Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Side 33

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Side 33
í V 35 voru í vermihúsinu, því húsið var hitað upp þegar kalt var. Eins og venjulega var flestu af plöntunum plantað til bráðabirgða, og var sérstaklega mikil þörf á því í vor, þar sem svo seint var hægt að planta út. Þó ekki væri plantað út fyr en í júní, kól þó mörg plantan i vor og þurfti sumstaðar að planta 2—3var sinnum i staðinn fyrir það, sem dó út. Mikið af fjölærum blómaplöntum dó hér í Stöðinni í vetur, t. d. næstum allur Bellís o. fl., var því varla eins mikið af fjölærum blómaplöntum, sem látið var burt í vor, eins og í fyrra. Það var lítið um blómaskrúðið í vor, því engir voru Tulípanar og fjölæru plönturnar blómstruðu alt að mánuði seinna en oft hefir verið áður, nema blessuð stjúpmóðurblómin, sem létu ekki standa á sér, en voru til mikillar prýði og ánægju með fjölbreytni sinni og fegurð. í júlí fóru blómin hröðum skrefum að springa út, og í ágústlok var hér mikið blómaval, en þá komu frost- nætur, svo mörgu blóminu varð of kalt. En það breytt- ist fljótt til batnaðar þegar sunnanáttin kom í septemb. með sólskin og hlýju. Það, sem eftir var óútsprungið af blómum, keptist við að breiða út blómin sín, og fram til síðasta september var hér mikið af fallegum blómum. Nokkru af blómafræi var sáð í vor, sem ekki hefir verið reynt hér áður, t. d. að nefna Nemesíu strumosa, gullfallega plöntu, sem reyndist hér vel og var sáð á líkum tíma og Levköj og þarf svipaða meðferð. Balsamínur og Dalhiur höfðum við líka, en þær höf- um við haft áður; eru það skínandi fallegar plöntur inni en úti þrífast þær ekki vel. Þeim var plantað út í 3*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.