jeg mjög vel
af eigin reynslu. Pað er mýrlendi, sem líkist mikið hin-
um betri mýrum vorum. Fyrir alt að tveimur áratugum
var þetta land ræst fram og þá plægt upp, eftir fyrir-
sögn Heiðafjelagsins, og sáð í það grasfræi. Arangurinn
af þessari jarðabót varð þó ekki eftir óskum. Fræið spír-
aði iila og frægresið hvarf úr sögunni á fáum árum, en
í þess stað náði margskonar illgresi yfirhöndinni, svo
sem: súrur, mjaðurt, sóleyjar, fíflar o. fl. og grastegundir,
sem í Danmörku þykja Ijelegar fóðurjurtir, eins og snar-
rótarpuntur og rauðvingull. í þessu ásigkomulagi var land-
ið, er tilraunir þær voru gerðar þar, er nú skal skýrt frá.
Tilraunin við Herning var í 5 liðum, svo sem hjer segir:
a. Sáning eftir herfingu aðeins.
b. Sáning eftir plægingu og herfingu. Hjer er gamla
aðferðin endurtekin.
c. Sáning eftir eins árs ræktun. Eftir fyrstu plægingu
og herfingu var sáð höfrum og landið síðan plægt
aftur og herfað áður en grasfræinu var sáð.
d. Sáning eftir tveggja ára ræktun. Fyrsta árið ræktaðir
hafrar, annað árið guirófur og grasfræinu sáð
þriðja árið.
e. Sáning eftir þriggja ára ræktun. Fyrsta árið hafrar,