Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 56

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 56
58 Á sama tíma nemur tún- og garðauki samkvæmt jarðabótaskýrslunum: Túnauki ha. Garðauki ha. 1923 114.6 6.0 1924 252.8 7.8 1925 398.6 11.1 1926 543.6 13.5 Samtals 1923—26 1309.6 38.4 Samkvæmt skýrslum um ræktað land og jarðargróða er túnaukinn, frá 1923—26, aðeins 105 ha. og garðauk- inn 0.8 ha., á sama tíma er vöxturinn samkvæmt jarða- bótaskýrslunum 1309.6 og 38.4 ha. Það mun því óhætt að fullyrða, að stærð hins ræktaða lands er talsvert meiri, heldur en skýrsla um ræktað land og jarðar- gróða segir hana. Hve mikil nýræktin hefur verið síð- an 1926 er ekki hægt að segja með vissu, en sennilega er hún ekki undir 1700 ha. og mun því óhætt að telja stærð túnanna nú um 26000 ha. Stærð garðanna skift- ir minna máli, og líkindi eru til, að hún geti verið tals- vert breytileg frá ári til árs, eg vil þó áætla hana hér ca. 550 ha. Hvað uppskerutölur Búnaðarskýrslanna á- hrærir, þá munu þær yfirleitt of lágar. Bæði mun vanta nokkuð á, að uppskeran sé reglulega talin fram af öilu landinu og svo mun varla nokkur bóndi telja töðufeng sinn í 80 kg. hestum. Framtalið mun, í flest- um tilfellum, frekar gert með tilliti til ásetnings heldur en til hagskýrslna og má því ganga út frá, að framtal- inn töðuhestur sé ekki undir 100 kg. að þyngd, senni- lega frekar yfir. Þegar svo tekið er tillit til aukinnar ræktunar frá 1926 og einnig þess, að hafrahey er eigi talið í Búnaðarskýrslunum, þá vil eg áætla að töðuupp- skeran sé um 1 milljón hestar á 100 kg.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.