Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Síða 32

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Síða 32
34 urinn ekki mikill og sama er að segja um ammoniaks- tegundirnar, sem jafnvel í einstökum árum skara fram úr saltpétrinum. Eg hefi einstöku sinnum heyrt því haldið fram, að þýskur kalksaltpétur væri lakari en sá norski. Slíkt álit mun venjulegast vera bygt á fölskum forsendum, borin saman tvö ár með ólíku árferði, eða þýski saltpéturinn borinn á land, þar sem kali og fós- fórsýra er að þrotum komin vegna fleiri ára einhliða saltpétursnotkunar. c. Swmanburbur á 3 köfnunarefnisáburðartegundum. Tegundir þær, sem bornar eru saman í þessari til- raun eru: þýskur kalksaltpétur, brennisteinssúrt am- moniak og kalkammoniaksaltpétur. Tilraunin er ný og verður ekki skýrt frá henni frekar hér. 2. Samanburður á undirburði, yfirbreiðslu með venjulegri ávinslu og yfirbreiðslu með sterkri ávinslu á 1. ári. Liður 1 í tilraun þessari er plægður upp vorið 1925 og 3ja ára áburðarmagn borið undir strengina, sem síðan er velt aftur í samt lag, 1 árs áburðarmagni er síðan deilt á þennan lið til yfirbreiðslu í 4 ár. Liðir 2 og 3 fá aftur á móti venjulega og jafna breiðslu ár hvert, en meðan ávinslan á lið 2 er framkvæmd öll ár- in með venjulegum gaddavírsslóða, þá er ávinslan á lið 3 vorið 1925 framkvæmd með gaddaherfi (Mosaherfi) og slóða, svo grassvörðurinn er allur rispaður. Vorið 1928 hafa allir liðirnir fengið jafnmikinn áburð og fá þeir svo jafna breiðslu af tilbúnum áburði úr því.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.