Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 50
52
Mörgum tegundum af trjáfræí var sáð hér í vor og
spíraði margt af fræinu heldur vel, en sumt af því hef-
ur ekki skilyrði til að spíra fyr en næsta sumar.
Mestu af trjáfræinu var sáð úti í Trjágarði, en
nokkru þó hér heima í nýjan part, sem matjurtir hafa
verið í undanfarin ár, en er nú verið að taka fyrir trjá-
og blómjurtir.
Nokkrar tegundir af barrtrjáfræi voru sendar hing-
að frá Danmörku til reynslu. Fræið kom ekki fyr en í
júní og var sáð fljótlega eftir að það kom. Var sáð svo-
litlu af fræinu, í kassa í vermihúsinu, og spíraði það
þar, eftir 12 daga, er það gott til að sýna hvað hitinn
gerir að verkum, því úti spíraði fræið ekki fyr en eftir
rúman mánuð. Fræið spíraði nokkuð vel bæði úti og
inni, nema ein tegund (Abís amabilis) spíraði sáralítið
í báðum stöðum.
Eins og að undanförnu var nokkuð látið héðan burtu
af trjám og runnaplöntum.
Plöntur frá sáðbeðum í Trjágarðinum voru fluttar
hér heim í Stöð og plantað til bráðabirgða.
Trén laufguðust seint, og laufið var smátt og þroska-
lítið. Reynir náði að blómstra alt að því í meðallagi.
Baunatrén blómstruðu einnig dálítið. Syrenan kom
með tvö blóm og hefur það aldrei sést hér fyr og gefur
það ástæðu til að vona, að hér verði einhverntíma falleg
Syrena.
Yllir blómstraði líka svolítið, sem hann hefur aldrei
gert áður. Aftur sást ekki blóm á Hegg, Þyrni og Gull-
regni og Geitblöðungur blómstraði sáralítið.
Lævirkjatrén náðu aldrei sínum rétta lit, stóðu bleik
í alt sumar, svolítið af nýjum sprotum settu þau þó,
sem gefa vonir um að þau eigi framtíð.
Ribsið blómstraði dálítið, en þroskaði engin ber.