Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Side 63

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Side 63
65 Næst er þá að athuga hvaða möguleika vér höfum til að auka áburðarmagnið. 1. Sauöataðið. Það er áður tekið fram, að ennþá muni allmiklum hluta sauðataðsins brent. Á einstaka stað getur verið svo örðugt að afla annars eldsneytis, að þetta er réttmætt, en þar sem flutningsmöguleikar eru sæmilegir, er vafalaust hagkvæmara að kaupa kol til eldsneytis, en nota sauðataðið til jarðyrkjunnar. Að þessu hafa oft verið færð góð rök, svo eg get slept því að gera það hér. 2. Hagkvæmari nýting, geymsla og notkvn húsdýra- áburðar. Eg get verið fáorður um þessi atriði, því um þau hefur mikið verið skrifað og auk þess, sem aðrir hafa um þetta ritað, þá hef eg rakið þetta mál allítarlega í Ársritinu 1927, í grein er eg nefni »Um hirðing og not- kun húsdýraáburðar« og get því vísað til þess, er þar er sagt. Þó vil eg sérstaklega undirstrika, að stærsta sporið, er vér getum stigið í þessum efnum, er að að- skilja þvag og mykju og geyma þvagið vandlega í lag- ar- og loftþéttum gryfjum. Köfnunarefni þvagsins er svo auðleyst, að notagildi þess nálgast vafalaust mjög mikið notagildi köfnunarefnisins í tilbúnum áburði, en með þeim geymslu- og notkunaraðferðum, sem nú eru algengastar á húsdýraáburði, má fullyrða, að megin- hluti þessa auðleysta efnis fari forgörðum. í ársþvagi nautgripa og hrossa í landinu munu vera um 700 tonn af köfnunarefni, en eg þori að fullyrða, að um helm- ingur þessa köfnunarefnis og það verðmætasti hlutinn, tapast við þær geymslu- og notkunaraðferðir, sem al- ment eru notaðar. 3. Salernisáburður. Yfirleitt er þessum áburði lítið til haga haldið og fæstir gera sér grein fyrir, hve mik- 5-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.