Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 45

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 45
47 heldur seint. Og voru því plönturnar heldur smáar og veikar, og ekki vel undirbúnar að mæta misjöfnum vetri. Nokkuð af trjá- og runnaplöntum var tekið upp. Minstu plönturnar til að gróðursetjast í græðibeð hér í stöðinni, en stærri plöntur til að seljast burtu, bæði hér í nágrennið, og víðsvegar út um land. Græðlingar voru settir niður af ýmsum runnum með mesta móti. Það gekk dálítið misjafnlega með þá og þeir, sem komu til, voru nokkuð seinir á sér og hafa líklega kuldarnir í júní og svo þurkarnir í sumar átt nokkurn þátt í því, hvað þessir græðlingar áttu erfitt uppdráttar. í maílok stóðu tré og runnar allaufgaðir. Heggurinn þéttsettur sínum hvítu og fallegu blómum, Lonicera coralea farin að fella sín blóm. öll tré og runnar oi'ðin vel laufguð, og blómstruðu í júní, þó stundum blési kalt. Berjarunnar blómstruðu vel, og báru allmikið af góðum og vel þroskuðum berjum, sem spruttu bara heldur seint. Jarðarber voru þroskuð um miðjan ágúst, en Hind- ber og Ribs ekki fyr en í september. Taflan, sem fylgir, sýnir ársvöxt á nokkrum trjám og runnum. \

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.