Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 60

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 60
62 an hátt við notkunina. Eftir dönskum tilraunum að dæma, er verðmæti köfnunarefnisins í húsdýraáburði aðeins um 50-—60%, af verðmæti sama efnis í salt- pétri, fósfórsýran sýnist aftur á móti lítið verðminni heldur en í superfosfati, en kalíið um 20% verðminna heldur en í venjulegum kaliáburði. Það mun því óhætt að draga um 50% frá köfnunarefninu, 10% frá fós- fórsýrunni og um 20% frá kalíinu, eftir verður þá: Fullgild jurtanær. í tonnum 1098.8 köfn. 625.5 fosf. 1677.1 kali Jurtanær. efni í uppsk. í t. 1713.0 köfn. 505.7 fosf. 1625.9 kali Mismunur -)- -4- -^614.2 köfn.+119.8 fosf. +51.2 kali Það hefur áður verið tekið fram, að útreikningar þessir geti ekki orðið nákvæmir, og sérstaklega gildir þetta þegar um áburðarframleiðsluna er að ræða. Til frekari tryggingar vil eg því framkvæma þann hluta útreikningsins á þann hátt, að leggja frjóefnaforða fóðursins til grundvallar fyrir frjóefnaforða áburðar- ins. Meginhluta þeirra jurtanærandi efna, er í fóðrinu finnast, skila húsdýrin aftur í áburðinum, þó hlýtur nokkuð að tapast í afurðum, sérstaklega af köfnunar- efninu (mjólk, ull 0. fl.) og við útigang búfjárins. Hve miklu þetta tap nemi fyrir heildina verður að vera á- giskun. Útheysfengurinn hefir verið, samkvæmt Búnaðar- skýrslunum 1923-—26, rúmlega 1.3 mill. hesta (60 kg.) að meðaltali á ári. Eg tel það vafalaust, að meðalþyngd útheyshestsins sé of lág á hagskýrslunum og reikna hana því hér á 75 kg. útheysuppskeran öll verður þá um 97500 tonn. Frjóefnamagn útheysins er vafalaust mjög misjafnt, en eg geri það 1.1% köfnunarefni; 0.3% fósfórsýru og 1.1% kali. Niðurstaðan verður þá þannig:

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.