Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Page 29
31
hluti af kjallaranum var hlaðinn úr grjóti. Þessi part-
ur var rifinn í haust og steyptur upp aftur og kjallar-
inn allur innréttaður með steinskilrúmum.
V. Fjárhagurinn og framtídin.
Fjárhagur félagsins verður sennilega mjög líkur um
þessi ára'mót og hann var við síðasta uppgjör, og má
telja það sæmilega afkomu nú á tímum, ef hægt er að
halda í horfinu án þess að draga saman starfsemina.
Tekjur af afurðum stöðvarinnar og kúabúsins hafa þó
lækkað mikið á þessu ári og litlar líkur til að á því
verði breyting til batnaðar í náinni framtíð, mun því
þurfa að gæta allrar varúðar og sparnaðar í fjármál-
unum á komandi ári ef vel á að fara. Tilraunastarf-
semi félagsins er nú orðin svo umfangsmikil og vinnu-
frek, að hún útheimtir allmikið fé, en sú starfsemi er
svo þýðingarmikil, að það þyrfti frekar að auka hana
heldur en draga úr henni, og mun verða reynt að kom-
ast hjá því að skerða hana meðan mögulegt er.
í desembermánuði 1931.
ólafur Jónsson.