Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Síða 51

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1931, Síða 51
Arfinn Illgresi köllum vér einu nafni þann jurtagróður, sem vex óboðinn meðal nytjajurtanna og rýrir verðmæti þeirra og uppskeru. Ulgresi getur verið af ýmsum jurtaættum og vaxtarmáti þess með mjög breytilegu móti. Vér íslendingar höfum yfirleitt gefið illgresinu litl- ar gætur, sem vafalaust á rót sína að rekja til þess, hve ræktun vor er fáskrúðug og hve litla áherslu vér höfum lagt á að rækta valinn jurtagróður í túnum vorum. Það er þó ein tegund illgresis, sem vér öðrum frem- ur höfum gefið gætur að, en það er arfinn. Til skamms tíma hefur arfinn verið þektastur sem garðaillgresi en sjaldgæfur í túnum, en í sambandi við nýyrkju síðari ára, hefur það komið betur og betur i ljós, að arfinn getur líka verið hættulegt illgresi fyrir grasrækt vora og það er í þessu sambandi, sem eg vil gera arfann að umtalsefni hér. Jurt sú, sem venjulega gengur undir arfanafninu, er Haugarfinn (Stellaria média), en þetta nafn er líka notað yfir aðrar jurtir óskyldar, svo sem Blóðarfann (Poligonum aviculare) og Hjartarfa (Capsella Bursa pastoris) og er einkum sú síðamefnda algengt illgresi á sama vettvangi og haugarfinn. Þar sem flestir, er komnir eru til vits og ára, þekkja

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.