Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 20
Skýrsla
um starfsemi Ræktunarfélags Norðurlands 1931.
I. Tilraunastarfsemin.
Á þessu ári hefir tilraunum félagsins fjölgað til
verulegra muna, þrátt fyrir það þótt nokkurum eldri
áburðartilraunum félagsins væri lokið síðastliðið ár.
Nú er mest áhersla lögð á nýyrkjutilraunir og skal hér
á eftir gefið stutt yfirlit um tilraunir þær, sem starf-
ræktar voru síðastliðið sumar, án þess þó að birta upp-
skerutölur tilraunanna nema að litlu leyti, sem eigi er
tímabært, hvað flestar þeirra áhrærir.
1. Samanburður á vorbreiðslu og haustbreiðslu með
blönduðum búfjáráburði (mykju og þvagi til samans)
og mykju einni saman.
Tilraun þessi hefir verið starfrækt í 3 ár og hefur
uppskeran verið að meðaltali þannig í 100 kg. pr. ha.
Áburðar- Blandaður áburður Mykja
laust haustbr. vorbr. haustbr. vorbr.
24.3 36.2 31.7 30.2 27.3
Áburðarmagnið hefur verið 22 þús. kg. pr. ha.
2. Samanburður á mykju, þvagi, þvagi + mykju og
tilbúnum áburði.
Þessi tilraun er líka 3ja ára og hefur áburði verið