Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 73

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1928, Page 73
75 Renta og afborgun af 14260 þús. kr. (10%) Kr. 1426 Þús. Aukinn áburður á 2600 ha (75 kr. pr. ha.) — 1950 — Áburður á 7760 ha. nýræktar (150 kr. pr. ha.) — 1164 — Kostnaður við að heyja 7760 ha (60 kr. pr. ha.) — 466 — Árlegur kostnaðarauki kr. 5006 þús. Ágóðinn verður samt sem áður um 2 millj. króna. Það er alment kvartað yfir slæmri afkomu landbún- aðarins, kaupgjaldið er hátt, erlenda varan dýr en verð landbúnaðarafurðanna lágt. Vér ráðum að mjög litlu leyti við verðlag innlendrar og erlendrar vöru, aðeins tilviljun ein getur, að nokkrum verulegum mun, breytt því til batnaðar fyrir íslenskan landbúnað. Sama er að segja um kaupgjaldið, það skapast aðallega af sjávar- útveginum, sem ber ægishjálm yfir landbúnaðinn, hvað t alla umsetning og nýtísku aðferðir við framleiðsluna á- hrærir. Eina leiðin til þess að bæta afkomu landbún- aðarins, sem virðist opin, er að lækka framleiðslukostn- aðinn og það gerum vér best á þann hátt, að auka ræktunina og þann afrakstur er hún gefur, svo að vér getum slegið striki yfir hinn dýra og óhagstæða út- engjaheyskap, sem nú er orðinn hreinasta niðurdrep fyrir íslenskan landbúnað. öll tún slétt og hálfu stærri en nú að 5 árum liðnum er glæsilegt takmark og víst væri æskilegt, að vér gæt- um sett markið svo hátt, en því megum vér eigi gleyma, að ef slík ræktunaralda á að verða oss að full- um notum, þá verðum vér jafnframt að þrefalda upp- skeruna af rsektuðu landi næstu 5 árin og auka fram- leiðsluna af búum vorum um þriðjung. Þeir sem ekki treysta sér til að ná þessu marki, geta sett sér annað, sem mun auðveldara er að ná, en það er: Að auka stærð , og afrakstur liins ræktaða lands svo, að vér, að 5 árum ) liðnum, getum tekið alt það heyfóður, er vér þörfnumst

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.