Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 54

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 54
Áburðarþörf íslenskrar jarðræktar. I' 3. hefti af »Nordisk Jordbrugsforskning« 1919, skrifar John Sebelien, professor við búnaðarháskólann í Ási í Noregi, ritgerð með yfirskriftinni: »Om Kunst- gödningsbehovet i de nordiske lande« (um þörf tilbú- ins áburðar á Norðurlöndum). í ritgerð þessari reikn- ar prófessorinn út, hve mikið af jurtanærandi efnum, köfnunarefni, fosfórsýru og kalí, flytjist burtu með uppskerunni í Danmörku, Svíþjóð og Noregi ár hvert, og hve mikið jarðvegurinn fái aftur af þessum efnum í ýmiskonar áburði. Kemst hann að þeirri niðurstöðu, að jafnvægið sé ekki sem best í þessum efnum, að í öll- um löndunum sé rekin rányrkja, þ. e. gengið á forða jarðvegsins af jurtanærandi efnum og afleiðingin hljóti að verða þverrandi uppskera, miðað við flatar- einingu; sé þetta sérstaklega óheppilegt, þar sem þörf- in fyrir að auka uppskerumagnið af hverri flatarein- ingu sé aðkallandi. Ennfremur kemst prófessorinn að þeirri niðurstöðu, að öll löndin séu orðin mjög háð framleiðslu tilbúins áburðar, en meðan Noregur ög Svíþjóð hafi talsverðan innlendan áburðariðnað og standi tiltölulega vel að vígi með að auka hann, þá sé ástandið alvarlegra hvað Danmörku áhrærir, sem aðal-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.