Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Qupperneq 39
41
Það sem sérstaklega er eftirtektarvert við tölur
þessar, er hve töðufengurinn hefir vaxið ört síðustu
árin. Að nokkuru leiti liggur þetta í aukningu ræktaðs
lands. Vorið 1926 bætast við 4 dagsl. af gömlu túni og
síðastl. vor bætist við ný sáðslétta um 3,6 dagsl. að
stærð, sem gaf af sér í sumar um 35 hesta. Það er fljót-
séð, að töðuaukningin verður eigi skýrð nema að litlu
leiti á þennan hátt. Aftur á móti er það aukin notkun
tilbúins áburðar og bætt áburðarhirðing og á eg þar
sérstaklega við sérgeymslu þvagsins, sem á aðalþáttinn
í því, hve túnin gefa mikið meiri afrakstur nú heldur
en fyrir nokkrum árum síðan.
Útengjaheyskap Ræktunarfélagsins er lokið. Leiga
af Staðareyjunni og útsvar nam kr. 350 á ári. Þessari
upphæð var síðastliðið vor varið til að auka notkun til-
búins áburðar á túnum félagsins og árangurinn varð
rúmir 200 hestar af töðu. Læt eg svo lesendur ársrits-
ins um að reikna dæmið til enda.
Það skal tekið fram, að töðufengurinn er ekki veginn
heldur áætlaður öll árin, en reynsla undanfarinna ára
hefur verið sú, að áætlaður hestur að sumrinu vegur
100 kg. út úr hlöðu að vetrinum.
III. Fræðslustarfsemin.
a. Verklegt garðyrkjunám.
Á vornámskeiði 1928 voru:
Björg Jónsdóttir, ölvaldsstöðum, Mýrasýslu.
Elín Stefánsdóttir, Varðgjá, Eyjafjarðarsýslu.
Guðrún Guðlaugsdóttir, Drangsnesi, Strandasýslu.
Laufey Böðvarsdóttir, Laugavatni, Árnessýslu.
Orný Guðmundsdóttir, Hóli, N.-Þingeyjarsýslu.
Sigrún Þorgrímsdóttir, Garði, Mývatnssveit, S.-Þing.