Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 72

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 72
74 flatareiningu vaxi, sá kostnaðarauki verður tæplega meira en það, sem vinst við að túnin verða slétt og vél- tæk. Aftur á móti verður að gera ráð fyrir auknum uppskerukostnaði vegna nýyrkjunnar. Aukinn árlegan tilkostnað reikna eg þannig: Renta og afborgun af ræktunarkostnaði 10% Kr. 870 þús. Aukinn áburður á 26000 ha. (75 kr. pr. ha.) — 1950 — Áburður á 2133 ha nýræktar (150 kr. pr. ha) — 320 — Kostnaður við að heyja 2133 ha. (60 kr. pr. ha.) — 128 — Árlegur kostnaður samtals kr. 3,271 þús. eöa rúmlega sy4 milljón króna. Til þess að séð verði, hvort þessi tilkostnaður sé réttmætur, verðum vér að gera oss grein fyrir, hve mikið það úthey, er vér öflum utan flæðiengja, kostar. Eftir minni reynslu og athugunum, þá hygg eg að eigi megi gera ráð fyrir, að einn karl og kona í sameiningu heyi meira en 150 hesta af útheyi á venjulegu útengi í 10 vikur. Ef vér gerum kaup karlmannsins með fæði 60 kr. á viku og kaup kvenmannsins 35 kr., þá verður þessi tilkostnaður kr. 950.00 og þegar hér við bætist áhaldaslit, hestavinna o. f 1., mun mega gera ráð fyrir, og hverjir 150 hestar af venjulegu útheyi kosti kr. 1050,00 eða kr. 7.00 pr. hest; en 1 millj. útheyshesta kostar þá 7 milljónir króma. Árlegur ágóði, af ofan- greindri ræktun, verður þá um 3% millj. króna, eða meira en andvirði helmingsins af útfluttum landbún- aðarafurðum 1926. Ef vér aftur á móti gerum ráð fyrir aðeins 50 hest- um pr. ha. af ræktuðu landi, sem þó vafalaust er of lágt með því áburðarmagni, er hér er gert ráð fyrir, þá verður þessi reikningur þannig:

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.