Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 5

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 5
7 kalla saman fulltrúafund, frá búnaðarfélögunum á þessu svæði, til þess að stofna sambandið svo snemma, að það geti tekið til starfa um næstu áramót«. 2. »Fundurirfh samþykkir að veita Búnaðarfélagi Svarfdæla kr. 300.00 — þrjú hundruð krónur — af fé til sambandsstarfsemi á yfirstandandi ári til dráttar- vélakaupa, samkv. umsókn þess, dags. 30. apríl þ. á., en getur hinsvegar eigi orðið við beiðni Búnaðarfélags Svalbarðsstrandar, í erindi dagsettu 15. f. m., þar sem þetta félag hefir fyrir aðeins tveimur árum fengið styrk frá Ræktunarfélaginu. Að öðru leyti lítur fundurinn svo á, að fé það, sem Ræktunarfélagið á yfirstandandi ári hefir til sam- bandsstarfsemi við Eyjafjörð, sé eigi meira en svo að nægi til þess að standast straum af hinni almennu og venjulegu sambandsstarfsemi félagsins og stofnun hins fyrirhugaða sambands«. Er hér var komið fundi var mættur réttkjörinn full- trúi Búnaðarfélags öxfirðinga, Baldur öxdal. Um álit nefndarinnar urðu miklar umræður og að þeim loknum var gengið til atkvæðagreiðslu um tillög- ur stjórnarinnar til breytinga á lögum Ræktunarfé- lagsins. Voru tillögurnar bornar upp hver fyrir sig og allar samþyktar með öllum atkvæðum með breytingu laga- nefndar. Lögin síðan borin upp í heild með áorðnum breyt- ingum og samþykt með öllum atkvæðum. Hinar samþyktu tillögur hljóða svo: 7. gr. orðist þannig: Félagssvæðið nær frá Hrútafirði til Gunnólfsvíkur- fjalls og hafa félagar innan þessara takmarka rétt til að mynda deildir og senda fulltrúa á fundi félagsins,

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.