Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 47

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 47
49 Plöntunum fór vel fram í vermihúsinu og var surriu af þeim plantað þar um í kassa, en nokkru aftur út í sólreit. Eftir 20. maí voru þessar plöntur orðnar fær- ar um að plantast út í garðinn, og náðu flestar af þeim fullkomnum þroska. Fjöræra blómafræinu var sáð fyrri partinn í maí, plantað um í sólreit og út í garðin seinustu dagana í ágúst. Einæru blómin, sem sáð var til úti urp miðjan maí, náðu því ekki nærri öll að blómstra. Af fjölærum blómjurtum hér í Stöðinni dó mjög lítið í vetur, þær stóðu mikið vel, byrjuðu að blómstra fyrst í maí og altaf stóð eitthvað af þeim í blóma þangað til frost og snjór kom. Ef við viljum hafa gleði af blómunum okkar verðum við að sýna þeim nákvæmni. Það má ekki taka plöntur alt í einu frá hlýum reit eða húsi og planta þeim út í garðinn. Það er mjög áríðandi að venja plönturnar vel við útiloftið, áður en þeim er plantað út, annars geta viðbrygðin orðið svö mikil, að hætt er við að plantan nái aldrei fullum þroska og beri lítil, eða jafnvel aldrei blóm. Sérstaklega eru það einæru blómin, sem geta verið svo yndislega falleg ef þau ná að þroskast, en þeirra lífstíð er svo stutt, bara eitt sumar. Er því um að gera að sá svo snemma til þessara blóma sem föng eru á (helst í mars eða byrjun apríl) svo hægt sé að hafa tíman fyrir sér, að fá plönturnar sem þroskamestar og færastar til að þola misjafna veðráttu þegar út kemur. Aftur eru það nokkrar tegundir af sumarblómum, sem ná fullum þroska þó þeim sé sáð úti, en þeim verður að velja svo hlýjan og sólríkin stað, sem hægt 4

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.