Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 8
10
kr. 1200.00 sé miðaður við kaup á jarðyrkjuvélum og
sé aðeins skift í tvent.
Ennfremur bar nefndin fram þessar tillögur:
a) Út af erindi Búnaðarfélags Öxfirðinga er sækir
um 200.00 kr. styrk til verkfærakaupa, til Ræktunar-
félags Norðurlands, leggur nefndin til, að styrkur sá
sé veittur af því fé, sem áætlað var á fyrra ári til jarð -
ræktarstarfsemi undir lið 14.
b) Út af erindi Búnaðarsambands Norður-Þingey-
inga um 300 kr. styrk verður nefndin að leggja til,
að þeirri fjárbeiðni verði vísað frá, með því að það sé
ekki stefna Ræktunarfélagsins að styrkja slík Búnað-
arsambönd«.
17. Fundarstjóri bar síðan upp breytingar fjárhags-
nefndar við fjárhagsáætlun stjórnarinnar lið fyrir lið
og síðan í einu lagi og voru þær samþyktar með öllum
greiddum atkvæðum. Breytingu þá, sem nefndin gerði
við 14. lið, tók hún til baka og kom hún því ekki til
atkvæða.
Tillagan a) samþykt í einu hljóði.
Tillagan b) samþykt með 14 samhljóða atkvæðum.
Þá var áætlunin samþykt með áorðnum breytingum
og er hún svohljóðandi: