Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 16

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 16
18 þess að víkja um of frá sínu upprunalega ætlunarverki, er hlutverki félagsins á þessu sviði lokið og þá á það og getur líka með fullri sæmd dregið sig í hlé. Þessi breyting á starfsháttum Ræktunarfélagsins þrengir að vísu verksvið þess en rýrir á engan hátt starfsemi félagsins, því þeim kröftum, er það til þessa hefur var- ið til sambandsstarfsemi, getur það nú beitt óskiftum til rannsókna í þágu íslenskra búvísinda og er þar um stærra velrksvið að ræða en séð verður út yfir. Það þarf því eigi að óttast að nein orka fari forgörðum þó félagið hætti að vera búnaðarsamband. Ennfremur verðum vér að gera ráð fyrir, að vaxtarskilyrðum og framkvæmdaþörf sambandsstarfseminnar, sé skapaður rýmri stakkur með þessu nýja skipulagi, sem líka er aðaltilgangurinn og fyrir heildina sé því einungis um vinning að ræða. Það þarf engan að undra, þó slíka breytingu sem þessa verði að gera nú eftir að Ræktunarfélagið er bú- ið að starfa sem búnaðarsamband fyrir Norðurland í rúm 20 ár, það hefur oft breytt starfsháttum sínum áður og þarf slíkt eigi að vera nein afturfarar- eða hnignunareinkenni, heldur einungis eðlileg afleiðing af breyttum tímum og breyttum ástæðum. Það skipu- lag, sem á einum tíma er gott og heilbrigt, getur á öðr- um tíma verið ófært og úrelt. Allur heilbrigður félags- skapur verður því að vera svo sveigjanlegur, að hann ávalt geti lagað sig eftir þörfum og kröfum tímanna, því geti hann það eigi verður hann fljótlega að stein- storku — dagar uppi eins og nátttröllin. Eg hefi orðið þess var, að allmargir líta svo á, að breyting sú á starfsháttum Ræktunarfélags Norður- lands, er eg hér hefi rætt um, sé hnekkir fyrir félagið og hygg eg að þetta byggist aðallega á því, að þeir telja, að raeð þessu skipulagi sé afskiftum og áhrifum

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.