Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Síða 34
36
garðinn í júlí en náðu ekki fullum þroska, því þær féllu
við fyrstu frost. Celosía er einnig yndisleg planta inni
og náði hún aðeins að blómstra úti í sumar. En þetta
sumar var svo stutt og kalt, að vel er hugsanlegt að í
góðu sumri gætu þessar plöntur orðið til mikillar prýði
úti, en sérstaklega eru þessar plöntur skemtilegar inni
fyrir þá, sem ekki geta haft blóm nema á sumrin, og
þarf þá að sá til þeirra í mars—apríl, því þær eru tald-
ar einærar.
Maljurtir.
Eftir ástæðum er ekki hægt annað að segja, en að
matjurtirnar gæfu sæmilega góða uppskeru.
Blómkáli og hvítkáli var plantað út um miðjan júní
og sumu seinna. Fyrstu blómkálin voru þroskuð 8.
ágúst, en hvítkálið kom nokkuð seinna.
Kálhöfuðin voru ekki eins jafnstór og þau hafa
stundum verið áður, en þétt og góð.
Ýmsu matjurtafræi var sáð úti eftir miðjan maí,
spíraði fræið alt seint og sumt hálf illa, og hefur veðr-
áttan átt mikinn þátt í því. Þó spíraði alt eitthvað dá-
lítið og náði nothæfum þroska.
Tómatar voru ræktaðir í vermihúsinu og þroskuðust
þeir fyrstu 29. júlí.
Berjarunnar blómstruðu mikið, en þroskuðu sárlítið
af berjum, nema Ribes rubrum, sem þroskaði mikið af
stórum og góðum berjum í september.
Jóna M. Jónsdóttir.